Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
Í BEINNI
Lengjudeild kvenna
Grind/Njarð
83' 3
0
KR
Ísland
0
2
Frakkland
0-1 Sandy Baltimore '74
0-2 Grace Geyoro '85
03.06.2025  -  18:00
Laugardalsvöllur
Þjóðadeild kvenna
Aðstæður: Vindasamt og kalt en nýja grasið flott
Dómari: Emanuela Rusta (Albanía
Áhorfendur: 2132
Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
7. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('74)
8. Alexandra Jóhannsdóttir ('62)
10. Dagný Brynjarsdóttir
14. Hlín Eiríksdóttir ('74)
17. Agla María Albertsdóttir ('62)
18. Guðrún Arnardóttir
20. Guðný Árnadóttir ('86)
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Berglind Rós Ágústsdóttir ('74)
3. Sandra María Jessen ('62)
5. Fanndís Friðriksdóttir ('74)
9. Sædís Rún Heiðarsdóttir ('86)
11. Natasha Anasi
11. Natasha Anasi
15. Katla Tryggvadóttir
16. Hildur Antonsdóttir ('62)
21. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
22. Arna Eiríksdóttir
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Ólafur Pétursson
Ásmundur Guðni Haraldsson
Kristbjörg Helga Ingadóttir
Ásta Árnadóttir
Svala Sigurðardóttir
Ágústa Sigurjónsdóttir
Hafsteinn Steinsson

Gul spjöld:
Guðný Árnadóttir ('27)
Berglind Rós Ágústsdóttir ('76)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frakkar með 2-0 sigur og vinna þar með alla leikina í riðlinum.

Erfiður seinni hálfleikur eftir fínan fyrri hálfleik.

Takk fyrir samfylgdina, viðtöl og umfjöllun koma inn í kvöld.
93. mín
Malard við það að sleppa í gegn en flaggið fer á loft.
93. mín
Sviss að jafna Þvílik svekkelsi! Ef við værum að vinna þennan leik þá værum við að klára annað sætið í þessum riðli. En út frá þessum úrslitum endum við í því þriðja.

Svo er líka möguleiki ef Sviss nær sigurmarki að við endum í síðasta.
Haraldur Örn Haraldsson
92. mín
Frakkar fá hornspyrnu Þær kunna ekkert á vindinn og negla boltanum aftur fyrir.
91. mín
Sakina Karchaoui í góðu skotfæri en á skot framhjá markinu.
90. mín
Að minnsta kosti fjórum mínútum bætt við
87. mín
Ísland fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig N'Dongala brýtur á Söndru Maríu á stórhættulegum stað fyrir utan teig.

N'Dongala liggur svo eftir og þarf aðhlynningu.

Glódís Perla tekur þessa aukaspyrnu og neglir boltanum upp í vindinn og hátt yfir markið.
86. mín
Inn:Sædís Rún Heiðarsdóttir (Ísland) Út:Guðný Árnadóttir (Ísland)
Haraldur Örn Haraldsson
85. mín MARK!
Grace Geyoro (Frakkland)
Stoðsending: Melween N'Dongala
Frakkarnir bæta við N'Dongala með langa sendingu upp völlinn, Clara Mateo mætir í hlaupið en lætur boltann fara og þá opnast allt fyrir Grace Geyoro sem er komin ein í gegn og leggur boltann framhjá Cecilíu.

Frakkland komnar með tveggja marka forskot og þetta er orðið ansi erfitt.
82. mín
Sveindís með fyrirgjöf inn á teig sem ratar á Berglindi. hún reynir skot í annarri tilraun sem fer vel yfir markið, en hún er í lélegu jafnvægi þarna.
81. mín
Inn:Kelly Gago (Frakkland) Út:Sandy Baltimore (Frakkland)
81. mín
Inn:Clara Mateo (Frakkland) Út:Marie-Antoinette Katoto (Frakkland)
79. mín
Frakkar fá hornspyrnu Fá hér þrjár hornspyrnur í röð.

Cecilía grípur að lokum boltann og við getum aðeins losað pressuna.
76. mín Gult spjald: Berglind Rós Ágústsdóttir (Ísland)
Brýtur á Selma Bacha og stúkan baular. Virtist ekki vera mikið í þessu.
74. mín MARK!
Sandy Baltimore (Frakkland)
Frakkar komast yfir! Hröð sókn hjá Frökkunum. Malard gefur fastan bolta fyrir markið þar sem Baltimore er í dauðafæri. Cecilía ver fyrsta skotið hennar en Baltimore fær hann strax aftur og er þá bara með autt netið fyrir framan sig.

Eftir endursýningar sést það svo greinilega að þetta hefði átt að vera rangstaða. Það gerir þetta bara ennþá meira pirrandi!!
Haraldur Örn Haraldsson
74. mín
Inn:Fanndís Friðriksdóttir (Ísland) Út:Hlín Eiríksdóttir (Ísland)
74. mín
Inn:Berglind Rós Ágústsdóttir (Ísland) Út:Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Ísland)
73. mín
Karchaoui með fínt skot fyrir utan teiginn en Cecilía er með þetta.
Haraldur Örn Haraldsson
72. mín
Ísland í góðum möguleika sóknarlega.

Karólína fær góða sendingu frá Hlín og hefur nægan tíma til að horfa upp, Sandra María er með mikið pláss á vinstri vængnum og Karó reynir að koma boltanum í hlaupaleiðina fyrir hana.

Vindurinn hægir á boltanum og sendingin er ekki nægilega föst fyrir Söndru.
71. mín
Ísland í færi og sumir vilja víti! Langur bolti á hægri kantinn og boltinn kemur inn í teig. Sveindís lætur þá boltann fara og Sandra María reynir skotið. Varnarmaður er hinsvegar fyrir henni og sumir í stúkunni biðja um víti. Boltinn berst svo á Karólínu sem á skot fyrir utan teig en þar fer hátt yfir.

Þetta vítakall var held ég bara rétt dæmt hjá dómara leiksins.
Haraldur Örn Haraldsson
71. mín
Inn:Sakina Karchaoui (Frakkland) Út:Amel Majri (Frakkland)
71. mín
Inn:Grace Geyoro (Frakkland) Út:Sandie Toletti (Frakkland)
69. mín
Sveindís með vonda sendingu beint á Katoto sem sækir hratt að markinu en Hildur Antons mætir og étur hana.
68. mín
Frakkar fá enn eina hornspyrnuna Toletti kemur aftur með fasta spyrnu og reynir að nýta vindinn, var nær því að skora í þetta skiptið en boltinn flaug rétt framhjá fjærstönginni.
65. mín
Frakkland fær hornspyrnu Katoto reynir að koma sér framfyrir Ingibjörgu en hún er sterk og verst þessu vel. Frakkar fá annað horn.

Amel Majri tekur spyrnuna og nær ekki að halda boltanum inni á vellinum. Jákvætt fyrir okkur að Frakkarnir virðast ekki kunna að nota sér vindinn til góðs.
64. mín
Inn:Melvine Malard (Frakkland) Út:Kessya Bussy (Frakkland)
63. mín
Frakkland fær hornspyrnu Sandie Toletti með spyrnuna, reynir að nota vindinn og virtist vera skottilraun en boltinn fer í hliðarnetið.
62. mín
Inn:Hildur Antonsdóttir (Ísland) Út:Alexandra Jóhannsdóttir (Ísland)
62. mín
Inn:Sandra María Jessen (Ísland) Út:Agla María Albertsdóttir (Ísland)
58. mín
Sandra María Jessen og Hildur Antons eru að gera sig klárar að koma inn.
58. mín
Frakkar halda áfram að sækja og halda okkur á okkar vallarhelmingi.

Melween N'Dongala fær boltann hægra megin í teignum og þrumar boltanum í hliðarnetið úr þröngu en ágætu færi.
54. mín
Oriane Jean-Francois með hættulegt skot rétt fyrir utan teig, boltinn fer rétt yfir markið.
53. mín
Kessya Bussy með skemmtilega skottilraun. Hún fær boltann hægra megin í teignum, stekkur upp og tekur einhverskonar loftskot.
51. mín
Gestirnir eru að koma kraftmiklar inn í seinni hálfleikinn og liggja svolítið á okkur þessa stundina.
50. mín
Agla María tekur skot að marki
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
49. mín
Fyrirliðinn hefur spilað vel að venju
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
48. mín
Myndir úr fyrri hálfleiknum Haukur Gunnarsson með myndavélina á lofti í Laugardalnum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
48. mín
Baltimore með fyrirgjöf sem virðist alveg hættulaus en boltinn fer svo í þverslána áður en Cecilía handsamar hann.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Tölfræði Með boltann Ísland 21% Frakkland 79%
Skot Ísland 6 Frakkland 4
Skot á mark Ísland 3 Frakkland 3
Horn Ísland 3 Frakkland 4
XG Ísland 0,7 Frakkland 0,41

Þessi tölfræði tekin af Flashscore.com
Haraldur Örn Haraldsson
45. mín
Hálfleikur
Emanuela Rusta flautar til hálfleiks.

Markalaust í Laugardalnum eftir nokkuð líflegan fyrri hálfleik.

Sjáumst aftur eftir korter.
45. mín
Færi! Ísland vinnur boltann á miðjum vellinum og Agla María kemur með góðan bolta inn fyrir á Sveindísi. Hún er þar komin í gott færi og tekur skotið en Pauline ver vel.
Haraldur Örn Haraldsson
45. mín
Frakkar í færi! Kessya Bussy og Sandy Baltimore með alvöru takta. Bussy setur boltann á Baltimore sem á hælsendingu sem setur Bussy í dauðafæri. Cecilía ver vel en skotið er nokkuð beint á hana.
45. mín
Uppbótartíminn Það verður að minnsta kosti ein mínúta í uppbót.
Haraldur Örn Haraldsson
43. mín
Langur og fastur bolti fram úr íslensku vörninni, það héldu um það bil allir að þessi væri að fara beint útaf en Sveindís nær að halda honum inná. Aðstoðardómarinn er ósammála og dæmir markspyrnu.
41. mín
Langt innkast frá Sveindísi sem Frakkar koma í horn. Karólína svo með hornspyrnuna en Pauline grípur boltann.
38. mín
Færi! Hornspyrnan fer í gegnum teiginn og berst boltinn til Alexöndru sem er með nægan tíma á fjær, hún misreiknar boltann hins vegar og missir hann of langt frá sér. Við eigum að vera búnar að skora!
38. mín
Ísland fær aðra aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.

Karólína með spyrnuna inn á teig og Pauline þarf að hafa sig alla við að verja þetta. Við fáum hornspyrnu!
36. mín
Dauðafæri!! Karólína með fast skot úr aukaspyrnunni, Pauline ver þetta beint fyrir fæturna á Glódísi sem setur boltann í hliðarnetið.

Þarna hélt maður að Glódís væri að koma okkur yfir. Úff!
35. mín
Ísland fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Frakka. Brotið á Dagnýju.

Þetta er skotfæri fyrir Karólínu með vindinn í bakið.
34. mín
Agla María fær boltann fyrir utan teig og hefur nægan tíma og ákveður að þruma boltanum bara á markið. Skotið er framhjá markinu en ágætis tilraun.
33. mín
Haraldur Örn Haraldsson
33. mín
Orri ekki sáttur og hendir í þráð
Haraldur Örn Haraldsson
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Ísland fær hornspyrnu Karólína keyrir á þær og reynir fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.

Tekur svo hornið sjálf og spyrnan er ekkert sérstök og Frakkar koma þessu frá.
28. mín
Frakkar fá hornspyrnu.

Cecilía gríðarlega örugg í boxinu og grípur boltann.
27. mín Gult spjald: Guðný Árnadóttir (Ísland)
Guðný lendir í smá vandræðum og misreiknar boltann í vindinum. Togar aðeins í Baltimore til að stoppa sóknina.

Frekar aumt gult spjald, þær voru báðar að toga.
24. mín
Noregur er að vinna Norðmenn eru að spila gegn Sviss í hinum leiknum í þessum riðli. Þær komust yfir á 4. mínútu leiksins og ef úrslitin enda þannig þá skiptir ekki máli hvernig leikurinn hjá Íslandi fer. Þá endar Ísland í 3. sæti riðilsins og fer í umspil um að halda sér í A deild Þjóðadeildarinnar.
Haraldur Örn Haraldsson
23. mín
Cecilía! Marie-Antoinette Katoto fær sendingu inn fyrir vörnina og er í góðu færi en aftur ver Cecilía vel.
20. mín
Færi! Hlín kemst ein gegn Pauline eftir gott samspil við Sveindísi. Skotið ekki nógu gott og Pauline sér við henni.

Þetta var besta færi leiksins til þessa.
14. mín
Frakkar að fá þriðju hornspyrnuna á stuttum tíma.

Ná ekki að gera sér mat úr þessu og Agla María hreinsar svo í innkast.
13. mín
Cecilía Rán!! Sandie Toletti fær boltann á góðum stað í teignum, snýr hann í fjær en Cecilía Rán með geggjaða vörslu! Frakkar fá horn.
10. mín
Fín sókn hjá Íslandi. Agla María með boltann fyrir markið þar sem Sveindís tekur við honum, hún nær ekki að snúa að markinu en leggur hann út á Karólínu sem á skot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.

Markspyrna dæmd en þarna áttum við klárlega að fá hornspyrnu.
8. mín
Frakkar fá hornspyrnu Taka það stutt og Selma Bacha svo með fyrirgjöf sem Alexandra kemur frá.
7. mín
Sandy Baltimore með fyrirgjöf sem fer yfir allan teiginn og í innkast hinum megin. Gestirnir komnar aðeins ofar á völlinn.
5. mín
Ísland er að pressa vel á Frakkana á upphafsmínútunum og setja þær í mikil vandræði að komast upp völlinn.
2. mín
Sveindís kemst inn í sendingu í öftustu línu en Frakkarnir heppnir þarna og vinna boltann aftur.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! Ísland hefur leik. Sveindís sparkar þessu af stað og Ísland sækir í átt að Laugardalshöllinni.
Fyrir leik
Völlurinn lítur frábærlega út
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Alvöru skemmtun fyrir leik Fyrsta kvenna landsliðið er heiðrað hér fyrir leik og Húbba búbba er að syngja nokkur lög. Alvöru umgjörð!
Mynd: HúbbaBúbba

Haraldur Örn Haraldsson
Fyrir leik
Vantar stórstjörnur í hóp Frakka Franska liðið er búið að vinna riðilinn og því var ákveðið fyrir þennan landsliðsglugga að leyfa nokkrum af þeirra bestu leikmönnum að hvíla. Einna helst þar á meðal má nefna Wendie Renard og Eugénie Le Sommer, en samanlagt eru þær tvær með 368 landsleiki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Wendie Renard hefur verið einn besti varnarmaður heims í mörg ár.
Haraldur Örn Haraldsson
Fyrir leik
Byrjunarliðið Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, hefur valið byrjunarliðið sitt og gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Noreg á föstudag.

Guðný Árnadóttir kemur inn fyrir Natöshu, Agla María kemur inn fyrir Söndru Maríu og Dagný kemur inn á miðjuna fyrir Hildi Antons. Sveindís Jane spilar í dag sinn 50. landsleik. Agla María byrjar sinn fyrsta landsleik síðan í desember 2023
Mynd: Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Fyrir leik
Staðan í riðlinum 1. Frakkland - 15 stig
2. Noregur - 5 stig
3. Ísland - 4 stig
4. Sviss - 1 stig

Við þurfum helst að vinna í dag og á sama tíma treysta að Sviss geri eitthvað jákvætt gegn Noregi til að ná öðru sætinu. Frakkland hefur unnið alla sína leiki til þessa.

Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Gula viðvörunin Það er vindasamt á öllu landinu og er gul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu til klukkan 17:00. Leikurinn hefst þó klukkan 18:00 og vonandi sjáum við sem flesta á vellinum.

Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Súrt jafntefli í Noregi Stelpurnar eru nýkomnar frá Noregi þar sem þær gerðu virkilega súrt jafntefli við heimakonur á Lerkendal í Þrándheimi. Það var að mestu leyti mjög flottur leikur hjá íslenska liðinu og áttu þær góða spilkafla. Þær náðu hins vegar ekki að landa sigrnum, en það er bara komið að því í dag að vinna leik.

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði mark Íslands í Noregi en leikurinn endaði 1-1.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Góða kvöldið Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Íslands og Frakklands í Þjóðadeild kvenna. Þetta er vígsluleikurinn á nýja hybrid-grasinu á Laugardalsvelli og vonandi verða sem flestir í stúkunni.

Mynd: Aðsend
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið:
16. Pauline Peyraud-Magnin (m)
3. Thiniba Samoura
6. Sandie Toletti ('71)
9. Marie-Antoinette Katoto ('81)
10. Amel Majri ('71)
13. Selma Bacha
17. Sandy Baltimore ('81)
18. Oriane Jean-Francois
19. Griedge M'Bock Bathy
22. Kessya Bussy ('64)
23. Melween N'Dongala

Varamenn:
1. Justine Lerond (m)
21. Constance Picaud (m)
4. Lou Bogaert
5. Elisa De Almeida
7. Sakina Karchaoui ('71)
8. Grace Geyoro ('71)
12. Clara Mateo ('81)
14. Melvine Malard ('64)
15. Kelly Gago ('81)
20. Alice Sombath

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: