Heil og sæl! HM hefst í kvöld með opnunarleik Mexíkó og Suður-Afríku. Þá eru bara nokkrir dagar í að sumarglugginn opnar og hér er allt ferskasta slúðrið.
Arsenal er enn á höttunum á eftir spænska landsliðsmanninum Nico Williams (23) hjá Athletic Bilbao. Liverpool, Manchester City og Manchester United hafa einnig áhuga á kantmanninum. (Teamtalk)
Juventus er í viðræðum við Aston Villa um að kaupa argentínska landsliðsmarkvörðinn Emilíano Martínez (33) sem hefur þegar gert munnlegt samkomulag við ítalska félagið um kaup og kjör. (Corriere dello Sport)
Enski landsliðsmiðvörðurinn John Stones (32) er meðal leikmanna sem Juventus er með augastað á. Stones er að yfirgefa Manchester City. (La Gazzetta dello Sport)
Paris St-Germain mun reyna að kaupa franska framherjann Michael Olise (24) í sumar en hann hefur verið frábær með Bayern München og franska landsliðinu. (L'Equipe)
Manchester United er með augastað á senegalska framherjanum Iliman Ndiaye (26) hjá Everton. United hyggst stækka hóp sinn fyrir Meistaradeildina á næsta tímabili. (Sky Sports)
Liverpool er tilbúið að láta ítalska framherjann Federico Chiesa (28) fara fyrir um 17 milljónir punda í sumar en leikmaðurinn hefur áhuga á að snúa aftur í ítölsku A-deildina. (Caughtoffside)
Franski framherjinn Mathys Tel (21) gæti óvænt farið frá Tottenham til Bournemouth í sumar. (TeamTalk)
Barcelona hyggst selja spænska miðjumanninn Marc Casado (22) til að fá inn pening til leikmannakaupa. Þýska félagið Bayer Leverkusen og félög úr ensku úrvalsdeildinni eru að fylgjast með honum. (Fichajes)
Leeds United er tilbúið að slá félagsmet með því að kaupa varnarmanninn Ousmane Diomande (22) frá Sporting Lissabon. Félagið hefur gert 35 milljóna punda tilboð í Fílabeinsstrendinginn sem gæti hækkað um 8 milljónir eftir ákvæðum. (Mirror)
Crystal Palace er tilbúið að veita Everton samkeppni um enska miðjumanninn Hayden Hackney (23) hjá Middlesbrough í sumar. Palace ætlar að leggja fram 20 milljóna punda tilboð. (Mail)
Barcelona er meðvitað um áhuga Chelsea og Arsenal á spænska kantmanninum Dani Olmo (28) en mun aðeins láta hann af hendi fyrir 60 milljónir punda. (Fichajes)



