Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 1
1
Njarðvík
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 1
2
HK
Besta-deild kvenna
Fram
LL 1
3
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
FHL
LL 1
4
Tindastóll
FHL
1
4
Tindastóll
0-1 Lara Margrét Jónsdóttir '30
Christa Björg Andrésdóttir '50 1-1
1-2 Birgitta Rún Finnbogadóttir '77
1-3 Birgitta Rún Finnbogadóttir '87
1-4 Elísa Bríet Björnsdóttir '90
20.06.2025  -  18:00
Fjarðabyggðarhöllin
Besta-deild kvenna
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Byrjunarlið:
1. Keelan Terrell (m)
3. Íris Vala Ragnarsdóttir
4. Rósey Björgvinsdóttir (f) ('64)
8. Katrín Edda Jónsdóttir
11. Christa Björg Andrésdóttir ('84)
13. Hope Santaniello ('84)
14. Alexia Marin Czerwien
15. Björg Gunnlaugsdóttir
16. Mikaela Nótt Pétursdóttir
22. Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir
24. Calliste Brookshire
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
12. Embla Fönn Jónsdóttir (m)
5. Diljá Rögn Erlingsdóttir
9. Kamilla Björk Ragnarsdóttir
17. Viktoría Einarsdóttir ('64)
19. Ásdís Hvönn Jónsdóttir ('84)
20. Margrét Lilja Skarphéðinsdóttir
23. Bjarndís Diljá Birgisdóttir
25. Ólína Helga Sigþórsdóttir ('84)
30. Sóldís Tinna Eiríksdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Björgvin Karl Gunnarsson (Þ)
Ljubisa Radovanovic (Þ)
Sonja Björk Jóhannsdóttir
Matthildur Klausen
Aida Kardovic
Anna Caitlin Hurley
Anton Helgi Loftsson
Ólafur Sigfús Björnsson

Gul spjöld:
Christa Björg Andrésdóttir ('73)
Calliste Brookshire ('98)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Tindastóll tekur þennan leik 1-4!

Vá þetta var svakalegur seinni hálfleikur, Tindastóll leiddi 0-1 í hálfleik þó gegn gangi leiksins.

FHL jafnaði síðan á 50. mínútu, við það efldust þær og héldu áfram í sóknarhug, aftur komust Stólastúlkur yfir gegn gangi leiksins með flottu marki frá Birgittu og tóku Tindastóll í kjölfarið yfir leikinn og settu 2 mörk til viðbótar

Ég segi annars bara takk fyrir mig! Skýrslan kemur svo inn von bráðar!
98. mín
Inn:Emelía Björk Elefsen (Tindastóll ) Út:Lara Margrét Jónsdóttir (Tindastóll )
98. mín Gult spjald: Calliste Brookshire (FHL)
97. mín
FHL fá horn, setja hann inn í en Stólarnir ná að koma boltanum frá
95. mín
Inn:Magnea Petra Rúnarsdóttir (Tindastóll ) Út:Snæfríður Eva Eiríksdóttir (Tindastóll )
93. mín
Inn:Saga Ísey Þorsteinsdóttir (Tindastóll ) Út:Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (Tindastóll )
90. mín MARK!
Elísa Bríet Björnsdóttir (Tindastóll )
Okeiiiiiii Elísa Bríet vill fá að klára þetta fyrir Stólanna!
Skorar hér í opið mark eftir að hafa náð boltanum hér að harðfylgi
87. mín MARK!
Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
Stoðsending: Hrafnhildur Salka Pálmadóttir
Birgitta líklega að klára þetta fyrir Tindastól!

Hrafnhildur kemur upp völlinn með boltann setur hann út á Birgittu, hún setur boltann í Terrell, nær honum aftur og setur hann aftur bara pent í fjærhornið! Ótrúlega vel gert
84. mín
Inn:Ólína Helga Sigþórsdóttir (FHL) Út:Hope Santaniello (FHL)
84. mín
Inn:Ásdís Hvönn Jónsdóttir (FHL) Út:Christa Björg Andrésdóttir (FHL)
81. mín Gult spjald: Katherine Grace Pettet (Tindastóll )
Fær hér spjald fyrir að fara heldur harkalega í bakið á leikmanni FHL
81. mín
Makala aftur að komast í dauðafæri ein gegn markmanni en er ekki að eiga sinn besta dag og Terrell nær þessum af henni
77. mín MARK!
Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
Stoðsending: María Dögg Jóhannesdóttir
Vá! Aftur er Tindastóll að komast yfir, gegn gangi leiksins!

María á geggjaða sendingu upp Birgittu sem tekur við honum og leggur hann pent í fjærhornið!
74. mín
Björg í góðu færi! En klappar boltanum aðeins of lengi og á svo slakt skot beint á Chrenshaw
73. mín Gult spjald: Christa Björg Andrésdóttir (FHL)
Fyrsta gula spjald leiksins, virðist vera að fá spjald fyrir að klappa framan í dómarann
72. mín
Makala kemst í ágætis færi en er of lengi að athafna sig og missir hann
70. mín
Lara brýtur af sér og FHL tekur þetta stutt og hendist í sókn en boltinn afturfyrir
66. mín
CHREEEENSHAAAW Bryndís fær boltann í hendina inn í teig og vítaspyrna réttilega dæmd. Brookshire tekur spyrnuna en hún er laus og Chrenshaw fleygir sér í rétt horn og ver þetta glæsilega!
64. mín
Inn:Viktoría Einarsdóttir (FHL) Út:Rósey Björgvinsdóttir (FHL)
57. mín
Úffff Rósey liggur hér eftir og það fossblæðir úr enninu á henni, Makala lyfti fætinum ansi hátt, og sé ekki betur en hnéið á Makala hafi farið í andlitið á henni.
50. mín MARK!
Christa Björg Andrésdóttir (FHL)
FHL búið að jafna! Brookshire sendir hann fyrir markið og þar mætir Christa Björg og setur hann inn! Gerir þetta ótrúlega vel

4. mark FHL í sumar
49. mín
FHL heldur áfram að vera meira með boltann og í sókn, Tindastóll ekki komist yfir miðju
47. mín
Brookshire með flotta fyrirgjöf á Hope en Bryndís með frábæran varnarleik
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Hope sparkar leiknum aftur af stað!
45. mín
Hálfleikur
Tindastóll leiðir hér 0-1 í hálfleik,

Lara stangaði boltann inn fyrir gestina nokkuð gegn gangi leiksins en FHL hefur vaðið hér í færum og fengið hvorki meira en minna en 8 hornspyrnur.

Tindastóll er hins vegar svo gott í að beita skyndisóknum og þetta mark var algjörlega úr þeirra vopnabúri
45. mín
Hendi dæmd á Írisi Völu sem Hauk tekur en bein í hendurnar á Terrell
45. mín
Brookshire með skot en það vel framhjá
39. mín
Vaaaaarslaaaa Váá! Björg með skot en Crenshaw með svakalega vörslu, sá þennan inni en hún ver hann í samskeytin
37. mín
Makala komin í ágætis færi með Hranfhildi með sér en missir boltann
36. mín
Hornspyrna dæmd hér ranglega, kemur fyrir en Chrenshaw kýlir hann frá
36. mín
Makala brýtur á Írisi Völu, Rósey tekur þetta stutt
33. mín
Christa setur boltan í Bryndísi og hann fer aftur fyrir markið, horn sem Brookshire tekur en Crenshaw kýlir hann frá
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín MARK!
Lara Margrét Jónsdóttir (Tindastóll )
Stoðsending: Birgitta Rún Finnbogadóttir
Birgitta með laglega fyrirgjöf, þar kemur Lara á fleygiferð og stangar hann inn!
Fyrsta mark hennar í Bestu deildinni!

Nokkuð gegn gangi leiksins
29. mín
Alexia í svakalegu færi, nær skallanum en boltinn afturfyrir
29. mín
Björg sækir hér aukaspyrnu á hættulegum stað sem Brookshire tekur
27. mín
Birgitta með lglega fyrirgjöf, Makala rétt missir af skallanum
26. mín
Brookshire með flott skot en framhjá, FHL að ógna mun meira hér
20. mín
FHL með horn en Tindastóll kemur þessu í burtu
18. mín
Tindastóll stálheppnar að ekki hafi verið dæmd vítaspyrna, risa peysutog inn í vítateig
17. mín
Stunga inn á Hope, en Nikola Hauk nær henni og kemur í veg fyrir skyndisókn
15. mín
Boltinn upp í loft eftir útspark hjá Crenshaw og FHL fær boltann, þær komast í sókn sem endar með skoti Írisar Völu en ekkert kemur út úr þessu
14. mín
Hrafnhildur með góða fyrirgjöf inn í teig en þar var engin
8. mín
Björg með skot á markið en það hátt yfir og framhjá
4. mín
Hrafnhildur Eik með boltann inn í teig en setur hann í Bryndísi og horn dæmt, hornið inn í en stólarnir hreinsa frá
2. mín
Dauðafæææriiiii Stunga inn á Makalu, hún í dauðfæri en fer illa með það og boltinn beint í fangið á Terrell
1. mín
Leikur hafinn
Birgitta sparkar þessu af stað fyrir Tindastól
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Fyrir leik
Byrjunarliðin í kvöld Bæði lið eru óbreytt frá síðustu tapleikjum í 9. umferð Bestu deildarinnar
Fyrir leik
Botnslagur af bestu gerð. FHL hefur verið í miklum vandræðum að skora og hafa aðeins skorað 3 mörk í 9 leikjum hingað til. Liðið hefur ekki skorað í síðustu fjórum leikjum eða síðan Aida Kardovic meiddist.

Að því sögðu þá vekur stuðullinn á undir 0,5 mörk frá FHL í dag á stuðlinum 3,70 hjá Epic athygli.
Mate Dalmay
Fyrir leik
Spáin fyrir leik! Orri Rafn Sigurðarson, fyrrum fréttamaður Fótbolta.net, spáði í leikina en hann fylgist vel með kvennaboltanum á Íslandi sem og annars staðar.

FHL 1 - 3 Tindastóll
Landsbyggðarslagur eins og þeir gerast bestir! FHL virðast vera nokkrum númerum of litlar fyrir Bestu deildina og ég held að þær muni þurfa að bíða aðeins lengur eftir sínum fyrstu stigum. Keelan mun eiga alvöru leik í markinu en það dugir ekki til. Anna Hurley mun skora fyrir FHL en þær Makala Woods og María Dögg klára þetta fyrir Tindastól.



Fyrir leik
Tindastóll Tindastóll kemur inn í þennan leik eftir 5-1 tap gegn FH eftir að hafa verið yfir 0-1 í hálfleik.

Þær hljóta að koma brjálaðar inn í þennan leik og sækja til sigurs en í fyrri leik liðanna sigraði Tindastóll 1-0 á heimavelli, annar af tveimur sigrum Tindastóls í sumar.

Við getum því átt von á hörkuleik hér í kvöld!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FHL FHL tapaði síðasta leik sínum 0-4 gegn Víking og sitja í neðsta sæti án stiga.

Ekki er ólíklegt að þær leiti að fyrstu stigum sínum í sumar í þessum leik en mótherji þeirra í kvöld, Tindastóll, situr sæti ofar.

Fyrri leikur liðanna fór 1-0 fyrir Tindastól og er því von á hörkuleik hér í kvöld í sannkölluðum botnslag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik FHL og Tindastóls í 10. umferð Bestu deildarinnar, vegna óviðráðanlegra aðstæðna þá er lýsingin gerð í gegnum sjónvarpsútsendingu en vonandi kemur það ekki að sök!

Leikurinn fer fram í Fjarðabyggðarhöllinni og hefst klukkan 18:00

Mynd: Fjarðabyggð

Byrjunarlið:
1. Genevieve Jae Crenshaw (m)
3. Bryndís Rut Haraldsdóttir (f)
4. Nicola Hauk
9. María Dögg Jóhannesdóttir
10. Elísa Bríet Björnsdóttir
13. Birgitta Rún Finnbogadóttir
14. Lara Margrét Jónsdóttir ('98)
17. Snæfríður Eva Eiríksdóttir ('95)
25. Makala Woods
26. Katherine Grace Pettet
30. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('93)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Sigríður H. Stefánsdóttir (m)
2. Saga Ísey Þorsteinsdóttir ('93)
15. Emelía Björk Elefsen ('98)
16. Katla Guðný Magnúsdóttir
23. Magnea Petra Rúnarsdóttir ('95)
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Margrét Bjarnadóttir

Gul spjöld:
Katherine Grace Pettet ('81)

Rauð spjöld: