
Það er mikið líf og fjör á skrifstofunni hjá Liverpool. Hér er slúðurpakki dagsins í boði Powerade. BBC tók saman það helsta úr ensku götublöðunum og víðar.
Liverpool íhugar að reyna að fá Victor Osimhen (26), framherja Napoli og nígeríska landsliðsins, sem var á láni hjá Galatasaray síðasta tímabil. (Givemesport)
Bayer Leverkusen hefur gert enska miðvörðinn Jarell Quansah (22) hjá Liverpool að skotmarki í sumar. (Athletic)
PSG mun ekki hleypa franska framherjanum Bradley Barcola (22) frá félaginu í sumar en Liverpool og Bayern München hafa sýnt honum áhuga. (Foot Mercato)
Manchester United hefur áhuga á að fá franska framherjann Hugo Ekitike (22) frá Eintracht Frankfurt fyrir mögulega 85 milljónir punda. (Sky Sports)
Arsenal er að íhuga að reyna að fá Nico Williams (22), kantmann Athletic Bilbao og spænska landsliðsins. (Sun)
Williams hefur fengið leyfi til að fara til Bayern München eftir að þeir ganga að riftunarákvæði í samningi hans. (Sky Þýskaland)
Brentford mun koma í veg fyrir tilraunir Thomas Frank (31) til að taka danska miðjumanninn Christian Nörgaard (31) með sér til Tottenham. (Givemesport)
Arsenal hefur spurt Ajax um hollenska miðvörðinn Jorrel Hato (19). (Mail)
AC Milan hefur áhuga á að fá úkraínska varnarmanninn Oleksandr Zinchenko (28) frá Arsenal. (Sky Sports)
Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric (39) mun fresta félagaskiptum sínum til AC Milan svo hann geti spilað á HM félagsliða með Real Madrid. (Gazzetta dello Sport)
Nýliðar Leeds eru í viðræðum við Udinese um slóvenska varnarmanninn Jaka Bijol (26). (Sky Sports)
West Ham og Brentford hafa bæði áhuga á framherjanum Hamza Igamane (22) hjá Rangers og Marokkó. Hann skoraði 16 mörk í skosku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. (Foot Mercato)
Fjögur félög í ensku úrvalsdeildinni eru tilbúin að greiða 1,2 milljóna punda riftunarákvæði fyrir enska varnarmanninn Japhet Tanganga (26) hjá Millwall. (Sky Sports)
Fyrrverandi stjóri Luton, Rob Edwards, er líklegastur til að taka við Middlesbrough, sem er í Championship-deildinni. (Sky Sports)
Athugasemdir