Leik lokið!
HK-ingar hirða stigin þrjú!
Það er HK sem fer með sigur af hólmi hér í kvöld. Fylkismenn mun meira með boltann en HK-ingar refsuðu.
96. mín
HK-ingar virðast vera að sigla stigunum þremur heim í efri byggðir.
94. mín
Fylkir fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, skrýtin útfærsla og þeir tapa boltanum.
92. mín
516 manns á vellinum.
91. mín
Gult spjald
Emil Ásmundsson
Fylkismenn komnir í afbragðsfæri en Helgi Mikael dæmir brot á Fylki, við litla hrifningu Emils sem mótmælir.90. mín
Fylkismenn reyna og reyna
Birkir Eyþórs með skalla framhjá marki HK.
88. mín
Gult spjald
Brynjar Snær Pálsson
87. mín
Pablo Simon með viðstöðulaust skot eftir hornspyrnu Fylkis, en boltinn í Tuma Þorvars.
85. mín
Theodór tekur skot á mark HK en Ólafur ver vel.
77. mín
InnHelber Josua Catano Catano
ÚtBjarki Steinsen Arnarsson
77. mín
InnAron Kristófer Lárusson
ÚtDagur Ingi Axelsson
77. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtDagur Orri Garðarsson
77. mín
InnEmil Ásmundsson
ÚtEyþór Aron Wöhler
74. mín
Fylkir ógna
Skalli á mark gestanna en Ólafur Örn ver vel í marki HK.
71. mín
InnPablo Aguilera Simon
ÚtArnar Númi Gíslason
70. mín
Tumi í góðu færi
HK-ingar fara í skyndisókn, boltinn berst á öskufljótann Tuma sem keyrir að marki en skot hans geigar.
67. mín
HAUKUR REKINN AF VELLI!
Haukur Leifur Eiríksson
Haukur fer í harkalega tæklingu með sólann á lofti, Helgi Mikael hikar ekki og rífur upp rauða spjaldið. Persónulega finnst mér þetta fullgróft, en hvað veit ég.65. mín
DAGUR KEMUR HK YFIR!
Dagur Orri Garðarsson (stoðsending: Jóhann Þór Arnarsson)
Jóhann Þór þræðir Dag í gegn og sá síðarnefndi lyftir boltanum snyrtilega yfir Ólaf Kristófer og í netið! Stuðningsmenn HK syngja ,,Þessi fallegi Dagur.” Algjörlega gegn gangi leiksins.63. mín
InnBirnir Breki Burknason
ÚtKristján Snær Frostason
63. mín
InnAtli Arnarson
ÚtEiður Atli Rúnarsson
58. mín
Fylkir skorar en boltinn útaf!
Fylkismenn koma boltanum í netið en boltinn greinilega farinn allur af vellinum í aðdraganda marksins. Sýndist þetta vera réttur dómur.
57. mín
Arnar Númi með skot framhjá marki gestanna, Fylkir sterkari þessa stundina.
55. mín
Arnar Númi snýr vel á varnarmann HK og ætlar að lyfta boltanum yfir Ólaf, markvörð HK, en boltinn yfir markið.
52. mín
Gult spjald
Theodór Ingi Óskarsson
Fer í bókina góðu fyrir að stöðva skyndisókn.50. mín
HK-ingar umbreytast í brasilíska landsliðið og spila frábærlega á milli sín, kemur þó ekkert úr sókn gestanna og Ólafur Kristófer markvörður Fylkis endar með boltann.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
HK-ingar sparka boltanum beint útaf eftir upphafsspyrnuna, ný taktík.
46. mín
InnArnór Breki Ásþórsson
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
Ein breyting í hálfleik.
45. mín
Flautar strax til hálfleiks
+8
Helgi Mikael flautar til hálfleiks eftir mark HK. Fyllkir búið að vera sterkara liðið en allt jafnt þegar liðin ganga til búningsklefa!
45. mín
Á BESTA TÍMA!
Dagur Orri Garðarsson (stoðsending: Ívar Örn Jónsson )
+8 Dagur Orri skallar boltann inn eftir hornspyrnu. HK-ingar að jafna á besta tíma, rétt fyrir hálfleik!45. mín
+7
Gestirnir fá hornspyrnu.
45. mín
Rangstöðumark!
+4
Theódór Ingi setur boltann í netið eftir laglega skyndisókn heimamanna, en flaggið komið réttilega á loft.
45. mín
Heimamenn fá hornspyrnu, en gestirnir skalla frá.
42. mín
Theódór Ingi með skot langt framhjá marki HK.
38. mín
Gult spjald
Eiður Atli Rúnarsson
Eiður fer harkalega í tæklingu og uppsker gult spjald.37. mín
InnGuðmar Gauti Sævarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
29. mín
WÖHLERINN SKORAR
Eyþór Aron Wöhler
Eyþór sker inn á hægri fótinn og krullar boltann í stöngina og inn! Frábært mark en þetta var fyrsta mark Eyþórs í Lengjudeildinni.25. mín
InnÓlafur Örn Ásgeirsson
ÚtArnar Freyr Ólafsson
Arnar neyðist til að fara af velli óskum honum skjóts bata. Ólafur Örn kemur inn.
24. mín
Arnar Freyr markvörður HK liggur niðri og þarfnast aðhlynningar. Þetta er fyrsti leikur Arnars eftir að hann tognaði í upphafi mánaðar.
20. mín
Gestirnir fá hornspyrnu, eftir nokkurn darraðadans koma Fylkismenn boltanum frá.
17. mín
Fylkismenn sterkari aðilinn það sem af er leiks.
12. mín
Eyþór Wöhler fer harkalega í Kristján Snæ en sleppur með tiltal.
9. mín
Guðmundur Tyrfings með kraftlítið skot í átt að marki HK-inga sem Arnar Freyr handsamar auðveldlega.
8. mín
Tumi getur haldið leik áfram, góðar fréttir fyrir HK-inga.
6. mín
Tumi Þorvars liggur niðri og kveinkar sér, leikurinn stöðvaður og Tumi hlýtur aðhlynningar.
4. mín
Fylkismenn fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, Ívar Örn varnarmaður HK skallar frá.
3. mín
Leikurinn er í opinni dagskrà á Livey
1. mín
Þetta er farið af stað!
Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin trítla inn á völlinn við miklar undirtektir áhorfenda, styttist í þetta!
Fyrir leik
Arnar Freyr snýr aftur
Arnar Freyr Ólafsson markvörður HK snýr aftur í byrjunarlið gestanna. Arnar tognaði í leik gegn Selfossi fyrir rúmum tveimur vikum en er klár í dag.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra sem komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins á dögunum er spámaður okkar fyrir komandi umferð í Lengjudeildinni, sem hófst í gær.
Fylkir 2 - 1 HK (19:15 í kvöld)
Trúi ekki öðru en Fylkir rífi sig í gang eftir slaka byrjun á mótinu. Fullkominn leikur fyrir þá til að snúa þessu við. Dramatík og sigurmark í uppótartíma.


Fyrir leik
Dómarinn
Helgi Mikael Jónasson sér um flauta leikinn hér í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Bryngeir Valdimarsson og Nour Natan Ninir
Eftirlitsmaður KSÍ er Jón Sigurjónsson

Fyrir leik
Möst win leikur fyrir Fylki?
Fylkir situr fyrir leik kvöldsins í níunda sæti deildarinnar með sjö stig. Liðið hefur aðeins unnið einn leik á timabilinu, gert fjögur jafntefli og tapað þremur. Liðið er aðeins stigi frá fallasæti. Fylkir mætti Grindavík í síðustu umferð og gerði liðið 1-1 jafntefli við Grindavík. Þóroddur Víkingsson skoraði mark Fylkismanna.
Fótbolti.net ræddi við Árna Frey þjálfara Fylkismanna eftir síðasta leik í Árbænum.
„Enn ein vonbrigðin að vinna ekki leik og þá sérstaklega hér á heimavelli. Við erum sjálfum okkur verstir"
Árni segir að liðið sé að slá heimsmet í meiðslum.
„Það gerist alltaf þegar að það gengur ekki vel. Þá fara menn kannski að ofhugsa hlutina. Við erum að skipta mikið á liðinu og rótera ekki kannski afþví að við viljum það endilega alltaf heldur eru margir meiddir og þannig er það hjá öllum liðum. Það var einhver sem kvartaði undan heimsmeti í meiðslum en ég held að við séum að bæta það heimsmet"
Árni Freyr hefur miklar áhyggjur af stöðunni en segist þó ekki geta haft áhyggjur af stöðu sinni hjá Fylki.
„Ég get ekki haft áhyggjur af einhverju sem ég hef enga stjórn á. Það er bara stjórnin sem ákveður það. Ég tel mig og teymið vera nægilega gott til þess að snúa þessu við og gera þetta vel en ég er ekkert að ljúga af þér að þetta hefur alveg komið inn í hausin á mér en við þurfum bara að halda áfram"

Fyrir leik
HK pakkaði Fjölni saman í Kórnum
HK situr fyrir leik kvölsins í þriðja sæti deildarinnar og er liðið með 14.stig, fjórum stigum á eftir toppliði ÍR. HK fékk Fjölni í heimsókn í síðustu umferð í leik sem endaði 3-0 fyrir HK og hefði mjög auðveldlega geta orðið stærri. Brynjar Snær Pálsson, Dagur Orri Garðarsson og Birnir Breki Burknason skoruðu mörk HK.
Hermann Hreiðarsson mætti í viðtal við Fótbolta.net eftir leikinn í Kórnum.
„Það er stutt síðan við spiluðum og fengum rosalegt högg í magann eftir góðan leik. Við svöruðum því, það sýnir oft úr hverju menn eru gerðir þegar það er búið að berja á sér. Þetta var rosalega góð liðsframmistaða," sagði Hemmi.
Hermann Hreiðarsson er ánægðu með leikmannahópinn sinn.
„Heilbrigð og öflug samkeppni. Við erum alltaf að skapa okkur og í dag small þetta hrikalega vel. Þeir áttu allir frábæran leik. Það er ekki bara það hversu öflugir þeir eru fram á við. Þeir eru duglegir, svakalegir iðnaðarmenn fremst á vellinum sem hlaupa úr sér lungun,"

Fyrir leik
Lengjudeildin hefur aldrei verið skemmtilegri
Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur í Árbæinn þar sem Fylkir og HK mætast í Lengjudeild karla.
Flautum til leiks klukkan 19:15.






