Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Villa vill Sancho - Liverpool klárt með arftaka ef Díaz fer
Powerade
Sancho
Sancho
Mynd: EPA
Luis Díaz orðaður í burtu.
Luis Díaz orðaður í burtu.
Mynd: EPA
Aston Villa sýnir Jadon Sancho áhuga, Newcastle er með James Trafford efstan á óskalista og Liverpool íhugar að reyna við Anthony Gordon. Þetta og miklu fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur saman það helsta í slúðrinu og samantektin er í boði Powerade.



Aston Villa er nýjasta félagið til að sýna Jadon Sancho (25) áhuga. Vængmaðurinn er samningsbundinn Man Utd og er að snúa aftur til Manchester eftir lánsdvöl hjá Chelsea. (Teamtalk)

Newcastle hefur gert markmanninn James Trafford (22) hjá Burnley að sínu aðalskotmarki í sumar. (Times)

Liverpool er ekki að reyna selja Luis Diaz (28) og hefur ekki fengið tilboð í vængmanninn þrátt fyrir áhuga frá Barcelona og Al-Nassr. (Times)

Ef Diaz fer, þá gæti Liverpool horft í Anthony Gordon (24) vængmann Newcastle sem metinn er á 80 milljónir punda. (Teamtalk)

Liverpool gæti einnig barist um Benjamin Sesko (22) framherja RB Leipzig en Arsenal er að reyna fá hann og líkur á 67 milljóna punda tilboði. (TBR)

Harvey Elliott (22) er líklegur til að fara í ítölsku Seríu A ef enski miðjumaðurinn fer frá Liverpool í sumar. (Football Insider)

Everton þarf að greiða 40 milljónir evra til að fá Thierno Barry (22) framherja Villarreal. (Teamtalk)

Chelsea er ekki tilbúið að greiða uppsett verð, 25 milljónir punda, fyrir Mike Maignan (29) markmann AC Milan. (Standard)

Brentford mun horfa til Ipswich og í Kieran McKenna ef Thomas Frank fer og tekur við Tottenham af Ange Postecoglou (Football Insider)

West Ham hefur sett sig í samband við Club Brugge um kaup á miðjumanninum Raphael Onyedika (24) (TBR)

Man City og Barcelona hafa lýst yfir áhuga á Max Dowman (15) miðjumanni Arsenal. (FootballTransfers)
Athugasemdir
banner
banner