
Viktor Gyökeres er opinn fyrir því að endurnýja kynnin við Ruben Amorim hjá Manchester United, Arsenal horfir til Morgan Rogerrs og Igor Paixo, Tottenham þarf að greiða Ange Postecoglou ef hann verður látinn fara.
Þetta og miklu fleira í slúðurpakka dagsins sem BBC tekur saman og er í boði Powerade.
Þetta og miklu fleira í slúðurpakka dagsins sem BBC tekur saman og er í boði Powerade.
Viktor Gyökeres (27) framherji Sporting er opinn fyrir því að endurnýja kynnin við Ruben Amorim hjá Manchester United. (Talksport)
Arsenal hefur bætt Morgan Rogers (22) og Igor Paixao (24) hjá Feyenoord á óskalistann í sumar. (Times)
Brentford hafnaði fyrsta tilboði Man Utd í Bryan Mbeumo (25) sem hljóðaði upp á 55 milljónir punda. Brentford vill yfir 60 milljónir punda. (Independent)
Fjórar milljónir punda er upphæðin sem Tottenham þarf að greiða Ange Postecoglou (59) ef hann verður látinn fara. (Telegraph)
Manor Solomon (25) gæti fengið annað tækifæri hjá Spurs eftir góða lánsdvöl hjá Leeds á tímabilinu. (Sun)
Jamie Gittens (20), vængmaður Dortmund, er efstur á óskalista Chelsea þetta sumarið. (Sky Sports)
Erik ten Hag er að fylgjast með stöðunni á Antony (25) vængmanni Man Utd. Ten Hag er nýtekinn við Leverkusen. (Sky í Þýskalandi)
Al Hilal hefur boðið 55 milljónir punda og fjórar milljónir til viðbótar í bónusgreiðslur í Victor Osimhen framherja Napoli. (Fabrizio Romano)
Rayan Ait-Nouri (23) vinstri bakvörður er nálægt því að ganga í raðir Man City frá Wolves. (ESPN)
Joao Palhinha (29) fékk ekki að spila mikið hjá Bayern Munchen á síðasta tímabili. Hann er opinn fyrir því að vera áfram en gæti frið ef staðan breytist ekki. (Sky Sports)
Arsenal hefur áhuga á Rodrygo (24) vængmanni Real Madrid. (Sky Sports)
Francesco Acerbi (37) miðvörður Inter gæti elt Simone Inzaghi til Al-Hilal í Sádi-Arabíu. (Florian Plettenberg)
Christian Chivu er að taka við af Inzaghi hjá Inter. (Sky á Ítalíu)
Ivan juric, fyrrum stjóri Roma og Southampton, er sagður líklegur til að taka við Atalanta. (Sky á Ítalíu)
Man Utd undirbýr annað tilboð í Bryan Mbeumo. (Daily Mail)
Luis Díaz (28) vængmaður Liverpool er opinn fyrir því að fara til Barcelona. (Mundo Deportivo)
Athugasemdir