Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
Lengjudeild karla
Fylkir
19:15 0
0
Grindavík
Lengjudeild karla
HK
19:15 0
0
Fjölnir
Lengjudeild karla
ÍR
19:15 0
0
Leiknir R.
Þór/KA
1
3
FH
0-1 Katla María Þórðardóttir '11
Karen María Sigurgeirsdóttir '21 1-1
1-2 Maya Lauren Hansen '52 , víti
1-3 Elísa Lana Sigurjónsdóttir '87
12.06.2025  -  17:30
Boginn
Mjólkurbikar kvenna
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 139
Maður leiksins: Elísa Lana Sigurjónsdóttir
Byrjunarlið:
20. Jessica Grace Berlin (m)
2. Angela Mary Helgadóttir ('46)
4. Ellie Rose Moreno ('59)
8. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('59)
10. Sandra María Jessen (f)
14. Margrét Árnadóttir
18. Bríet Jóhannsdóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('90)
24. Hulda Björg Hannesdóttir
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Bríet Kolbrún Hinriksdóttir (m)
3. Kolfinna Eik Elínardóttir ('46) ('72)
5. Steingerður Snorradóttir
6. Hildur Anna Birgisdóttir
7. Amalía Árnadóttir ('59)
11. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir ('90)
13. Sonja Björg Sigurðardóttir ('59)
21. Ísey Ragnarsdóttir
23. Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('72)
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Emelía Ósk Kruger
Iðunn Elfa Bolladóttir
Sigurbjörn Bjarnason
Aron Birkir Stefánsson
Jóhann Hilmar Hreiðarsson
Eva S. Dolina-Sokolowska
Henríetta Ágústsdóttir

Gul spjöld:
Angela Mary Helgadóttir ('15)
Ellie Rose Moreno ('55)
Jóhann Kristinn Gunnarsson ('79)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
FH áfram í undanúrslit FH vinnur 1-3 útisigur í Boganum og er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins.
94. mín
Inn:Hildur Katrín Snorradóttir (FH) Út:Thelma Karen Pálmadóttir (FH)
94. mín
Inn:Alma Mathiesen (FH) Út:Maya Lauren Hansen (FH)
93. mín
Hulda Björg reynir skot fyrir utan teig en það fer yfir mark FH.
92. mín
Sonja Björg nær fínum skalla en því miður fyrir hana fer hann beint á Söndru í markinu.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
90. mín
Inn:Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
90. mín
Aukaspyrna dæmd á Þór/KA. Sandra hélt á boltanum en leikmaður Þórs/KA var inn á vítateignum þegar Sandra ætlaði að sparka fram.
88. mín
Ingibjörg gerir sig líklega við vítateig Þórs/KA en nær ekki tilraun á markið. Verið lífleg hún Ingibjörg eftir að hafa komið inn á.
87. mín MARK!
Elísa Lana Sigurjónsdóttir (FH)
Elísa fer langt með þetta! Kemst í lausan bolta inn á eigin vallarhelmingi, keyrir upp og klárar rétt fyrir utan teig með góðu skoti í fjærhornið, ekki fyrsti sprettur hennar upp völlinn í dag.
83. mín
Heimakonur pirraðar út í Sigurð dómara, vildu fá aukaspyrnu þegar Hulda Ósk fór í grasið en svo dæmir hann peysutog á Amalíu. Það sem dæmt var á, það var allavega rétt.
82. mín
Skot á bæði mörkin Margrét með fínt skot fyrir utan teig en Sandra er vel staðsett og ver þetta og heldur boltanum.

FH sækir svo hratt upp hinu megin og Maya á skot sem fer beint á Jessicu í markinu.
80. mín
Fyrirgjöf frá vinstri sem Arna skallar í burtu, verið virkilega góð í hjarta varnarinnar hjá FH.
79. mín Gult spjald: Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þór/KA)
Gult á bekkinn hjá Þór/KA og Jói ræðir við fjórða dómarann í kjölfarið.

FH var á undan því í álitlegri skyndisókn en Ingibjörg fann ekki samherja inn á vítateig Þórs/KA.
78. mín
Sandra í smá bulli þarna í FH markinu en sleppur með þetta.
77. mín
Sonja Björg gerir vel í að flikka boltanum inn fyrir á Söndru Maríu með skalla.

Sandra María reynir skot í fínni stöðu en Arna kemst fyrir það.

FH nær svo að hreinsa í burtu eftir smá atgang í kjölfar hornsins.
75. mín
Bekkurinn hjá Þór/KA vill fá átta sekúndur dæmdar á Söndru í marki FH en hún sleppur í þetta skiptið.
72. mín
Inn:Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þór/KA) Út:Kolfinna Eik Elínardóttir (Þór/KA)
Kom inn á í hálfleik en getur ekki klárað leikinn. Sýnist Kimberley fara niður í hægri bakvörðinn.
70. mín
Alls ekki galin tilraun frá Ingibjörgu yfir mark Þórs/KA. Skotið fer rétt yfir.

Kolfinna Eik fær aðhlynningu.
69. mín
Eins og þetta er að þróast er eiginlega bara tímaspursmál hvenær þriðja mark FH kemur.
68. mín
Inn:Harpa Helgadóttir (FH) Út:Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Varnarsinnuð skipting.
67. mín
Svæðið fyrir framan vörn Þórs/KA opnara núna. Thelma Karen reynir að finna Mayu í gegn en sendingin er of föst.
66. mín
FH að komast í fínar stöður núna, Thelma Karen í góðri stöðu hægra megin í teignum en á skot/fyrirgjöf sem finnur hvorki fjærhornið né samherja.
65. mín
Jessica! Frábær varsla!

Ída Marín rennir boltanum til hægri á Mayu sem passar sig núna að vera ekki rangstæð - var dæmd rangstæð rétt áðan. Maya kemur sér inn á teiginn og á gott skot sem Jessica gerir mjög vel í að verja. Ingibjörg nær svo frákastinu og Jessica ver skot hennar og heldur boltanum.
64. mín
Sonja Björg vinnur fyrsta skallaboltann og Agnes næsta bolta en skallinn er laus og Sandra handsamar boltann.
63. mín
Sandra María er miðpunkturinn í leik Þórs/KA þessar mínúturnar. Vinnur hér aukaspyrnu, eða öllu heldur biður um aukaspyrnu þar sem boltinn fór í hönd leikmanns FH, sem Margrét býr sig undir að taka.
62. mín
Sandra María splæsir í skæri og leggur svo boltann út á Bríeti sem á fína tilraun fyrir utan teig en skotið fer framhjá fjærstönginni.
61. mín
Sandra María með mjög góða skiptingu yfir á Sonju Björg sem er óheppin með móttökuna í mjög góðri stöðu við vítateig FH.
59. mín
Inn:Ingibjörg Magnúsdóttir (FH) Út:Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH)
Tvöföld breyting á báðum liðum
59. mín
Inn:Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (FH) Út:Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
59. mín
Inn:Sonja Björg Sigurðardóttir (Þór/KA) Út:Ellie Rose Moreno (Þór/KA)
59. mín
Inn:Amalía Árnadóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
58. mín
Rétt framhjá! Elísa Lana vinnur boltann við eigin vítateig og brunar upp völlinn. Hún gerir mjög vel, á vel tímasetta sendingu á Mayu sem á svo skot sem fer rétt framhjá marki Þórs/KA.
55. mín Gult spjald: Ellie Rose Moreno (Þór/KA)
Fer fyrir útspark Söndru.
54. mín
Karen María vinnur aukaspyrnu fyrir Þór/KA. Margrét Árnadóttir ætlar að taka spyrnuna, kemur með fyrirgjöf inn á teiginn. Svipaður staður og FH skoraði upp úr í fyrri hálfleik.

Auðveldur bolti fyrir Söndru sem handsamar boltann.
52. mín Mark úr víti!
Maya Lauren Hansen (FH)
Stoðsending: Valgerður Ósk Valsdóttir
FH tekur forystuna. Maya leggur boltann til hægri frá sér og Jessica fer í hitt hornið.
51. mín
Víti! FH fær víti!

Valgerður fellur við eftir návígi við Agnesi Birtu, Agnes virðist fara aðeins í Valgerði þarna, blanda af óheppni og klaufaskap, réttur dómur finnst mér. Heyri ekki mikil mótmæli.
49. mín
Maya vinnur hornspyrnu fyrir FH, gestirnir að byrja seinni hálfleikinn betur.

FH fær tvo sénsa til að koma boltanum fyrir en Þór/KA verst vel.
48. mín
Laus bolti fyrir utan teiginn hjá Þór/KA, Elísa Lana kemst í boltann og á skot með vinstri en hún dregur boltann framhjá marki heimakvenna.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Karen María sparkar þessu af stað fyrir Þór/KA.
46. mín
Inn:Kolfinna Eik Elínardóttir (Þór/KA) Út:Angela Mary Helgadóttir (Þór/KA)
Ein breyting í hálfleik. Kolfinna kemur í hægri bakvörðinn.
45. mín
Hálfleikur
Smá pirringur í Jóa þjálfara að Sigurður hafi flautað til hálfleiks þegar Hulda var í þann mund að fara í sprettinn, en maður hefur séð verr tímasett hálfleiksflaut, það er ljóst.

Nokkuð sanngjörn staða í leikhléi. Þór/KA eflaust svekktara liðið með markið sem gestirnir skoruðu.
45. mín
Ein mínúta í uppbót 45+1
45. mín
Aftur rennir Agnes Birta sér inn á eigin vítateig og núna hirðir hún boltann af tánum á Mayu og kemur í veg fyrir skottilraun.
44. mín
Sandra María með vel lukkað þríhyrningsspil, Margrét finnur Söndru á sprettinum, hún á svo skot með vinstri vinstra megin úr teig FH og Sandra ver skotið nokkuð þægilega. Vel spilað hjá heimakonum.
42. mín
Maya með þrumuskot fyrir utan teig Þórs/KA og Jessica þarf að hafa fyrir því að slá þennan bolta yfir. Gott skot með vinstri fæti.

Mislukkuð útfærsla á horninu hjá gestunum og Jessica tekur markspyrnu.
41. mín
Þór/KA á horn. Annar bræðranna lætur aðeins í sér heyra á bekknum hjá FH, vill sjá meira frá sínu liði.

Karen María með spyrnuna, og laus skalli í átt að marki sem Sandra grípur.
38. mín
Hulda Ósk með skot/fyrirgjöf í varnarmann og Arna Eiríks skallar svo frá út úr markteignum. Fínar mínútur hjá Þór/KA.
37. mín
Sandra með góða vörslu Angela með innkast, vel spilað hjá heimakonum við vítateiginn og Karen María á svo fínt skot með vinstri fæti sem reynsluboltinn Sandra ver til hliðar.
34. mín
Valgerður fær högg á andlitið og Sigurður dómari stöðvar leikinn, fékk högg í skallaeinvígi.
32. mín Gult spjald: Katla María Þórðardóttir (FH)
Mjög mikið gult spjald. Reif í Söndru Maríu og togaði hana niður. Sandra með frábæran snúning og hefði skilið Kötlu alveg eftir.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Thelma Karen og Hulda Björg í kapphlauði og Hulda leysir þetta virkilega vel, kemst í boltann og kemur honum á samherja.
28. mín
Katla María þarf smá tíma til að jafna sig, fékk boltann í sig.

Þór/KA á hornspyrnu en gestirnir verjast því nokkuð þægilega.

Ekki mikið um opnanir í þessum leik.
23. mín
Ída Marín í vænlegri stöðu inn á vítateig Þórs/KA, Agnes Birta hendir sér í tæklingu og kemst í boltann og FH fær horn. Mjög góð tækling.

Þór/KA kemur boltanum í burtu eftir hornið.
21. mín MARK!
Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Ellie Rose Moreno
Frábært skot! Kimberley Dóra finnur Ellie sem er galopin við vítateig FH, hún leggur boltann til hliðar á Karen Maríu sem lætur vaða fyrir utan teig, utan D-bogann, og þessi bolti syngur í vinstra horninu. Frábært skot!

Þór/KA er að endurheimta Karen úr meiðslum, sýnir þarna gæðin sín!
20. mín
Sandra María snýr af sér Kötlu Maríu, á fína fyrirgjöf en Arna les leikinn vel og nær að skalla í burtu.
15. mín Gult spjald: Angela Mary Helgadóttir (Þór/KA)
FH fær aðra aukaspyrnu, aðeins aftar núna á vallarhelmingi Þórs/KA. Angela reif í Berglindi Freyju sem sneri varnarmanninn vel af sér.

Heimakonur ná að verjast þessari spyrnu.
14. mín
Heimakonur með fína pressu hátt á vellinum og ná að búa til smá vesen fyrir gestina, en FH nær svo að losa boltann upp völlinn.
13. mín
Karen María með fyrstu hornspyrnu Þórs/KA, Kimberley kemst í boltann, skallar í átt að marki FH en boltinn hrekkur af Huldu Björg og aftur fyrir.
11. mín MARK!
Katla María Þórðardóttir (FH)
Stoðsending: Birna Kristín Björnsdóttir
FH tekur forystuna! FH vinnur aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Þórs/KA. Birna Kristín tekur spyrnuna meðfram jörðinni og finnur Kötlu Maríu, sem laumaði sér fram fyrir varnarmenn Þórs/KA, í hlaupinu. Katla María galopin inn á teignum, og hún skorar með góðu skoti í fjærhornið.

Vel útfært hjá gestunum en á sama tíma sofandaháttur hjá heimakonum.
8. mín
Valgerður Ósk í fínu skotfæri inn á teig Þórs/KA en setur boltann framhjá fjærstönginni.
6. mín
Þór/KA Jessica
Angela - Hulda Björg - Agnes - Bríet
Kimberley - Margét
Karen María
Hulda Ósk - Ellie - Sandra María
3. mín
Thelma Karen með fasta fyrirgjöf sem Jessica er í smá vandræðum með en ekki mikil hætta þarna inn á teig Þórs/KA.
3. mín
FH Sandra
Katla - Arna - Deja
Birna Kristín - Elísa Lana
Thelma - Ída Marín - Valgerður - Berglind Freyja
Maya

Einhvern veginn svona hjá gestunum. Mjög sókndjarft
2. mín
Kimberley Dóra með fyrstu tilraun leiksins, kemst í fína skotstöðu við vítateig FH en skotið fer yfir mark gestanna.
1. mín
Leikur hafinn
FH byrjar með boltann
Fyrir leik
Þór/KA í svörtu og FH í hvítu Liðin eru komin inn í Bogann og þetta er allt að fara af stað.

Það er frábært veður úti og sorglegt að ekki sé spilað utan dyra. Grasvöllur Þórsara var mjög slæmur í fyrra og er verið að bíða eftir nýjum gervigrasvelli fyrir utan Bogann.
Fyrir leik
Guðni talar um öfluga kantmenn Þjálfari FH talar um að Þór/KA spili beinskeyttan bolta, séu með frábæra kantmenn (Söndru Maríu og Huldu Ósk) sem liðið leitar mikið að þeim.

,,Við þurfum að reyna stöðva þær sóknir og gera þeim erfiðara fyrir að koma boltanum í lappir þessara leikmenn. Svo erum við með okkar vopn á móti," sagði Guðni við RÚV fyrir leikinn.
Fyrir leik
Jói hrósar FH Þjálfari Þórs/KA sagði við RÚV fyrir leik að FH væri það kvennalið landsins sem spilaði besta boltann um þessar mundir.

,,Við erum að mæta liðinu sem er að sýna hvað mestan kraft og einna bestu spilamennskuna á landinu í kvennaboltanum akkúrat um þessar mundir. Við þurfum að vera algjörlega með allt á hreinu ef við ætlum að komast áfram," sagði Jóhann Kristinn fyrir leik.
Fyrir leik
Valur og ÍBV komin áfram Þetta er þriðji og næst síðasti leikur átta liða úrslitanna. ÍBV komst áfram á mánudag með útisigri gegn Tindastóli og Mjólkurbikarmeistar síðasta árs, Valur, unnu Þrótt í gærkvöldi. Klukkan 20:00 fer svo lokaleikurinn fram, Kópavogsslagur Breiðabliks og HK.
Fyrir leik
Þriðja liðið Sigurður Hjörtur Þrastarson er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Aðalsteinn Tryggvason. Tryggvi Þór Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ og Birkir Örn Pétursson er fjórði dómari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Önnur umferð Bestu deildar liðanna í bikarnum Þetta er liður í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins en Bestu deildar liðin komu inn í keppnina í 16-liða úrslitunum.

FH vann Lengjudeildarlið Fylkis, 1-4, í 16-liða úrslitunum fyrir akkúrat mánuði síðan. Maya Lauren Hansen og Ída Marín Hermannsdóttir skoruðu báðar tvennu í leiknum.

Þór/KA vann degi áður 6-0 sigur á Lengjudeildarliði KR. Sandra María Jessen skoraði tvennu í leiknum, systurnar Margrét og Amalía Árnadætur skoruðu sitt markið hvor sem og þær Emelía Ósk Kruger og ungstirnið Bríet Fjóla Bjarnadóttir.
Fyrir leik
Staðan í deildinni - FH vann innbyrðisleikinn FH er í 3. sæti Bestu deildarinnar eftir átta umferðir og Þór/KA er í 4. sæti, með fjórum stigum minna. FH hefur unnið sex leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum. Þór/KA hefur unnið fimm leiki og tapað þremur. FH er með markatöluna 17:8 og Þór/KA er með markatöluna 15:13.

Liðin mættust á þessum velli, Boganum, þann 3. maí og þá vann FH 0-3 útisigur. Valgerður Ósk, Berglind Freyja og Elísa Lana skoruðu mörk FH í þeim leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn - Tvær breytingar á báðum liðum Þjálfararnir eru búnir að velja sín byrjunarlið og búið að opinbera þau. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá 2-0 tapinu gegn Þrótti í deildinni. Þær Amalía Árnadóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir taka sér sæti á bekknum og inn koma Karen María Sigurgeirsdóttir og Ellie Rose Moreno.

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, gerir sömuleiðis tvær breytingar. FH vann 1-4 sigur á Víkingi í síðasta leik. Þær Ingibjörg Magnúsdóttir og Hildur Þóra Hákonardóttir taka sér sæti á bekknum. Inn koma Valgeður Óska Valsdóttir og Berglind Freyja Hlynsdóttir.
Fyrir leik
Velkomin í Bogann Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og fer fram í Boganum á Akureyri. Leikurinn er einnig í beinni útsendingu á RÚV2.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
24. Sandra Sigurðardóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
5. Arna Eiríksdóttir
6. Katla María Þórðardóttir
7. Thelma Karen Pálmadóttir ('94)
8. Valgerður Ósk Valsdóttir ('59)
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir ('59)
11. Ída Marín Hermannsdóttir ('68)
13. Maya Lauren Hansen ('94)
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir
23. Deja Jaylyn Sandoval
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
10. Alma Mathiesen ('94)
15. Hrönn Haraldsdóttir
19. Hildur Katrín Snorradóttir ('94)
22. Hildur Þóra Hákonardóttir
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('59)
36. Harpa Helgadóttir ('68)
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('59)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Guðmundur Jón Viggósson
Brynjar Sigþórsson
Reginn Fannar Unason

Gul spjöld:
Katla María Þórðardóttir ('32)

Rauð spjöld: