Fotbolti.net
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Breiðablik
Breiðablik
Mjólkurbikar kvenna
Kópavogsvöllur
11° - mjög flottar aðstæður
5 - 1
HK
HK
Birta Georgsdóttir 12'1 - 0Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 22'2 - 0Birta Georgsdóttir 23'3 - 03 - 124' Loma McNeeseAgla María Albertsdóttir 58'4 - 1Edith Kristín Kristjánsdóttir 67'5 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Breiðablik með sannfærandi sigur í nágrannaslag

Hvað réði úrslitum?

Það eru vitaskuld gæði Breiðabliks og líkamlegir yfirburðir. Blikar höfðu stjórn á leiknum nánast allan tímann og hefðu hæglega geta skorað fleiri mörk.

Bestu leikmenn

1. Birta Georgsdóttir

Algerlega frábær í leiknum og fór ansi illa með vörn HK. Skilaði af sér tveimur mörkum og stoðsendingu í fyrri hálfleik.

2. Agla María Albertsdóttir

Ógnar sífellt og skorar mark í dag. Virkilega flott.

Atvikið

Það eru þessi þrjú mörk sem voru skoruð á þremur mínútum. Ótrúlegar senur.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Breiðablik er nú komið í 4-liða úrslit bikarsins en HK segir skilið við Mjólkurbikarinn.

Vondur dagur

Það verður bara að setja þetta á varnarlínu HK en hún sá ekki mikið til sólar og fékk á sig 5 mörk.

Dómarinn - 8

Twana stóð sig bara nokkuð vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.