Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
Lengjudeild karla
Fylkir
19:15 0
0
Grindavík
Lengjudeild karla
HK
19:15 0
0
Fjölnir
Lengjudeild karla
ÍR
19:15 0
0
Leiknir R.
KR
2
4
Grótta
0-1 Hulda Ösp Ágústsdóttir '27
0-2 Hulda Ösp Ágústsdóttir '31
Rakel Grétarsdóttir '57 1-2
1-3 Hulda Ösp Ágústsdóttir '59
Makayla Soll '74 2-3
2-4 Hulda Ösp Ágústsdóttir '75
12.06.2025  -  19:15
KR-völlur
Lengjudeild kvenna
Dómari: Guðmundur Ragnar Björnsson
Maður leiksins: Hulda Ösp Ágústsdóttir
Byrjunarlið:
29. Helena Sörensdóttir (m)
2. Rakel Grétarsdóttir
7. Kara Guðmundsdóttir
9. Anna María Bergþórsdóttir
10. Katla Guðmundsdóttir
14. Maya Camille Neal
18. Ragnheiður Ríkharðsdóttir ('80)
19. Lina Berrah
20. Makayla Soll
21. Þórey Björk Eyþórsdóttir
26. Anna Björk Kristjánsdóttir (f) ('65)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Matthildur Eygló Þórarinsdóttir (m)
Kristín Anna Smári
8. Karen Guðmundsdóttir
11. Aníta Björg Sölvadóttir ('80)
12. Íris Grétarsdóttir
13. Koldís María Eymundsdóttir
15. Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir
16. Eva María Smáradóttir ('65)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Einarsson (Þ)
Ívar Ingimarsson (Þ)
Hildur Björg Kristjánsdóttir
Jamie Paul Brassington
Bergþór Snær Jónasson
Telma Ýr Unnsteinsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Grótta siglir heim sigrinum á gervigrasinu í Vesturbænum! Montréttur á Nesið. Umfjöllun og viðtöl koma næst.
88. mín
Gróttukonur virðast ætla að sigla þessu heim en þær hafa verið líklegri aðilinn síðustu 5 mínúturnar eða svo
80. mín
Inn:Aníta Björg Sölvadóttir (KR) Út:Ragnheiður Ríkharðsdóttir (KR)
75. mín MARK!
Hulda Ösp Ágústsdóttir (Grótta)
Hulda nennir ekki að hafa þetta spennandi og skorar fjórða markið sitt í kvöld! Fylgir á eftir skoti frá samherja og skilar boltanum í nær autt marknetið. Hulda er þar með orðin markahæsti leikmaður deildarinnar!
74. mín MARK!
Makayla Soll (KR)
Upp úr engu! Makayla er með boltann í vítateig Gróttu og annað hvort ætlar hún að vippa boltanum á fjærstöng eða í fjær hornið, en hið síðara tókst
70. mín
Rayanne næstum því búinn að bæta við fjórða markinu en hörku skot hennar innan vítateigs er vel varið af Helenu.
69. mín
Boltinn dettur fyrir Töru rétt fyrir utan D-bogann. Tara stillir boltanum upp og þrumar honum í átt að samskeytunum á marki KR, en boltinn fer rétt yfir.
65. mín
Inn:Eva María Smáradóttir (KR) Út:Anna Björk Kristjánsdóttir (KR)
Fyrsta skipting leiksins
59. mín MARK!
Hulda Ösp Ágústsdóttir (Grótta)
Stoðsending: Katrín Rut Kvaran
Gestirnir ekki lengi að svara fyrir sig! Katrín Rut með fyrirgjöf af hægri væng og Hulda getur ekki annað en þakkað pent fyrir sig með því að stýra knettinum í netið. Þrennan fullkomnuð hjá Huldu!
57. mín MARK!
Rakel Grétarsdóttir (KR)
Rakel minnkar muninn! Lúrir ein á fjærstönginni og nær að þvinga boltanum yfir línuna eftir fyrirgjöf frá vinstri
56. mín
Katrín nærri því að bæta við þriðja markinu! Góð fyrirgjöf frá vinstri og Katrín Rut er nær ein á fjærstöng en hún hittir boltann illa og sókn Gróttu rennur út í sandinn
54. mín
Haylee með vippu sem fer næstum því yfir Helenu sem nær að bakka og grípa boltann. Flott sókn hjá Gróttu eftir hornspyrnu og lúmskt skot hjá Haylee
48. mín
KR-ingar fá tvær hornspyrnur í röð en erfitt að greina nákvæmlega frá því vegna sólarinnar. Margrét í marki Gróttu þarf allavega að hafa sig alla við til að handleika knöttinn í seinna skiptið
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Guðmundur flautar til hálfleiks! Það eru gestirnir frá Gróttu leiða með tveimur mörkum gegn engu í leikhlé
39. mín
Lina tekur hornspyrnu frá vinstri sem er stórhættuleg en gestirnir ná að koma boltanum frá og Hulda og Rayanne bruna saman upp í skyndisókn. Eftir stutt spil þeirra á milli og skot að marki, endar knötturinn í höndunum hjá Helenu í marki KR
35. mín
Inni? Rayanne á hér skot rétt fyrir utan vítateig KR. Helena ræður illa við það og slær boltann í loft upp og hann lekur í átt að markneti KR áður en Helena hleypur til baka og grípur boltan. Stuðningsmenn Gróttu í stúkunni öskra “MARK” á meðan stuðningsfólk KR svarar “aldrei inni”
Ekkert dæmt og áfram með leikinn segir Guðmundur dómari
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín MARK!
Hulda Ösp Ágústsdóttir (Grótta)
Stoðsending: Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir
Það halda Huldu enginn bönd! Annað kollspyrnumark, aftur eftir fyrirgjöf af hægri væng, frá fyrirliðanum Sigrúnu Ösp. 0-2!
27. mín MARK!
Hulda Ösp Ágústsdóttir (Grótta)
Grótta leiðir! Hulda skorar sitt fimmta mark á tímabilinu! Fyrirgjöf frá hægri sem Hulda stýrir auðveldlega í netið
25. mín
Gestirnir eru hægt og rólega að koma sér inn í leikinn og að skapa sér fleiri færi en áður, þó svo að KR-ingar virðast vera með tak á leiknum.
21. mín
Grótta fær hornspyrnu. Tekið stutt og Rebekka Sif fær tima til að stilla upp fyrirgjöfinni, sem er góð, en heimakonur hreinsa frá. Langþráð sókn hjá Gróttu
14. mín
KR fær aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateigin vinstra megin. Lina tekur spyrnuna og gefur boltann út. Í þrígang reyna KR-ingar skot en öll þeirra eru laflaus. Góð leikstaða sem heimakonur hefðu geta nýtt betur.
9. mín
Kara fær frákastið inn í D-boganum og á skot sem fer yfir mark Gróttu. Heimakonur stjórna leiknum þessa stundina
7. mín
Katla sleppur ein í gegn eftir sendingu yfir vörn Gróttu. Katla leikur upp að endalínu og ætlar að gefa boltann fyrir á Linu en Margrét er vel á verði í marki Gróttu og grípur knöttinn
5. mín
Lina Berrah nálægt því að bæta við markafjölda sinn í sumar. Fær fyrirgjöf frá hægri en hittir boltann illa sem endar beint í fanginu á Margréti í marki Gróttu
1. mín
Grótta brunar strax í sókn og vinnur hornspyrnu á fyrstu mínútu leiksins. Hornspyrnan nýtist hins vegar ekki vel fyrir gestina.
1. mín
Leikur hafinn
Grótta kemur leiknum af stað! Þær sækja í átt að Seltjarnarnesinu á meðan heimakonur sækja til Grandans. Táknrænt
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús! KR-ingar gera þrjár breytingar á byrjunarliðinu sínu frá 3-1 tapinu gegn Grindavík/Njarðvík í síðustu umferð. Helena Sörensdóttir kemur inn í markið fyrir Matthildi Eygló Þórarinsdóttur og þá koma þær Rakel Grétarsdóttir og fyrirliðin Anna Bjök Kristjánsdóttir inn í byrjunarliðið fyrir þær Emilíu Ingvadóttur og Írisi Grétrsdóttur

Gestirnir úr Gróttu gera eina breytingu á byrjunarliði sínu sem vann Hauka 5-1 í síðustu umferð. María Lovísa Jónasdóttir fær sér sæti á varamannabekknum fyrir Lovísu Davíðsdóttur Scheving, sem byrjar í kvöld.

Leikmannahópa beggja liða má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Dómaratríó Guðmundur Ragnar Björnsson mun sjá um að stjórna umferðinni í kvöld. Ingólfur Kristinn Magnússon (AD1) og Guðmundur Halldórsson (AD2) verða Guðmundi Ragnari til aðstoðar.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Fyrri viðureignir Liðin tvö hafa sex sinnum leikið við hvort annað og aldrei hafa leikirnir endað jafnir né verið markalausir. Bæði lið eiga sitthvora þrjá sigra eftir að Grótta vann síðustu viðureign þessara liða 2-3, í Lengjubikjarnum í mars sl. Við búumst við mörkum í kvöld.
Fyrir leik
Grótta Grótta kemur inn í þennan leik eftir tvo sigurleiki í röð og eru því á svipuðum slóðum og nágrannar þeirra í KR. Seltirningar eru með einu stigi minna í fimmta sæti deildarinnar, alls með níu stig. Hulda Ösp Ágústsdóttir er markahæst í liði Gróttu í sumar, en Hulda einnig er búin að skora fjögur mörk í sex leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
KR Gengi KR til þessa hefur verið upp og niður. Liðið tapaði 3-1 gegn Grindavík/Njarðvík í síðustu umferð en þar á undan kom 3-1 sigur gegn Fylki. KR-ingar eru í fjórða sæti með 10 stig eftir sex leiki í Lengjudeildinni.
Það vekur athygli að aldrei hefur verið skorað minna en fjögur mörk í leikjum sem KR hefur tekið þátt í hingað til í sumar. Anna María Bergþórsdóttir er markahæsti leikmaður KR með fjögur mörk í sex leikjum.
Mynd: Mummi Lú
Fyrir leik
Velkomin til leiks! Góðan og gleðilegan litla föstudag! Í kvöld fer nánast fram heil umferð í Lengjudeild kvenna, þar sem öll lið deildarinnar að frátöldu HK og ÍBV (sem spila á mánudag) spila við hvort annað á sama tíma, núna klukkan 19:15. Hérna í vesturbænum ætlum við að fylgjast með nágranaslag KR og Gróttu.

Lengjudeild kvenna
19:15 Keflavík-Fylkir (HS Orku völlurinn)
19:15 Afturelding-Grindavík/Njarðvík (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 KR-Grótta (KR-völlur)
19:15 Haukar-ÍA (BIRTU völlurinn)

Byrjunarlið:
1. Margrét Rún Stefánsdóttir (m)
6. Telma Sif Búadóttir
8. Tara Jónsdóttir
10. Rebekka Sif Brynjarsdóttir
11. Haylee Rae Spray
15. Ryanne Molenaar
16. Hulda Ösp Ágústsdóttir
17. Katrín Rut Kvaran
20. Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir (f)
21. Hildur Björk Búadóttir
24. Lovísa Davíðsdóttir Scheving
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Þórdís Ösp Melsted (m)
5. Rakel Lóa Brynjarsdóttir
22. Margrét Edda Lian Bjarnadóttir
25. María Björk Ómarsdóttir
26. Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir
29. María Lovísa Jónasdóttir
39. Lilja Davíðsdóttir Scheving
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Dominic Ankers (Þ)
Guðni Snær Emilsson
Aron Logi Sigurpálsson
Alex Mar Bjarkason
Díana Ásta Guðmundsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: