SKÝRSLAN: Í undanúrslit í þriðja sinn á fimm árum
Hvað réði úrslitum?
FH var beittara liðið í dag, sóknir þeirra voru líklegri til að verða að einhverju og ef eitthvað lið átti að skora fleiri mörk í seinni hálfleiknum var það FH. Þór/KA var líklega betra liðið heilt yfir í fyrri hálfleiknum en sofandaháttur í föstu leikatriði kostaði mark og einungis eitt var skorað hinu megin. Það hentaði FH vel þegar Þór/KA reyndi að jafna leikinn í seinni hálfleik og var eiginlega bara tímaspursmál hvenær þriðja markið kæmi hjá FH, og það kom að lokum.
Bestu leikmenn
1. Elísa Lana Sigurjónsdóttir
Virkilega góð inn á miðsvæðinu, varði vörnina sína vel og var öflug í seinni hálfleiknum að blanda sér í sóknina líka. Skoraði markið sem innsiglaði sigurinn.
2. Arna Eiríksdóttir
Eins og klettur aftast, les leikinn virkilega vel og þegar Sandra María var að gera sig líklega fyrir Þór/KA var Arna klár í að hjálpa að loka á hættulegasta leikmann andstæðinganna. Mikil ró og yfirvegun í kringum Örnu.
Atvikið
Vítaspyrnan, hárréttur dómur og FH komst yfir. Við það gat FH leyft Þór/KA að halda í boltann og við það að Þór/KA opnaði sig varð FH liðið mjög hættulegt í skyndisóknum.
Hvað þýða úrslitin?
FH er komið í undanúrslitin í þriðja sinn á síðustu fimm árum. Liðið hefur ekki komist lengra en það. Þór/KA er eins og gefur að skilja úr leik, annað tapið gegn FH í sumar staðreynd.
Vondur dagur
Sandra María Jessen, sýnist það vera hún sem hefði átt að dekka Kötlu Maríu í fyrsta marki FH, Sandra sést stíga út úr varnarlínunni áður en aukaspyrnan er tekin og við það myndast stór hola sem Katla María nýtir sér. Stórt atvik í leiknum. Eitthvað samskiptaleysi hver átti að vera hvar.
Dómarinn - 7
Réttur dómur í vítinu, einhverjar aukaspyrnur hér og þar sem heimakonur vildu fá með sér en ekkert sem hafði alvöru áhrif fannst mér.



