
Við erum að detta inn í helgina, það er kominn föstudagur. Það er gott að byrja þennan dag með slúðrinu sem stendur sem hæst þessa dagana þar sem félög eru í óðaönn að undirbúa hópa sína fyrir næsta tímabil.
Chelsea ætlar að stela Joao Pedro (23), sóknarmanni Brighton, af Newcastle. (Sun)
Noni Madueke (23), kantmaður Chelsea, er undir smásjá margra félaga og þar á meðal Arsenal. (Telegraph)
Liverpool hefur enn ekki fengið nein tilboð í sóknarmanninn Darwin Nunez en síðast var hann orðaður við Napoli. (Liverpool Echo)
Liverpool hefur áhuga á Marc Guehi (24), varnarmanni Crystal Palace. (Daily Mail)
Manchester United þarf að hækka tilboð sitt verulega í framherjann Bryan Mbeumo (25) ef félagið ætlar sér að landa honum frá Brentford. (The i Paper)
Nottingham Forest er nálægt því að kaupa tvo leikmenn frá Botafogo í Brasilíu; sóknarmanninn Igor Jesus (24) og varnarmanninn Jair Cunha (20). (Telegraph)
Viktor Gyökeres (27), sóknarmaður Sporting, færist nær því að ganga í raðir Arsenal frekar en Manchester United. (Talksport)
Florian Wirtz (22) mun ganga frá félagaskiptum sínum til Liverpool í dag. (ESPN)
Brighton fékk 25,6 milljón punda tilboð frá Napoli í miðjumanninn Matt O'Riley (24). (Sky Sports)
Napoli og AC Milan hafa áhuga á Federico Chiesa (27), framherja Liverpool. (Kiss Kiss Napoli)
Sunderland, sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni, vilja fá miðvörðinn Duje Caleta-Car (28) frá Lyon. Hann spilaði áður með Southampton. (Newcastle Chronicle)
Everton er byrjað að ræða við miðvörðinn Jarrad Branthwaite (22) um nýjan samning. Branthwaite á tvö ár eftir af samningi sínum en David Moyes, stjóri Everton, vill að félagið geri við hann langtímasamning. (Liverpool Echo)
Það er búist við því að Thomas Partey (30) muni yfirgefa Arsenal um mánaðarmótin þar sem samningaviðræður hans við félagið sigldu í strand. (ESPN)
Jamie Gittens (20), kantmaður Borussia Dortmund, er staðráðinn í að ganga í raðir Chelsea í sumar. (Standard)
Manchester United er að taka stöðuna með það hvort það sé möguleiki fyrir félagið að fá Joao Palhinha (29) á láni frá Bayern München í sumar. (Givemesport)
Joe Gomez (28), varnarmaður Liverpool, er á óskalista Crystal Palace, Leeds og West Ham. (TBR Football)
Benjamin Sesko (22), sóknarmaður RB Leipzig, vill hafa riftunarverð í samningi sínum ef hann fer til Arsenal í sumar. (The Transfers Podcast)
Napoli og Inter Miljan vilja fá pólska ungstirnið Antoni Burkiewicz (17) frá Rakow Czestochowa (Teamtalk)
Athugasemdir