Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
Valur
2
1
Þróttur R.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir '21 1-0
1-1 Freyja Karín Þorvarðardóttir '66
Nadía Atladóttir '85 2-1
11.06.2025  -  19:30
N1-völlurinn Hlíðarenda
Mjólkurbikar kvenna
Aðstæður: Ljómandi góðar til knattspyrnuiðkunnar.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Þórdís Elva Ágústsdóttir (Þróttur R)
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
5. Bryndís Eiríksdóttir
6. Natasha Anasi
7. Elísa Viðarsdóttir (f)
10. Berglind Rós Ágústsdóttir
13. Nadía Atladóttir
14. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir ('86)
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir
30. Jordyn Rhodes ('83)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
20. Björk Björnsdóttir (m)
3. Sóley Edda Ingadóttir
17. Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('86)
24. Auður Björg Ármannsdóttir
26. Ása Kristín Tryggvadóttir
27. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('83)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Kristján Guðmundsson (Þ)
Jóhann Emil Elíasson
María Hjaltalín
Fjalar Þorgeirsson
Anna Sóley Jensdóttir
Jónas Breki Kristinsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur er komið í undanúrslitin Helgi Mikael flautar til leiksloka. Valur vinnur þennan 2-1 en það má alveg segja gegn gangi leiksins en það eru víst mörkin sem telja í þessu sporti.

Takk fyrir mig í dag.
90. mín
Fimm mínútum bætt við
89. mín
VÁ TINNA BRÁ MAGNÚSDÓTTIR Þórdís fær boltann rétt fyrir utan vítateig, boltinn var á leiðinni í samskeytin en Tinna Brá með frábæra vörslu.
86. mín
Inn:Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (Þróttur R.) Út:Freyja Karín Þorvarðardóttir (Þróttur R.)
86. mín
Inn:Arnfríður Auður Arnarsdóttir (Valur) Út:Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
85. mín MARK!
Nadía Atladóttir (Valur)
Stoðsending: Elísa Viðarsdóttir
ÞÆR REFSA!!!! Elísa fær boltann hátt upp á vellinum hægra megin fær allan tíman í heiminum og á frábæran bolta inn á hættusvæðið þar sem Nadía mætir og klárar frábærlega framhjá Mollee.

Þetta kemur gegn gangi leiksins verð ég að segja.

2-1!
84. mín
Það liggur mark í loftinu hjá gestunum Frábært spil hjá gestunum sem endar með því að Freyja fær boltann en skot hennar beint á Tinnu Brá.
83. mín
Inn:Helena Ósk Hálfdánardóttir (Valur) Út:Jordyn Rhodes (Valur)
80. mín
Þróttarastúlkur eiga að vera komnar yfir Ísabella og Kate leika sér eitthvað til skiptis með boltann inn við teig Vals sem endar með því að Kate á skot sem Tinna Brá ver.

Þróttararnir liggja á Valstúlkum þessa stundina.
78. mín
Þróttur fær hornspyrnu.
75. mín
Inn:Brynja Rán Knudsen (Þróttur R.) Út:Caroline Murray (Þróttur R.)
72. mín
Hvernig skoraði Þróttur ekki þarna?? Þórdís Eva fær boltann og keyrir af stað, notar Ísabellu sem batta og fær boltann inn á teignum, leikur á Natöshu áður en hún á skot sem fer rétt framhjá.

Dauðafæriiii
66. mín MARK!
Freyja Karín Þorvarðardóttir (Þróttur R.)
Stoðsending: Caroline Murray
Þróttur er að jafna hér leikinnn!! Caroline Murray gerir gríðarlega vel úti hægramegin og labbar framhjá Bryndísi og setur boltann inn á teiginn. Boltinn dettur fyrir fætur Freyju sem klárar færið frábærlega.

Allt jafnt á Hlíðarenda!
64. mín
Valur fær aukaspyrnu á miðjum valarhelmingi Þróttar. Fanndís tekur spyrnuna en boltinn rúllar afturfyrir.
60. mín
Inn:Ísabella Anna Húbertsdóttir (Þróttur R.) Út:Unnur Dóra Bergsdóttir (Þróttur R.)
55. mín
Caroline fær boltann hægramegin við vítateig Vals og nær lúmsku skoti en boltinn rétt framhjá.
51. mín
Brotið á Sóleyju og Þróttur fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Vals.

Boltinn beint í hendurnar á Tinnu.
46. mín
Síðari hálfleikurinn farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur á Hlíðarenda Helgi Mikael flautar til hálfleiks. Mark Ragnheiðar Þórunnar skilur liðin af inn til búningsherbegja.

Tökum okkur korter.
45. mín
Tvær mínútur í uppbótartíma Það eru að minnsta kosti tveimur mínútum bætt við þennan fyrri hálfleik.
43. mín
Þórdís Eva fær boltann fyrir utan og lætur vaða en boltinn yfir markið.
41. mín
Rosa lítið að frétta Það er nánast ekkert í gangi inn á vellinum þessa stundina.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Nadía setur boltann í netið Fær boltann innfyrir frá Berglindi og fær tíma til að klára færið en þá kemur flaggið á loft og þetta mark telur ekki.
29. mín
Fanndís Friðriks keyrir af stað upp völlinn og er komin í frábært skotfæri fyrir utan teig en í staðin fyrir að skjóta reynir hún að þræða boltann inn á Nadiu eða Ragnheiði sem voru báðar klárar í hlaup en hikuðu báðar.

Ílla farið með gott tækifæri hjá Val.
26. mín
VAR HORN .NET Á sjónvarpsendursýningum að dæma var Unnur Dóra fyrir innan og réttur dómur hjá Helga Mikael og hans mönnum.
24. mín
Þróttur setur boltann í netið Þróttarar taka hornspyrnu frá hægri og boltinn dettur inn á Unni Dóru sem setur boltann í netið en AD 1, Arnþór Helgi Gíslason lyftir upp flagginu og Þróttarar mótmæla.
24. mín
Þróttur fær hornspyrnu
21. mín MARK!
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir (Valur)
Stoðsending: Fanndís Friðriksdóttir
FRÁBÆRT MARK!! FYRSTA MARKIÐ ER KOMIÐ!!

Fanndís Friðriks fær boltann hægra megin og á huggulega skiptingu yfir á Ragnheiði sem tekur vel við boltanum, tekur eina snertingu inn á völlinn og setur boltann í nærhornið.

Óverjandi fyrir Mollee
18. mín
Nadía með fyrirgjöf frá hægri en boltinn beint í hendurnar á Mollee.
14. mín
Caroline með skot yfir!! Fær boltann skoppandi við vítateigslínuna og tekur hann viðstöðulaust en boltinn yfir.
13. mín
Þróttur fær hornspyrnu
11. mín
Kate fær boltann fyrir utan og á gott skot að marki Vals en Tinn Brá ver þetta.
10. mín
Þetta fer frekar rólega af stað hér á Hlíðarenda Valur fengið besta færið hingað til en annars er lítið að frétta inn á vellinum og mikið stöðubarátta.
6. mín
Valur fær hornspyrnu
5. mín
Færi hjá heimakonum Fanndís með fyrirgjöf frá hægri á hausinn á Ragnheiði sem nær skalla á markið en Mollee ver vel í hornspyrnu sem Þróttarar koma í burtu.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað Það eru Þróttarar sem hefja leik.

Það verður leikið til þrautar hér í kvöld en það er sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins undir hér í kvöld.
Fyrir leik
Fimm mínútur í leik Liðin eru að undirbúa sig í að ganga til leiks, áhorfendur eru farnir að týnast í stúkuna, Hafliði Breiðfjörð er mættur með myndavélina á loft. Vallarþulur Valsmeanna Daníel Davíðsson er í gír.

Það er allt klárt og það má bara fara hefja þetta hérna.
Fyrir leik
Tvö lið sem hafa ólíku gengi að fagna upp á síðkastið. Valur ekki unnið í síðustu 4 leikjum og Þróttur taplausar í sumar. Að því sógðu þá er stuðullinn á sigur Þróttar á Epic 2.45 afar áhugaverður og líklegt að einhverjir tylli sér þar.
Fyrir leik
Valur ríkjandi bikarmeistararar Valskonur unnu Breiðablik í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrra þegar liðin mættust þann 16. ágúst á Laugardalsvellinum en Valur vann leikinn 2-1 með mörkum frá Jasmínu Erlu Ingadóttur og Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur.

Karítas Tómasdóttir náði að klóra í bakkann á 92. mínútu leiksins en það gerði lítið og Valskonur bikarmeistarar í 14. sinn.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
Þróttur á toppnum í Bestu-deildinni Lið Þróttar hefur farið með himinskautum í Bestu-deildinni það sem af er tímabili og er með þriggja stiga forystu á Íslandsmeistara Breiðabliks þegar 8 af 23 umferðum eru búnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
Þriðja liðið Helgi Mikael Jónasson er dómari á Hlíðarenda í kvöld en honum til aðstoðar eru þeir Arnþór Helgi Gíslason og Óliver Thanh Tung Vú. Þá er Brynjar Þór Elvarsson varadómari leiksins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
Leið Þróttar í 8-liða úrslitin Gestirnir í Þrótti fengu Víking Reykjavík, sem vann Mjólkurbikarinn fyrir tveimur árum, í heimsókn fyrr í sumar og skemmst er frá því að segja að Þróttur vann þann mikla markaleik 6-3 þar sem Þórdís Elva skoraði þrennu.
Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
Leið Vals í 8-liða úrslitin Bestu-deildar liðin koma inn í 16-liða úrslitin þannig bæði lið hafa einungis þurft að vinna 1 leik í keppninni hingað til. Valskonur fóru í heimsókn upp í Úlfarsárdal fyrr í sumar þar sem þær rétt mörðu nýliða Fram.

Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
8-liða úrslit Mjólkurbikarsins halda áfram Verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá N1-vellinum að Hlíðarenda þar sem Valur tekur á móti Þrótti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull Stefánsson
Byrjunarlið:
1. Mollee Swift (m)
2. Sóley María Steinarsdóttir
3. Mist Funadóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
9. Freyja Karín Þorvarðardóttir ('86)
10. Kate Cousins
12. Caroline Murray ('75)
23. Sæunn Björnsdóttir
26. Þórdís Elva Ágústsdóttir
27. Unnur Dóra Bergsdóttir ('60)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
20. Ninna Björk Þorsteinsdóttir (m)
7. Brynja Rán Knudsen ('75)
11. Lea Björt Kristjánsdóttir
15. Ísabella Anna Húbertsdóttir ('60)
16. María Eva Eyjólfsdóttir
18. Kristrún Rut Antonsdóttir
22. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir ('86)
24. Þórdís Nanna Ágústsdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Ólafur Helgi Kristjánsson (Þ)
Guðrún Þóra Elfar
Þórkatla María Halldórsdóttir
Sara Ó. Þrúðmarsdóttir Finnsson
Gísli Þór Einarsson
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira

Gul spjöld:

Rauð spjöld: