
Þá er komið að slúðri dagsins en það er nóg um að vera þessa stundina. Félög eru mikið að skoða í kringum sig og það eru stórir bitar á ferðinni.
Florian Wirtz (22) er á leið í læknisskoðun fyrir félagaskipti til Liverpool eftir að Englandsmeistararnir komust að samkomulagi við Bayer Leverkusen um kaupverð upp á 127 milljónir punda. (Fabrizio Romano)
Arsenal hefur komist að samkomulagi við Real Sociedad um kaup á miðjumanninum Martín Zubimendi (26). Kaupverðið er í kringum 59 milljónir punda en Arsenal mun klára kaupin eftir 1. júlí til að standast fjárhagsreglur. (AS)
Manchester United er að íhuga tilboð í Victor Osimhen (26), sóknarmann Napoli, og ætlar að skoða það að nota Joshua Zirkzee (24) sem hluta af kauptilboðinu. (Gazzetta dello Sport)
Sóknarmaðurinn Benjamin Sesko (22) hafnaði tilboði frá Al-Hilal í Sádi-Arabíu fyrir HM félagsliða. Hann er efstur á óskalista Arsenal. (Star)
Leipzig ætlar ekki að selja Sesko fyrir minni upphæð en riftunarverðið hans. Það er talið hljóða upp á 65 milljónir punda. (Independent)
Milos Kerkez (21) er við það að ganga í raðir Liverpool þar sem Bournemouth er að ganga frá kaupum á bakverðinum Adrien Truffert (23) frá Rennes. (Telegraph)
Newcastle er í viðræðum við Burnley um kaup á markverðinum James Trafford (22). (Times)
Gianluigi Donnarumma (26) vill vera áfram hjá PSG þrátt fyrir að Inter og Manchester United hafi spurst fyrir um markvörðinn. (ESPN)
Brighton mun samþykkja tilboð í sóknarmanninn Joao Pedro (23) sem eru á milli 50 og 60 milljónir punda en hann er á óskalista Newcastle. (Football Insider)
Chelsea er opið fyrir því að taka tilboðum í varnarmennina Axel Disasi (27) og Benoit Badiashile (24). (Football Insider)
Inter Milan hefur áhuga á því að krækja í framherjann Julio Enciso frá Brighton í sumar. (Teamtalk)
Skipti N'Golo Kante frá Al-Ittihad til Al-Hilal fyrir HM félagsliða gætu mistekist þar sem stuðningsmenn liðanna eru ekki sáttir við þau. Það er mikill rígur þarna á milli. (Talksport)
Athugasemdir