Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
ÍBV
1
1
Keflavík
Lilja Kristín Svansdóttir '10 1-0
1-1 Anita Lind Daníelsdóttir '86
06.06.2025  -  18:00
Þórsvöllur Vey
Lengjudeild kvenna
Dómari: Konráð Garðar Guðlaugsson
Maður leiksins: Anna Arnarsdóttir
Byrjunarlið:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
5. Avery Mae Vanderven (f)
7. Edda Dögg Sindradóttir ('89)
8. Lilja Kristín Svansdóttir ('63)
10. Kristín Klara Óskarsdóttir
11. Helena Hekla Hlynsdóttir
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
17. Viktorija Zaicikova ('71)
20. Allison Patricia Clark
35. Allison Grace Lowrey ('71)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Ísey María Örvarsdóttir (m)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir ('71)
3. Ísafold Dögun Örvarsdóttir
9. Milena Mihaela Patru ('63)
15. Magdalena Jónasdóttir
19. Erla Hrönn Unnarsdóttir ('71)
24. Tanja Harðardóttir ('89)
- Meðalaldur 16 ár

Liðsstjórn:
Jón Ólafur Daníelsson (Þ)
Sigríður Lára Garðarsdóttir
Guðmundur Tómas Sigfússon
Björgvin Eyjólfsson
Guðrún Ágústa Möller
Kristian Barbuscak

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum lýkur með jafntefli. Eyjakonur voru heilt yrir mun sterkari í þessum leik og hefðu getað verið búnar að loka honum. Keflavík hættu hins vegar aldrei og börðust alveg til loka og náðu að uppskera með góðu marki frá Anítu Lind beint úr aukaspyrnu. Ég þakka fyrir mig. Skýrsla kemur inn síðar.
96. mín
ÍBV fær aukaspyrnu æa hættulegum stað. Kristín Klara tekin niður.
93. mín
ÍBV Í DAUÐAFÆRI Milena í dauðafæri ein gegn Önnu í marki Keflavíkur. En þetta var algjörlega frábærlega varið hjá henni. Boltinn virtist fara í höndina á varnarmanni Keflavíkur og Eyjakonur vildu víti en ég sá þetta ekki nægilega vel.
90. mín
Við erum komin í uppbótartíma.
89. mín
Inn:Tanja Harðardóttir (ÍBV) Út:Edda Dögg Sindradóttir (ÍBV)
89. mín Gult spjald: Ariela Lewis (Keflavík)
88. mín
ÍBV fær aukaspyrnu. Allison Clark tekin niður. Sandra tekur spyrnuna en hún er slök beint í vegginn og veggurinn var einn leikmaður!!!
87. mín Gult spjald: Emma Kelsey Starr (Keflavík)
86. mín MARK!
Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
Aníta Lind að jafna fyrir Keflavík!! Þær skora úr spyrnunni. Aníta Lind með frábæra spyrnu. Setur hann vinstra megin niðri við Guðnýju. Allt orðið jafnt hérna á Þórsvelli!
83. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á hættulegum stað.
82. mín
María Rán með fínan sprett hægra megin og reynir að koma boltanum fyrir en Eyjakonur hreinsa burt.
82. mín
Ariela með lúmskt skot en Guðný er vel á verði og handsamar boltann.
79. mín
Inn:María Rán Ágústsdóttir (Keflavík) Út:Marín Rún Guðmundsdóttir (Keflavík)
78. mín
Olga með frábæra sendingu í geng á Allison Clark en hún skýtur í hliðarnetið.
75. mín
ALLISON CLARK!! Allison með frábært skot fyrir utan teig en boltinn smellur í slánni, niður og út. Þetta hefði verið sturlað mark!!
73. mín
Emma Kelsey með fínan sprett upp vinstra megin og nær að koma boltanum á Arileu. Hún finnur Marín fyrir utan teig ÍBV en skotið er slakt og þær ná ekki að gera sér mat úr þessu.
71. mín
Inn:Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV) Út:Viktorija Zaicikova (ÍBV)
71. mín
Inn:Erla Hrönn Unnarsdóttir (ÍBV) Út:Allison Grace Lowrey (ÍBV)
70. mín
Inn:Hilda Rún Hafsteinsdóttir (Keflavík) Út:Anita Bergrán Eyjólfsdóttir (Keflavík)
68. mín
Olga tók hornið. Flott spyrna sem ratar beint á kollinn á Avery en hún stangar boltann yfir markið.
67. mín
Horn fyrir ÍBV Milena fær boltann úti hægra megin og reynir að komast fram hjá varnarmanni Keflavíkur en hún nær að setja boltann í horn.
66. mín
ÍBV fær aukaspyrnu.
63. mín
Inn:Milena Mihaela Patru (ÍBV) Út:Lilja Kristín Svansdóttir (ÍBV)
62. mín
Allison Lowrey með skot fyrir utan teig en Anna á ekki í vandræðum með það.
60. mín
Inn:Olivia Madeline Simmons (Keflavík) Út:Elfa Karen Magnúsdóttir (Keflavík)
58. mín
Olga sloppin í gegn og reynir að senda boltann yfir á Lilju Kristínu en Anna er fyrst á boltann. Olga hefði hæglega getað bara klárað þetta sjálf.
57. mín
Emma Keley með frábæra fyrirgjöf inn á teig ÍBV beint á Anítu Bergrán. Hún reynir skot í fyrsta en það er léleg og yfir markið. Hefði líklega bara getað tekið boltann niður þarna.
55. mín
Guðný með langa sendingu fram beint á Olgu vinstra megin. Hún köttar inn og reyndir fyrirgjöf en það er beint á Önnu í marki Keflavík.
54. mín
Olga með skot langt utan af velli en það er hátt yfir,
51. mín
Keflavík fær aukaspyrnu Aníta Lind með frábærarn bolta inn á teig ÍBV. Ariela nær skallanum en hann er framhjá.
49. mín Gult spjald: Aron Elís Árnason (Keflavík)
48. mín
Dauðafæri!! Elfa Karen með góðan snúning og kemur með góða sendingu í gegn á Emmu Kelsey. Hún keyrir svo inn á markið og sendir á Arielu sem er á fjær en sendingin er aðeins of löng. Frábærlega spilað hjá Keflavík.
45. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
Dómarinn er búinn að flauta til hálfleiks. Eyjakonur hafa verið sterkari aðilinn hérna en Keflavík hafa unnið sig ágætlega vel inn í leikinn en hafa ekki skapað nein dauðafæri.
44. mín
ÍBV fær aukaspyrnu Allison Lowrey kemst á sprettinn og er tekin niður. Allskonar í gangi inn á teig Keflavíkur eftir aukaspyrnuna, Eyjakonur vilja víti, en á endanum berst boltinn til Victoriju en Anna ver frá henni.
42. mín
Ariela með skot hátt yfir markið.
40. mín
Horn Marín tekur vel á móti boltanum og kemur honum á Arielu sem vinnur horn fyrir Keflavík. Boltann fer ofan á slánna úr horninu og aftur fyrir.
39. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á fínum stað. Spyrnan er ömurleg og fer beint aftur fyrur. Aníta Lind með spyrnuna.
33. mín
Eyjakonur fá horn. Olga með fyrirgjöf sem Salóme náði að blokka og koma í horn.
32. mín
Ariela með fyrirgjöf inn á teig ÍBV en Guðný grípur boltann.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Ariela gerir frábærlega. Eltir upp sendingu í gegn og boltinn virðist vera á leiðinni en útaf en hún nær að halda honum inná. Boltinn berst svo til Marínar en vörn ÍBV nær að blokka skotið og koma boltanum burt.
28. mín
Allison Lowrey sleppur í gegn og reynir að leggja boltann á Olgu en Kristrún nær að koma boltanum í burtu.
27. mín
Keflavík ná upp ágætis spilkafla og boltinn berst út til vinstri á Arielu en hún er flögguð rangstæð. Mjög klaufalegt hjá henni.
24. mín
Keflavík fær aukaspyrnu. Ariela er tekin niður. Aníta lind með spyrnuna en hún var ekki nægilega góð og Eyjakonur ná að hreinsa
22. mín
Hætta inn á teig Keflavíkur eftir hornspyrnu en þær ná að hreinsa í burtu.
18. mín
Ariela Lewis reynir sendinguna í gegn á Marín Rún en alltof löng sending.
16. mín
Keflavík með aukaspyrnu. Kom fyrirgjöf inn á teig ÍBV en þær eru dæmdar brotlegar.
13. mín
Aukaspyrna Eyjakonur fá aukaspyrnu á fínum stað. Olga tók spyrnuna en Keflavík hreinsa í horn.
10. mín MARK!
Lilja Kristín Svansdóttir (ÍBV)
Stoðsending: Allison Grace Lowrey
1-0!! Fyrsta markið er komið. Allison Clark á góða stungusendingu í gegn á nöfnu sína Allison Lowrey sem gerir frábærlega í stað þess að skjóta sjálf leggur hún boltann til hliðar og Lilja þarf bara að koma boltanum yfir línuna. Frábært spil hjá Eyjakonum.
8. mín
Marín Rún með frábæra fyrirgjöf inn á teig ÍBV og boltinn berst á Elfu en hún kemur með frekar slakt skot beint á Guðnýju.
7. mín
Olga kom með boltann á nær úr horninu beint á Viktoriju en skot hennar er yfir.
6. mín
Horn Allison gerir aftur og kemur með fyrirgjöf en boltinn fer nánast inn en Anna herir aftur vel og nær að blaka boltanum aftur fyrir.
3. mín
Færi Allison Clark með frábæran sprett, fer fram hjá tveimur Keflvíkingum og nær skoti á markið en Anna lokar vel markinu og ver boltann út í teiginn. Boltinn berst á Viktoriju en þær næ að hreinsa.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið í gang. Eyjakonur byrja með boltann.
Fyrir leik
Velkomin á Þórsvöll - lokaleikur umferðarinnar. Góðan daginn lesendur kærir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik ÍBV og Keflavíkur í 6. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram á Þórsvelli í Vestmannaeyjum. Um færðan leik er að ræða, upphaflega átti að spila þennan leik í gær.

ÍBV er fyrir leikinn með tólf stig og hefur unnið fjóra leiki í röð. Keflavík er með fimm stig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið:
1. Anna Arnarsdóttir (m)
7. Emma Kelsey Starr
8. Anita Bergrán Eyjólfsdóttir ('70)
9. Marín Rún Guðmundsdóttir ('79)
10. Mia Angelique Ramirez
11. Kristrún Ýr Holm (f)
20. Brynja Arnarsdóttir
22. Salóme Kristín Róbertsdóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir
34. Ariela Lewis
77. Elfa Karen Magnúsdóttir ('60)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
31. Vala Björk Jónsdóttir (m)
6. Kamilla Huld Jónsdóttir
14. Kara Petra Aradóttir
15. Olivia Madeline Simmons ('60)
18. Hilda Rún Hafsteinsdóttir ('70)
21. María Rán Ágústsdóttir ('79)
30. Ragnheiður Júlía Rafnsdóttir
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir (Þ)
Amelía Rún Fjeldsted
Aron Elís Árnason
Ragnar Steinarsson
Óskar Ingi Víglundsson
Hanna Kallmaier

Gul spjöld:
Aron Elís Árnason ('49)
Emma Kelsey Starr ('87)
Ariela Lewis ('89)

Rauð spjöld: