Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
Í BEINNI
Lengjudeild kvenna
Grind/Njarð
48' 1
0
KR
HK
4
1
Selfoss
Jóhann Þór Arnarsson '24 1-0
Tumi Þorvarsson '35 2-0
Dagur Orri Garðarsson '51 3-0
3-1 Sesar Örn Harðarson '84
Jóhann Þór Arnarsson '87 4-1
04.06.2025  -  19:15
Kórinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Bongó og logn inn í Kórnum
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Jóhann Þór Arnarsson
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m) ('9)
2. Kristján Snær Frostason
3. Ívar Orri Gissurarson ('65)
4. Aron Kristófer Lárusson
5. Þorsteinn Aron Antonsson
8. Arnþór Ari Atlason (f) ('46)
9. Jóhann Þór Arnarsson
10. Birnir Breki Burknason
16. Eiður Atli Rúnarsson ('73)
21. Ívar Örn Jónsson
28. Tumi Þorvarsson ('65)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m) ('9)
11. Dagur Orri Garðarsson ('46)
14. Brynjar Snær Pálsson ('73)
15. Haukur Leifur Eiríksson
23. Rúrik Gunnarsson ('65)
29. Karl Ágúst Karlsson ('65)
33. Hákon Ingi Jónsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Halldór Geir Heiðarsson
Guðbjartur Halldór Ólafsson

Gul spjöld:
Karl Ágúst Karlsson ('67)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
HK-ingar hirða stigin þrjú! Jóhann Ingi flautar til leiksloka, sanngjarn sigur HK-inga staðreynd. Viðtöl og skýrsla innan skams.
93. mín
Einar Bjarki með skottilraun við vítateig sem Ólafur ver örugglega í marki heimamanna.
90. mín
Rangstöðumark Selfyssinga Ívan Breki skorar af stuttu færi en flaggaður rangstæður.
88. mín
Karl Ágúst með fast skot sem Blakala ver, Dagur Orri fylgir eftir en flaggaður rangstæður.
87. mín MARK!
Jóhann Þór Arnarsson (HK)
Gerir út um vonir Selfyssinga! Jóhann sker inn á hægri fótinn fyrir utan teig og krullar boltanum snyrtilega í bláhornið, þvílíkt mark og þvílíkur leikur hjá Jóhanni!
85. mín
Gestirnir hóta! Nacho Gil með skot úr teignum sem Ólafur ver vel í hornspyrnu!
84. mín MARK!
Sesar Örn Harðarson (Selfoss)
Sesar minnkar muninn! Sesar hleður í skot langt fyrir utan teig og boltinn syngur í netinu, frábært mark.
Er von fyrir Selfyssinga?
83. mín
Inn:Einar Bjarki Einarsson (Selfoss) Út:Alexander Clive Vokes (Selfoss)
79. mín
Inn:Harley Willard (Selfoss) Út:Frosti Brynjólfsson (Selfoss)
79. mín
Inn:Sesar Örn Harðarson (Selfoss) Út:Elvar Orri Sigurbjörnsson (Selfoss)
79. mín
Inn:Nacho Gil (Selfoss) Út:Aron Lucas Vokes (Selfoss)

78. mín
Alexander Vokes með fínustu tilraun af löngu færi en Ólafur Örn ver örugglega.
73. mín
Inn:Brynjar Snær Pálsson (HK) Út:Eiður Atli Rúnarsson (HK)
72. mín
HK í góðu færi Birnir Breki fær boltann í teignum, kemur sér á skotfótinn en skot hans hittir ekki markið.
70. mín
STÖNGIN! Frábært spil gestanna, langur bolti á Ívan Breka sem battar boltan út á Elvar Orra en skot hans hafnar í stönginni. Selfyssingar hafa fengið færin en virðist fyrirmunað að skora.
68. mín
Eiður Atli með skot af löngu færi en skotið ekki nálægt marki gestanna, lítil hætta.
67. mín Gult spjald: Karl Ágúst Karlsson (HK)
Karl Ágúst ekki lengi að næla sér í gult. Braut tvisvar af sér á skömmum tíma og fer því í bókina góðu.
66. mín
Frosti Brynjars með skot rétt framhjá marki HK, eftir góða sókn gestanna.
65. mín
Inn:Karl Ágúst Karlsson (HK) Út:Tumi Þorvarsson (HK)
65. mín
Inn:Rúrik Gunnarsson (HK) Út:Ívar Orri Gissurarson (HK)
63. mín
Inn:Dagur Jósefsson (Selfoss) Út:Daði Kolviður Einarsson (Selfoss)
62. mín
Daði Kolviður liggur niðri og þarfnast aðhlynningar, leikurinn stopp á meðan. Daði neyðist til að víkja af velli.
60. mín
Lítið að frétta síðustu mínútur, gætu orðið ansi langar 30 mínútur fyrir áhorfendur ef þetta heldur áfram í þessum dúr.
51. mín MARK!
Dagur Orri Garðarsson (HK)
Varamaðurinn setur hann! Jóhann Þór tarfast með boltann við vítateig, boltinn berst á Dag sem lætur vaða og boltinn steinliggur í netinu.

Róðurinn þyngist fyrir gestina.
50. mín
Frosti Brynjólfs sker inn á völlinn og reynir að krulla boltanum í fjær en boltinn framhjá marki HK.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
46. mín
Inn:Dagur Orri Garðarsson (HK) Út:Arnþór Ari Atlason (HK)
Ein breyting í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
+3

Jóhann Ingi flautar til hálfleiks. HK-ingar leiða með tveimur mörkum gegn engu. Selfyssingar byrjuðu betur en HK-ingar sýndu gæðin þegar leið á.
45. mín
Nei Beint í vegginn.
45. mín
Stendur hann undir nafni? HK fær aukaspyrnu á hættulegum stað, aukaspyrnu Ívar gerir sig reiðubúinn.
35. mín MARK!
Tumi Þorvarsson (HK)
TUMI TVÖFALDAR FORYSTUNA! Tumi fær boltann fyrir utan vítateig og á skot/fyrirgjöf sem Þorsteinn Aron nær ekki til og boltinn endar í netinu!

Við fyrstu sín hélt ég að Þorsteinn Aron hefði komið við boltann en miðað við fögnuð Tuma þá hlýtur hann að eiga þetta. Fauk í Tuma þegar Þorsteinn var tilkynntur sem markaskorari í kallkerfinu.
32. mín
Birnir Breki með skalla yfir mark gestanna.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Jóhann Þór með fast skot úr teignum sem fer af varnarmanni og þaðan yfir.
26. mín
Gestirnir ógna Gestirnir fá hornspyrnu, Ólafur Örn missir boltann frá sér og Reynir Freyr er nálægt því að setja boltann í netið en hittir ekki rammann.
24. mín MARK!
Jóhann Þór Arnarsson (HK)
SÁ HEITI! Jóhann Þór fær erfiðan bolta við vítateig, næstum því búinn að missa hann frá sér en kemur sér fram fyrir varnarmann og klárar vel!
HK-ingar brjóta ísinn.
23. mín
Alexander Vokes með skot sem fer framhjá marki heimamanna.
22. mín
Selfyssingar keyra upp í skyndisókn, Ívan Breki tekur skot við teiginn sem fer rétt framhjá marki HK.
17. mín
Þrumuskot Aron Kristófer Lárusson með þrumufleyg sem hafnar rétt yfir marki gestanna.
16. mín
HK-ingar fá sína fyrstu hornspyrnu, boltinn fer í aðra hornspyrnu.
9. mín
Inn:Ólafur Örn Ásgeirsson (HK) Út:Arnar Freyr Ólafsson (HK)
Arnar neyðist til að fara af velli! Óskum honum skjóts bata.

Inn kemur Ólafur Örn, sem elskar að koma liðum upp úr 2. deild.

Ólafur stóð í marki ÍR fyrir tveimur árum og fór upp en í fyrra var hann á láni hjá Völsungi og fór þá aftur upp.
6. mín
Þarf HK að gera markvarðabreytingu? Arnar Freyr Ólafsson liggur niðri og þarfnast aðhlynningar. Sýnist þetta vera ökklinn. Ólafur Örn varamarkvörður gerir sig til.
4. mín
Sterk byrjun Selfyssinga! Alexander Vokes tekur hornspyrnu sem hafnar í stönginni! Hann fær boltann aftur og lætur vaða en skotið rétt framhjá marki heimamanna.

3. mín
Dauðafæri Selfyssinga! Elvar Orri með skalla af stuttu færi en Arnar Freyr ver vel. Selfyssingar hársbreidd frá því að brjóta ísinn!
3. mín
Selfyssingar fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, Jón Vignir tekur en Ívar Orri skallar frá.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! HK-ingar hefja leik!
Fyrir leik
Allt eins og það á að vera! Liðin trítla til vallar, HK lagið í botni og fólk gæðir sér á sælkeraborgurum, nú styttist í þetta!
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi Hermann Hreiðarsson gerir eina breytingu á liði sínu frá sterkum sigri gegn Keflavík. Kristján Snær kemur inn í liðið í stað Dags Inga sem er í leikbanni.

Bjarni Jóhannson gerir tvær breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Inn í byrjunarliðið koma þeir Reynir Freyr og Daði Kolviður. Þeir Nacho Gil og Dagur Jósefsson víkja úr byrjunarliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikurinn í beinni útsendingu hér - Minnum á "Fótbolti.net" kóðann


Mate Dalmay
Fyrir leik
Ásgeir Marteins með skýrslu Ásgeir Marteinsson, fyrrum leikmaður HK er spámaður vikunnar en hann greinir leikinn í tætlur og spáir öruggum sigri HK.

HK 5 - 0 Selfoss
„Þetta er leikur umferðarinnar, vinur minn á frænda sem býr á Selfossi en sá maður ætlar ekki að mæta á leikinn samkvæmt mínum bestu heimildum. HK mun skora 5, Jói Þór byrjar á að hlaupa yfir allan völlinn og skora sláin inn. Haukur Leifur mun fá gult fyrir að fagna því marki of ákaft.“

„Ívar Örn sagði við mig á KFC á sunnudaginn að hann ætlaði skora með hægri í þessum leik, maður verður að trúa því. Þá í seinni hálfleik mun Arnþór Ari skora með öxlinni, Atli Arnars mun skora að skoskum sið því hann er 1/2 Skoti og þá mun Eiður Atli negla síðasta naglann í kistu Selfyssinga. Það mun allt sjóða upp úr eftir leik og Birkir styrkur mun fá rautt fyrir að segja við Bjarna Jó: „talaðu við höndina því andlitið er ekki hlusta", alveg ruglaður þessi gæi.“



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Nýr Atli Þór mætir í Kórinn HK er búið að semja við Atla Þór Gunnarsson, 18 ára gamlan miðjumann sem fékk samningi sínum við Breiðablik rift á dögunum. Atli hefur æft með HK síðustu vikur.

Er hann nafni Atla Þórs Jónassonar sem gekk til liðs við Víking frá HK í vetur, eftir góða dvöl í efri byggðum Kópavogs.

Atli Þór Gunnarsson er fæddur 2006 og kom við sögu í fjórum leikjum með Blikum í Bestu deild karla sumarið 2023. Atli er gjaldgengur strax í kvöld.

Mynd: HK
Fyrir leik
Fjögur gul í fimm leikjum Dagur Ingi Axelsson náði því merka afreki gegn Keflavík að hafa fengið fjögur gul spjöld í fimm leikjum. Hann er því í leikbanni í dag vegna upppsafnaðra spjalda.

Dagur, sem er fæddur árið 2002 gekk til liðs við HK í vetur frá Fjölni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Selfyssingar í brekku - Tapað fjórum í röð Selfoss hóf tímabilið á sterkum sigri gegn Grindavík. Eftir þann sigur hefur leiðin legið niður á við og liðið ekki sótt stig.

Liðið hefur einungis skorað þrjú mörk á tímabilinu, tvö þeirra komu gegn Grindvíkingum í fyrstu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
HK-ingar mæta kokhraustir Sterkur 0-3 útisigur HK á heitum Keflvíkingum gefur liði fólksins eflaust aukið sjálfstraust eftir nokkuð hæga byrjun á mótinu.

Þar fór Jóhann Þór Arnarsson mikinn, gegn sínum gömlu félögum og skoraði tvö mörk, Tumi Þorvarsson, betur þekktur sem köngulóarmaðurinn, innsiglaði svo sigurinn undir lok leiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hlýjan heilsar! Heilir og sælir lesendur góðir. Verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá heimavelli hlýjunnar, Kórnum. Hér í kvöld fær HK lið Selfyssinga í heimsókn í 6. umferð Lengjudeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Robert Blakala (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson
3. Reynir Freyr Sveinsson
5. Jón Vignir Pétursson (f)
6. Daði Kolviður Einarsson ('63)
11. Alfredo Ivan Sanabria
15. Alexander Clive Vokes ('83)
20. Elvar Orri Sigurbjörnsson ('79)
21. Frosti Brynjólfsson ('79)
28. Eysteinn Ernir Sverrisson
32. Aron Lucas Vokes ('79)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
7. Harley Willard ('79)
10. Nacho Gil ('79)
16. David Adam Dabrowski
18. Dagur Jósefsson ('63)
25. Sesar Örn Harðarson ('79)
77. Einar Bjarki Einarsson ('83)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Bjarni Jóhannsson (Þ)
Ingi Rafn Ingibergsson
Þorkell Ingi Sigurðsson
Aron Fannar Birgisson
Heiðar Helguson
Halldór Rafn Halldórsson
Raúl Tanque

Gul spjöld:

Rauð spjöld: