Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
Selfoss
0
2
Þróttur R.
0-1 Unnar Steinn Ingvarsson '38
0-2 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson '59
Baldur Hannes Stefánsson '64
14.06.2025  -  14:00
JÁVERK-völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Þvílíkir aðstæður, þær verða ekki betri en þetta
Dómari: Elías Ingi Árnason
Byrjunarlið:
1. Robert Blakala (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson ('64)
3. Reynir Freyr Sveinsson
5. Jón Vignir Pétursson (f)
7. Harley Willard ('64)
10. Nacho Gil
11. Alfredo Ivan Sanabria ('84)
15. Alexander Clive Vokes ('72)
21. Frosti Brynjólfsson
28. Eysteinn Ernir Sverrisson
32. Aron Lucas Vokes
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
8. Raúl Tanque ('72)
9. Aron Fannar Birgisson ('64)
18. Dagur Jósefsson
20. Elvar Orri Sigurbjörnsson
25. Sesar Örn Harðarson ('64)
77. Einar Bjarki Einarsson ('84)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Bjarni Jóhannsson (Þ)
Ingi Rafn Ingibergsson
Þorkell Ingi Sigurðsson
Arnar Helgi Magnússon
Heiðar Helguson
Helgi Bárðarson
Halldór Rafn Halldórsson

Gul spjöld:
Ívan Breki Sigurðsson ('45)
Reynir Freyr Sveinsson ('78)
Jón Vignir Pétursson ('86)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Elías flautar þetta af! Sannfærandi sigur hjá Þrótti í dag
90. mín
+7

Selfoss dælir boltum inná teiginn en enginn hefur baráttuna til að ráðast á boltann
90. mín
+2

Þórhallur grípur fyrirgjöfina
90. mín
+1

Selfoss fær horn
89. mín
Frosti með fyrirgjöf á Raul sem nær skalla en hann er beint á Þórhall
88. mín
Sjúkraþjálfari Selfoss mættur inná að veita leikmanni Þróttar aðhlynningu
86. mín Gult spjald: Jón Vignir Pétursson (Selfoss)
86. mín Gult spjald: Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (Þróttur R.)
85. mín
Inn:Jakob Gunnar Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
84. mín
Inn:Einar Bjarki Einarsson (Selfoss) Út:Alfredo Ivan Sanabria (Selfoss)
82. mín
Sesar fær pláss til að skjóta en Hlynur kemst fyrir skotið
80. mín
Þarna var færi til að klára leikinn Aron sleppur einn gegn markmanni en skot hans langt framhjá
78. mín Gult spjald: Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss)
Taka innkastið stutt og missa boltann. Reynir hendir í óþarfa tæklingu og fær að launum gult spjald
78. mín
Reynir ætlar að láta reyna á langa innkastið
76. mín
Þórhallur tæpur! Góð fyrirgjöf frá Frosta á Raul sem á skalla beint á Þórhall sem missir boltann og hann dansar á línunni áður en að Þórhallur kastar sér á hann og handsamar hann. Selfoss þarf að vera grimmari þegar að boltinn dettur í teignum
75. mín Gult spjald: Hlynur Þórhallsson (Þróttur R.)
75. mín
Selfoss að fá horn
74. mín
Selfyssingar heppnir Alfredo með sendingu til baka sem Aron er búinn að lesa og nær til boltans og leggur hann upp á Eirík sem reynir að lyfta boltanum yfir Robert en boltinn framhjá
72. mín
Inn:Raúl Tanque (Selfoss) Út:Alexander Clive Vokes (Selfoss)
71. mín
Hornspyrnur Selfoss ekki verið góðar í dag og Þróttarar hreinsa
70. mín
Selfoss að fá horn
69. mín
Aron Fannar með skot inni í teig Þróttar en skotið hátt yfir
67. mín
Ekkert verður úr horninu
67. mín
Inn:Emil Skúli Einarsson (Þróttur R.) Út:Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
66. mín
Frosti kemur sér inná teiginn og á skot sem Þórhallur ver

Eiga Selfyssingar ennþá í séns?
64. mín Rautt spjald: Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.)
Þetta var rosalega klaufalegt! Er eitthvað að fíflast með boltann eftir að boltinn fer í innkast og neglir svo boltanum hátt upp í loftið og Elías lyftir upp seinna gula spjaldinu á hann.

Þetta var mjög klaufalegt hjá fyrirliðanum
64. mín
Inn:Sesar Örn Harðarson (Selfoss) Út:Ívan Breki Sigurðsson (Selfoss)
64. mín
Inn:Aron Fannar Birgisson (Selfoss) Út:Harley Willard (Selfoss)
62. mín
Harley í færi Löng sending úr aukaspyrnu frá Jóni sem Reynir vinnur inná teig Þróttar. Boltinn dettur á Harley sem nær að taka snertingu og leggja boltann fyrir sig á lofti en skot hans er yfir markið
59. mín MARK!
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.)
Frábærir taktar! Mikið ping-pong inná teig Selfoss þar sem liðin skiptast á að sparka í hvorn annan en eftir nokkur skipti skoppar upp á Vilhjálm sem tekur boltann í fyrsta með bakfalls spyrnu

Mjög flott mark og frábærir taktar frá Vilhjálmi
56. mín
Dauðafæri Viktor fær boltann á fjær stönginni og nær að taka boltann niður og koma honum fyrir markið en enginn mættur að ráðast á boltann og pota honum yfir línuna. Nokkrir voru nálægt því en það vantaði nokkra sentimetra uppá
54. mín
Inn:Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Unnar Steinn Ingvarsson (Þróttur R.)
53. mín
Þórhallur grípur seinni spyrnuna
52. mín
Ekki góð spyrna frá Harley sem Þróttur hreinsar í annað horn
52. mín
Selfoss fær horn
48. mín
Boltinn endar í höndum Roberts
48. mín
Þróttur að fá horn
46. mín
Seinni hálfleikur byrjaður
45. mín
Inn:Viktor Steinarsson (Þróttur R.) Út:Eiður Jack Erlingsson (Þróttur R.)
Skipting í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
45. mín Gult spjald: Ívan Breki Sigurðsson (Selfoss)
45. mín
Boltinn skoppar í teignum en þar er enginn til að ráðast á boltann
45. mín
Selfoss fær annað horn
43. mín
Fyrirgjöf Harley drífur ekki yfir fyrsta mann
42. mín
Selfoss að fá hornspyrnu
38. mín MARK!
Unnar Steinn Ingvarsson (Þróttur R.)
Þróttarar komast yfir! Hár bolti á Unnar sem á lausann skalla sem Robert kýlir út beint aftur á Unnar sem tekur boltann í fyrsta og enginn í markinu sem nær að koma boltanum í burtu
37. mín
Þróttur fær hornspyrnu
37. mín
Leikurinn búinn að opnast aðeins síðustu mínútur
35. mín
Robert að bjarga Selfossi! Hár og langur bolti á Liam sem gerir frábærlega í baráttunni við Jón og kemst einn í gegn en skot hans í andlit Roberts sem fær líklega blóðnasir og þarf á aðhlynningu að halda
32. mín
Sláin út! Clive með frábæra sendingu í gegn á milli varnarmanna Þróttar og Frosti kemst inná teiginn einn gegn Þórhalli og á þrumu skot í slánna og út. Flott sókn hjá Selfossi og Þróttarar stál heppnir að lenda ekki undir gegn gangi leiks
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín Gult spjald: Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.)
Stoppar Ívan sem er á leið í hraða sókn
29. mín
Clive með skot í varnarmann
25. mín
Þróttur vill víti Þórhallur grípur boltann og kastar yfir miðju og rétt rúmlega það! Liam er einn gegn Alfredo og bíður honum uppá kapphlaup þar sem hann virðist hafa haft betur og kemur sér inn í teiginn þar sem hann fer niður eftir klafs við Alfredo en Elías segir honum að standa upp
25. mín
Selfoss vill nýta löngu innköstin hjá Reyni
21. mín
Nacho fær aðhlynningu en er kominn aftur inná
20. mín
Þetta var athugavert Nacho liggur eftir og Elías lætur leikinn ganga í smá stund. Selfoss sparkar langt og Frosti kominn í álitlega stöðu en um leið þá ákveður Elías að stoppa leikinn. Selfyssingar augljóslega ekki sáttir
17. mín
Selfoss stillir upp lágt niðri á vellinum og leyfa öftustu línu Þróttar alveg að vera með boltann
13. mín
Rétt yfir! Þróttarar láta boltann ganga vel á milli sín. Aron fær boltann fyrir utan teig Selfoss og rennur honum út á Eið sem á fyrirgjöf í fyrsta sem ratar beint á Kára sem nær föstu skoti af stuttu færi en það er rétt yfir mark Selfyssinga
11. mín
Búið að reyna á markmanninn Kári með fínt skot sem að Robert ver. Fyrsta skot leiksins kemur hér á elleftu mínútu
10. mín
Njörður mikið að hreyfa sig á milli þess að vera djúpur á miðjunni og dett inn á milli hafsenta
10. mín
Uppstilling Þróttar Kári-Liam-Unnar

Aron-Brynjar
Njörður

Eiríkur-Baldur(f)-Hlynur-Eiður

Þórhallur (m)
7. mín
Eysteinn með fyrirgjöf sem Þróttarar skalla frá
5. mín
Uppstilling Selfyssinga í dag Frosti-Harley-Ívan

Alexander-Nacho-Aron Lucas

Eysteinn-Jón-Reynir-Alfredo

Robert
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað! Selfoss byrjar með boltann og sækir í suður
Fyrir leik
Þetta er að hefjast Liðin eru að ganga inná völlinn
Fyrir leik
Þetta gerist ekki betra Aðstæður á vellinum fullkomnar. Sólin skín og nánast enginn vindur. Hvet alla til að skella sér á völlinn
Fyrir leik
Leikurinn í beinni hér á Livey


Mate Dalmay
Fyrir leik
Þróttur Þróttarar hafa byrjað mótið ágætlega og eru með ellefu stig eftir sína sjö leiki en þeir sitja í 6. sæti deildarinnar. Þeirra sprækasti maður á leiktíðinni hefur verið Liam Jeffs en hinn ungi sóknarmaður er með 4 mörk í þessum sjö leikjum sem liðið hefur spilað á tímabilinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Selfoss Selfoss er fyrir þennan leik í 11. sæti með sex stig eftir sjö leiki. Selfoss fór í Grafarvoginn í síðustu umferð og unnu þar góðan sigur á botn liði Fjölni. Mörk Selfyssinga skoruðu Aron Lucas og Frosti Brynjólfs. Selfyssingar vonast til þess að fá a.m.k. eitt stig í dag til að lyfta sér upp úr fallsæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
8. umferð Lengjudeildar karla Komið þið sæl og verið velkomin á Jáverk-völlinn þar sem Selfoss tekur á móti Þrótt Reykjavík

Mynd: Árni Þór Grétarsson

Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
4. Njörður Þórhallsson
7. Eiður Jack Erlingsson ('45)
8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason ('85)
33. Unnar Steinn Ingvarsson ('54)
80. Liam Daði Jeffs ('67)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
6. Emil Skúli Einarsson ('67)
9. Viktor Andri Hafþórsson
10. Jakob Gunnar Sigurðsson ('85)
19. Benóný Haraldsson
20. Viktor Steinarsson ('45)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('54)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Stefán Þórður Stefánsson
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira

Gul spjöld:
Baldur Hannes Stefánsson ('30)
Hlynur Þórhallsson ('75)
Eiríkur Þorsteinsson Blöndal ('86)

Rauð spjöld:
Baldur Hannes Stefánsson ('64)