Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
Vináttulandsleikur
Skotland
45' 1
2
Ísland
Besta-deild kvenna
Tindastóll
79' 2
2
Valur
Lengjudeild kvenna
ÍBV
75' 1
0
Keflavík
Grind/Njarð
3
1
KR
Brookelynn Paige Entz '38 1-0
Ása Björg Einarsdóttir '70 2-0
Tinna Hrönn Einarsdóttir '83 3-0
3-1 Maya Camille Neal '91
05.06.2025  -  19:15
JBÓ völlurinn
Lengjudeild kvenna
Dómari: Tomasz Piotr Zietal
Byrjunarlið:
1. María Martínez López (m)
5. Brookelynn Paige Entz
6. Emma Nicole Phillips ('74)
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir
11. Eydís María Waagfjörð
16. Viktoría Sól Sævarsdóttir (f) ('87)
18. Ása Björg Einarsdóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir
23. Júlía Rán Bjarnadóttir
24. Danai Kaldaridou ('67)
31. Krista Sól Nielsen
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
2. Kamilla Ósk Jensdóttir
4. Rakel Rós Unnarsdóttir ('87)
7. Dröfn Einarsdóttir ('74)
9. Anna Rakel Snorradóttir
12. Þórunn Elfa Helgadóttir
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir ('67)
21. Birta Eiríksdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ)
Rósa Björk Borgþórsdóttir
Armandas Leskys
Alexander Birgir Björnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Grindavík/Njarðvík fer með flottan sigur af hólmi hér í kvöld gegn KR.

91. mín MARK!
Maya Camille Neal (KR)
Flottur bolti inn á teiginn finnur Mayu Camille Neal og hún þrumar knettinum í netið.

Sennilega bara sárabótarmark.
89. mín
Grindavík/Njarðvík varist KR liðinu vel og haldið þeirra sóknarvopnum vel í skefjum.
87. mín
Inn:Rakel Rós Unnarsdóttir (Grind/Njarð) Út:Viktoría Sól Sævarsdóttir (Grind/Njarð)
83. mín MARK!
Tinna Hrönn Einarsdóttir (Grind/Njarð)
Tinna Hrönn að ganga frá þessu fyrir Grindavík/Njarðvík Fær boltann og enn eftir að gera helling. Skýlir boltanum vel og notar styrk sinn til að halda varnarmanni KR frá og hleður svo í fast skot sem var óverjandi fyrir Matthildi Eygló í marki KR.
80. mín
Ása Björk með mikilvæga tæklingu þegar Lina Berrah var við það að komast í frábært færi.
79. mín
Inn:Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir (KR) Út:Íris Grétarsdóttir (KR)
79. mín
Inn:Koldís María Eymundsdóttir (KR) Út:Þórey Björk Eyþórsdóttir (KR)
78. mín
Varsla! KR með flotta sókn og Þórey Björk fær gott færi ein á móti Maríu López sem lokar vel á hana.
74. mín
Inn:Dröfn Einarsdóttir (Grind/Njarð) Út:Emma Nicole Phillips (Grind/Njarð)
73. mín
Emma Nicole Philips liggur eftir og þarf að fara útaf líklega.
70. mín MARK!
Ása Björg Einarsdóttir (Grind/Njarð)
Grindavík/Njarðvík tvöfaldar! Ása Björg Einarsdóttir með frábæra pressu og frábært mark!

Vinnur tvö návígi og keyrir í átt að marki. Flestir búast við fyrirgjöf fyrir markið en hún kemur með lúmska laumu á nær sem sigrar Matthildi Eygló!
Hvort þetta hafi verið ætlunin eða vindurinn hjálpað þá kemur það út á því sama og Grindavík/Njarðvík tvöfalda!
68. mín
Katla reynir skot sem fer beint í fangið á Maríu López.
67. mín
Inn:Tinna Hrönn Einarsdóttir (Grind/Njarð) Út:Danai Kaldaridou (Grind/Njarð)
62. mín
Brookelynn Entz með tilraun utan af velli beint á Matthildi Eygló.
61. mín
Fyrirgjöf fyrir mark Grindavík/Njarðvík dettur ofan á þaknetið. María López var ekki róleg yfir þessu.
57. mín
Grindavík/Njarðvík fær aukaspyrnu rétt við vítateigshornið.

Danai Kaldaridou lyftir boltanum yfir markið.
50. mín
Makayla Soll með frábæran snúning, snýr af sér tvær í liði Grindavík/Njarðvík og á skot sem fer rétt framhjá.
48. mín
Þórey Björk með fyrirgjöf sem María López grípur vel inn í.
46. mín
Grindavík/Njarðvík sparkar þessu af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Grindavík/Njarðvík leiða í hálfleik!

Heilt yfir verið mjög jafn leikur og liðin ekki verið að gefa mörg færi á sér.

Fáum vonandi hörku seinni hálfleik en tökum okkur stutta pásu.
43. mín
Brookelynn Entz allt í öllu sóknarlega hjá Njarðvík.
38. mín MARK!
Brookelynn Paige Entz (Grind/Njarð)
Stoðsending: Eydís María Waagfjörð
Grindavík/Njarðvík tekur forystu! Frábær skipting hjá heimakonum yfir á hægri vænginn þar sem Eydís María tekur vel á móti honum og æðir í átt að teignum og á svo frábæran bolta fyrir markið sem finnur Brookelynn Entz eina á fjærstönginni fyrir 'easy tap in'.

GRINDAVÍK/NJARÐÍK LEIÐA!
37. mín
Færi! Brookelynn Entz sleppur ein í gegn en Maya Camille Neal gerir frábærlega að elta hana uppi og á svo hárnákvæma tæklingu sem bjargar þessu í horn fyrir KR!
33. mín
Lina Berrah í góðu færi en skotið af varnarmanni og lyftist rétt framhjá.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Grindavík/Njarðvík með aukaspyrnu inn á teig KR en Matthildur Eygló kemur vel út og grípur boltann.
23. mín
Maya Camille Neal sýndist mér það vera sem náði skalla að marki eftir horn en María López grípur boltann.
19. mín
Grindavík/Njarðvík skorar en flaggið á loft Danai Kaldaridou með flotta aukaspyrnu inn á teig og þar mætir Brookelynn Entz og nær að setja boltann í netið en flaggið fór á loft.
16. mín
Krista Sól með tilraun framhjá markinu.

Bæði lið verið að komast í álitlegar stöður í upphafi leiks.
9. mín
Makayla Soll með góða tilraun en María López ver þetta.

KR fær horn sem Grindavík/Njarðvík kemur burt.
7. mín
Eydís María með flottan sprett en skotið í varnarmann og afturfyrir.
3. mín
Brookelynn Entz að sleppa í gegn en flaggið á loft.
1. mín
Þórey Björk með tilraun framhjá markinu.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir sem byrja með boltann
Fyrir leik
Dómarateymið Tomasz Piotr Zietal heldur utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Ram Krishna Gurung og Ásbjörn Sigþór Snorrason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík Heimakonur hafa farið flott af stað og sitja í 3.sætinu með tíu stig. Þær sóttu góðan sigur gegn Haukum í síðustu umferð 1-2.

Mynd: Grindavík

Fyrir leik
KR KR hafa átt öfluga byrjun og sitja í 4.sætinu með tíu stig. Þær hafa bara tapað einum leik í upphafi móts en sá leikur var gegn toppliði ÍBV.
Í síðustu umferð unnu þær góðan sigur á Fylki 3-1.

Mynd: Mummi Lú

Fyrir leik
Staðan í Lengjudeild kvenna Þegar fimm umferðir eru búnar lítur staðan svona út í deildinni:

1.ÍBV - 12 stig
2.HK - 12 stig
3.Grindavík/Njarðvík - 10 stig
4.KR - 10 stig
5.Grótta - 6 stig
6.Fylkir - 6 stig
7.Haukar - 6 stig
8.ÍA - 5 stig
9.Keflavík - 5 stig
10.Afturelding - 0 stig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heil og sæl! Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Grindavík/Njarðvík - KR í Lengjudeild kvenna sem fram fer á JBÓ vellinum í Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Matthildur Eygló Þórarinsdóttir (m)
6. Emilía Ingvadóttir (f)
7. Kara Guðmundsdóttir
9. Anna María Bergþórsdóttir
10. Katla Guðmundsdóttir
12. Íris Grétarsdóttir ('79)
14. Maya Camille Neal
18. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
19. Lina Berrah
20. Makayla Soll
21. Þórey Björk Eyþórsdóttir ('79)
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
29. Helena Sörensdóttir (m)
3. Anna Björk Kristjánsdóttir
8. Kristín Anna Smári
11. Aníta Björg Sölvadóttir
13. Koldís María Eymundsdóttir ('79)
15. Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir ('79)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Einarsson (Þ)
Ívar Ingimarsson (Þ)
Sigurpáll Sören Ingólfsson
Bergþór Snær Jónasson
Hildur Guðný Káradóttir
Sigurður Örn Jónsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: