Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Leiknir R.
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
1 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 143' Valdimar JóhannssonDusan Brkovic 88'1 - 1
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson

SKÝRSLAN: Jafntefliskóngarnir koma frá Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Leiknir byrjaði af miklum krafti og voru betri fyrsta hálftímann. Njarðvíkingar unnu sig vel inn í leikinn og náðu inn marki fyrir hálfleik. Það var nokkuð jafnt með liðunum í síðari hálfleik og bæði lið fengu færi til þess að skora. Leiknir nær góðu jöfnunarmarki í lokin og þar við sat.

Bestu leikmenn

1. Amin Cosic

Var með áætlunarferðir upp vænginn og fór ítrekað illa með varnarmenn Leiknismanna. Alvöru gæði í þessum dreng sem var ítrekað að ógna.

2. Dusan Brkovic

Skoraði jöfnunarmarkið og var auk þess öflugur í öftustu línu Leiknismanna.

Atvikið

Njarðvík kemst yfir með hálfgerðu sprellimarki. Svavar Örn Þórðarson á skot í gegnum mannþröngin sem Ólafur Íshólm slær fyrir fætur Valdimars Jóhannssonar og hann kemur Njarðvík yfir fyrir hlé. Týpískt mark kannski fyrir lið sem strögglar að fá á sig.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvíkignar ná ekki að komast í toppsætið og sitja enn í öðru sætinu á markatölu. Leiknir lyftir sér uppfyrir Fylki í 9.sætið

Vondur dagur

Bakverðir Leiknis áttu í vandræðum þegar Amin Cosic réðst á þá. Ólafur Íshólm átti að gera betur í marki Njarðvíkur. Hjá Njarðvík eru þeir enn á ný að fá á sig mark úr föstu leikatriði svo einbeitning varnarlega átti slæmt móment.

Dómarinn - 6

Mér fannst ÞÞÞ og hans teymi bara komast þokkalega frá þessu. Ekki fullkomið en alls ekki alslæmt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.