Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
Fylkir
1
2
Leiknir R.
0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson '21
0-2 Þorsteinn Emil Jónsson '59
Þóroddur Víkingsson '62 1-2
04.06.2025  -  19:15
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Djorde Vladisavljevic, Leiknir
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Arnór Breki Ásþórsson ('60)
5. Orri Sveinn Segatta
7. Tumi Fannar Gunnarsson
9. Eyþór Aron Wöhler ('71)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('60)
11. Pablo Aguilera Simon
17. Birkir Eyþórsson ('60)
19. Arnar Númi Gíslason
77. Bjarki Steinsen Arnarsson ('60)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
6. Þorkell Víkingsson
13. Þórður Ingi Ingimundarson ('60)
14. Þóroddur Víkingsson ('60)
15. Axel Máni Guðbjörnsson ('60)
20. Theodór Ingi Óskarsson ('60)
34. Guðmar Gauti Sævarsson ('71)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Daði Ólafsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Sævar Snær Pálsson
Ólafur Engilbert Árnason

Gul spjöld:
Tumi Fannar Gunnarsson ('32)
Ásgeir Eyþórsson ('77)
Theodór Ingi Óskarsson ('96)

Rauð spjöld:
@haflidib Hafliði Breiðfjörð
Skýrslan: Það ræður ekki kasti kylfa ef þú kíkir á leik með Gústa Gylfa
Hvað réði úrslitum?
Leiknismenn voru klókir og áttuðu sig á því að þeir voru litla liðið í leiknum í dag þrátt fyrir að bæði lið hafi byrjað illa. Þegar þeir komust yfir fóru þeir strax að tefja og nýttu hvert einasta augnablik til að ganga á klukkuna, hvort sem það var að vera lengi að taka innköst, markspyrnur, liggja meiddir eða þurfa óvænt að reima. Klókara liðið vann leikinn í dag og ljóst að handbragð Ágústar Gylfasonar er fljótt að komast á liðið. Hann tók við liðinu 15:30 í gær og fyrsti sigurinn er strax kominn í hús.
Bestu leikmenn
1. Djorde Vladisavljevic, Leiknir
Algjörlega magnaður í vörn Leiknisliðsins í dag. Henti sér hvað eftir annað fyrir boltann og kom í veg fyrir að Ólafur Íshólm í markinu hefði of mikið að gera. Trompaði svo leik sinn með frábærri vörslu á lokasekúndunni þegar hann varði frá Theódóri Óskarssyni sem var kominn einn í gegn eftir að hafa skilið Dusan eftir í rykinu.
2. Axel Freyr Harðarson, Leiknir
Ég var svolítið tregur til að gefa honum að vera næstbestur enda var Axel Freyr lengi vel ekkert spes í leiknum. Þegar leið á leikinn, og flestir menn í hans stöðu ættu að vera að þreytast, óx honum ásmegin og í tvígang sólaði hann fjóra og kom boltanum fyrir markið. Í fyrra skiptið skilaði það stoðsendingu að seinna markinu sem varð sigurmarkið í leiknum. Virkilega vel gert.
Atvikið
Á lokaandartökum leiksins slapp Theódór Ingi Óskarsson í gegnum vörn Leiknis, fór illa með Dusan Brkovic og var kominn að því að skjóta á markið þegar Djorde kom á fleygiferð, henti sér fyrir boltann og bjargaði í horn. Fylkismenn vildu fá hendi víti en það var aldrei að fara að gerast.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn sóttu sinn fyrsta sigur í sumar og sáu kannski að það er vel hægt að snúa genginu við þrátt fyrir að hafa fengið sex mörk á sig tvo leiki í röð. Þeir lyfta sér ekki bara uppúr botnsætinu heldur úr fallsæti og í 10. sætið með fyrsta sigri sumarsins. Fylkir, liðið sem átti að rúlla yfir þessa deild er bara einu sæti, og einu stigi, fyrir ofan Leikni og hefur valdið miklum vonbrigðum í sumar. Það var fátt sem gladdi augað og ljóst að verkefni Árna Freys Guðnasonar þjálfara er ærið að taka til og laga. Varnarleikurinn er oft á tíðum hörmung og liðið á í miklu basli með að skora mörk.
Vondur dagur
Eyþór Wöhler er fenginn í Fylki sem stjörnuleikmaður, framherji sem ætti að vera í Bestu-deildinni en velur að taka slaginn í Lengjudeildinni. Það á að vera krafa að svoleiðis framherji raði inn mörkunum og sér skemmtikraftur sem eftir er tekið. Eyþór gerði ekkert í þessum leik frekar en fyrri leikjum í sumar. Hann fær að spila mikið og er með 0 mörk í 6 leikjum. Það er bara dapurt.
Dómarinn - 9
Það er gaman að sjá að í fríi Bestu-deildarinnar séu bestu dómarar landsins að taka leiki í Lengudeildinni. Helgi Mikael dæmdi leikinn í dag óaðfinnanlega. Var fljótur að spjalda Leiknismenn fyrir að tefja strax á 25. mínútu, leyfði minni brot á báða bóga sem er jú mun skemmtilegra en stöðugt flaut og stýrði leiknum vel. Kórónaði svo leik sinn með lokaatvikinu þegar Djorde varðist Theódóri í lokin og sá það sem var rétt, það var engin hendi! Frábær frammistaða.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
3. Bogdan Bogdanovic ('67)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
8. Sindri Björnsson ('87)
10. Shkelzen Veseli ('67)
19. Axel Freyr Harðarson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
25. Dusan Brkovic
43. Kári Steinn Hlífarsson ('54)
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Hilmar Örn Pétursson (m)
4. Patryk Hryniewicki
6. Jón Arnar Sigurðsson ('67)
7. Róbert Quental Árnason ('67)
14. Davíð Júlían Jónsson
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('54)
44. Aron Einarsson ('87)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Nemanja Pjevic (Þ)
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Ósvald Jarl Traustason
Ari Þór Kristinsson
Halldór Fannar Júlíusson
Konráð Grétar Ómarsson

Gul spjöld:
Anton Fannar Kjartansson ('25)
Sindri Björnsson ('32)
Axel Freyr Harðarson ('49)
Þorsteinn Emil Jónsson ('61)

Rauð spjöld: