Fotbolti.net
@atlifuglAtli Arason
Atli Arason
KR
KR
Lengjudeild kvenna
KR-völlur
2 - 4
Grótta
Grótta
0 - 127' Hulda Ösp Ágústsdóttir0 - 231' Hulda Ösp ÁgústsdóttirRakel Grétarsdóttir 57'1 - 21 - 359' Hulda Ösp ÁgústsdóttirMakayla Soll 74'2 - 32 - 475' Hulda Ösp Ágústsdóttir
Dómari: Guðmundur Ragnar Björnsson

SKÝRSLAN: Montréttur á Seltjarnarnes

Hvað réði úrslitum?

Hulda Ösp Ágústsdóttir. Skoraði bara þegar henni datt það í hug í kvöld og þurfti ekki að hafa mikið fyrir því.

Bestu leikmenn

1. Hulda Ösp Ágústsdóttir

Þegar leikmaður skorar fjögur mörk í einum og sama leiknum þá kemur ekkert annað til greina

2. Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir

Að minnsta kosti tvær stoðsendingar. Sigrún var reglulega á ferðinni upp og niður vænginn og skapaði mikið af hættulegum færum.

Atvikið

Fjórða mark Huldu. KR-ingar voru nýbúnar að minnka muninn og það virtist stefna í spennandi loka stundarfjórðung en Hulda drap það strax mínútu síðar og varð í leiðinni jafn markahæst í deildinni í sumar með 8 mörk, ásamt Allison Grace Lowrey hjá ÍBV.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta klifrar upp fyrir KR í tölfunni og fer upp í 4 sæti deildarinnar með 12 stig eftir 7 umferðir. KR-ingar eru áfram með 10 stig.

Vondur dagur

Erfitt að henda einhverjum einum hérna undir rútuna. KR-ingar voru of linir í vörninni því Hulda Ösp þurfti á köflum ekki að hafa mikið fyrir sínum fjórum mörkum í kvöld. Gunnar Einarsson, þjálfari KR, fær því að eiga titilinn vondur dagur fyrir að láta blaðamann bíða of lengi út í kuldanum eftir viðtali.

Dómarinn - 8

Lítið sem ekkert hægt að sakast við Guðmund og hans teymi í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.