Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
FHL
FHL
Besta-deild kvenna
Fjarðabyggðarhöllin
1 - 4
Tindastóll
Tindastóll
0 - 130' Lara Margrét JónsdóttirChrista Björg Andrésdóttir 50'1 - 11 - 277' Birgitta Rún Finnbogadóttir1 - 387' Birgitta Rún Finnbogadóttir1 - 490' Elísa Bríet Björnsdóttir
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Birgitta Rún tryggði Tindastól stigin þrjú

Hvað réði úrslitum?

Reynslan og einstaklingsgæðin hjá Tindastólsliðinu réði úrslitum hér í kvöld, tvisvar gegn gangi leiksins komust Tindastólsstúlkur yfir.

Bestu leikmenn

1. Birgitta Rún Finnbogadóttir

Var frábær hér í dag, með 2 mjög mikilvæg og góð mörk og stoðsendinguna í fyrsta markinu. Öflug í wingback hjá Stólunum, alltaf hætta af henni þegar hún kemst af stað og átti laglegar fyrirgjafir í kvöld!

2. Genevieve Jae Crenshaw

Átti góðan leik í markinu, hélt Stólunum inn í leiknum lengi vel með góðar vörslur, þegar FHL var með hverja sóknina á fætur annari auk þess sem hún varði víti frá Brookshire sem hefði hæglega geta breytt leiknum!

Atvikið

Nokkur atvik hér í kvöld, slakt víti Brookshire sem Crenshaw varði þó vel! Hefði breytt leiknum ef FHL hefði komist yfir. Þá má einnig nefna hnéspark Makala í andlitið á Rósey fyrirliða FHL sem fékk við það skurð sem fossblæddi úr.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að FHL er enn á botninum án stiga en Tindastóll hins vegar lyftir sér upp í 7. sætið með 10 stig.

Vondur dagur

Skrítið að setja þetta á leikmann í sigurliðinu en Makala hefur átt betri dag. Fékk nóg af færum og hreinlega dauðafærum í dag en nýtti ekkert af þeim, hefði getað reynst Tindastól mjög dýrkeypt. Átti þá jafnframt sök á því á Rósey fyrirliði FHL fór útaf með skurð á enninu en sá ekki betur en hún hafi farið með hnéið upp í andlitið á henni!

Dómarinn - 5

Dómaratríóið hefur líklega séð betri dag, hefði viljað sjá þá lyfta spjöldum fyrr í leiknum, skrítið að setja ekki spjald á Makala eftir brotið á Rósey, þá hefðu þeir einnig getað dæmt víti í fyrri hálfleik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.