Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
KFG
4
2
Víðir
0-1 David Toro Jimenez '13
Bóas Heimisson '28 1-1
Kristján Ólafsson '30 2-1
Jón Arnar Barðdal '45 3-1
3-2 Kristófer Snær Jóhannsson '84
Kristján Ólafsson '90 4-2
25.06.2025  -  19:15
Samsungvöllurinn
Fótbolti.net bikarinn
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Maður leiksins: Kristján Ólafsson (KFG)
Byrjunarlið:
25. Guðmundur Rafn Ingason (m)
7. Jón Arnar Barðdal (f)
10. Helgi Snær Agnarsson ('82)
11. Kristján Ólafsson
15. Arnar Ingi Valgeirsson
21. Adrían Baarregaard Valencia
22. Bóas Heimisson
24. Daníel Darri Þorkelsson ('5)
37. Guðmundur Thor Ingason ('39)
90. Djordje Biberdzic ('82)
94. Jökull Sveinsson ('82)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
2. Stefán Alex Ríkarðsson ('5)
5. Benedikt Pálmason ('82)
8. Atli Freyr Þorleifsson ('82)
19. Ólafur Viðar Sigurðsson ('82)
23. Arnar Darri Þorleifsson
95. Eyþór Örn Eyþórsson ('39)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Veigar Páll Gunnarsson (Þ)
Andri Sigurjónsson
Róbert Kolbeins Þórarinsson
Adrían Nana Boateng

Gul spjöld:
Adrían Baarregaard Valencia ('53)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
KFG slær Víði úr leik Góður dómari leiksins hefur flautað af. Þessi leikur var prýðileg skemmtun og bæði lið eiga hrós skilið fyrir hörkuleik með flottum tilþrifum inn á milli.

Maður leiksins er Kristján Ólafsson sem skoraði tvö mörk fyrir KFG, það seinna var stórglæsilegt svo vægt sé til orða tekið!

Takk fyrir mig!
90. mín
Uppbótartími í gangi Erum hér í uppbótartíma en ljóst að KFG er komið skrefi nær hybrid grasi Laugardalsvallar. Endurtek það að dregið verður í 16-liða úrslitin í hádeginu á föstudag, í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
90. mín MARK!
Kristján Ólafsson (KFG)
Víðismenn lögðu allt í sóknina og Kristján, sem hefur komið sér í hvert dauðafærið á fætur öðru, innsiglar hér sæti KFG í 16-liða úrslitum. Fékk allan tíma heimsins í teignum til að athafna sig og koma boltanum í netið!
90. mín
Síðasta mínútan í hefðbundnum leiktíma Víðir að rembast eins og rjúpan við staurinn að skapa sér færi og eiga möguleika á jöfnunarmarki.
88. mín
Jón Arnar með hornið, Eyþór Örn skallar en þarf að teygja sig í boltann og nær ekki að stýra honum á markið.
87. mín
Stuðningsmenn Víðis taka vel við sér og hvetja sitt lið áfram. Í þessum skrifuðu orðum kemst Kristján í annað dauðafæri, varnarmaður Víðis kemst fyrir skotið og boltinn endar í hornspyrnu.
86. mín
Kristján Ólafsson hefði getað klárað þetta fyrir KFG en hitti boltann herfilega í dauðafæri og skaut hátt yfir!
84. mín MARK!
Kristófer Snær Jóhannsson (Víðir)
Spenna á lokasprettinum!!! Varamaðurinn Kristófer Snær sleppur skyndilega einn í gegn og klárar hreint frábærlega! Vippar boltanum rétt yfir markvörð heimamanna!

Alvöru lokamínútur framundan!
82. mín
Inn:Ólafur Viðar Sigurðsson (KFG) Út:Jökull Sveinsson (KFG)
82. mín
Inn:Atli Freyr Þorleifsson (KFG) Út:Djordje Biberdzic (KFG)
82. mín
Inn:Benedikt Pálmason (KFG) Út:Helgi Snær Agnarsson (KFG)
78. mín
KFG líklegra til að bæta við þessar mínútur heldur en Víðir að minnka muninn. Heimamenn fengið nokkrar hornspyrnur í röð og Helgi Snær fékk fínt skallafæri í teignum.
72. mín
Það hefur dregið verulega af Víðismönnum og maður skynjar ekki að þeir hafi mikla trú á því að þeir geti komið til baka úr þessari stöðu.
70. mín
Inn:Kristófer Snær Jóhannsson (Víðir) Út:David Toro Jimenez (Víðir)
69. mín
Inn:Dusan Lukic (Víðir) Út:Dominic Lee Briggs (Víðir)
67. mín
Hörkuskot! Jón Arnar Barðdal með fast skot en beint á Jón Orra í marki gestana.
65. mín
David Toro kemst í hættulega stöðu í teignum sem Víðismenn náðu ekki að nýta sér. Þarna hefðu þeir getað komið sér inn í þetta.
60. mín
Flott sókn Víðismanna! David Toro með frábæra sendingu í teiginn og Uros Jemovic á skot í hliðarnetið.
56. mín
David Toro reynir skot úr þröngu færi en hittir boltann afleitlega og hann siglir örugglega framhjá.
53. mín Gult spjald: Adrían Baarregaard Valencia (KFG)
53. mín
Einn gegn markverði! Djordje Biberdzic skyndilega sloppinn einn í gegn en markvörður Víðis gerir vel og lokar á hann. Þarna hefði KFG getað farið langt með að gera út um leikinn!
51. mín
Víðismenn einokað boltann í upphafi seinni hálfleiks en ekki náð að skapa sér opið færi. Óskum Álftanesi og Gróttu til hamingju með að vera í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitin á föstudaginn.

   25.06.2025 20:10
Fótbolti.net bikarinn: Laglegt aukaspyrnumark fyrirliðans sendi Álftanes áfram - Grótta vann Dalvík/Reyni
46. mín
Inn:Alexis Alexandrenne (Víðir) Út:Einar Örn Andrésson (Víðir)
46. mín
Inn:Jón Orri Sigurgeirsson (Víðir) Út:Jón Garðar Arnarsson (Víðir)
Búið að flauta seinni hálfleik af stað Kaffi og sígó að baki og seinni hálfleikurinn er farinn í gang. Markvarðaskipti hjá Víðismönnum.
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki! Toro átti skot í lok fyrri hálfleiksins sem var varið.

Fjögur mörk í fyrri hálfleik, þar af eitt úr allra efstu hillu, og slatti af færum, línubjörgunum og stuði. Vonandi verður það sama á boðstólnum í seinni hálfleik. KFG leiðir mjög verðskuldað í hálfleik, eftir að hafa lent undir í leiknum. Heyrumst eftir korter!
45. mín MARK!
Jón Arnar Barðdal (KFG)
Í UPPBÓTARTÍMA FYRRI HÁLFLEIKS! Þéttingsfast skot fyrir utan teig, í bláhornið! Óverjandi. KFG komið í góða stöðu!
44. mín
Helgi Snær Agnarsson, fyrrum þjálfari Einherja, með máttlítinn skalla að marki Víðis eftir hornspyrnu. Jón Garðar markvörður ekki í vandræðum með að grípa boltann.
39. mín
Inn:Eyþór Örn Eyþórsson (KFG) Út:Guðmundur Thor Ingason (KFG)
Önnur skipting hjá KFG vegna meiðsla Vinstri bakvörðurinn þarf að fara af velli og við þessa skiptingu eru hrókeringar á liðinu, smá hringekja.
38. mín
ÆVINTÝRALEG BJÖRGUN! Vonandi eru allir búnir að panta sér pizzu

Adrían Baarregaard Valencia svo nálægt því að skora þriðja mark KFG. Páló og aðrir stuðningsmenn KFG voru byrjaðir að fagna í stúkunni en Aron Örn Hákonarson bjargaði á línu á ævintýralegan hátt.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín MARK!
Kristján Ólafsson (KFG)
DÝRARI TÝPAN! Þvílíkt skot! Vá takk fyrir túkall! Þetta var úr efstu skúffu.

Eftir baráttu í teignum eftir hornspyrnu KFG þá dettur boltinn á Kristján fyrir utan teiginn sem nær draumaskoti upp við samskeytin!

Jón Garðar í marki Víðis stendur bara eins og stytta á línunni og horfir á boltann syngja í netinu.
29. mín
David Toro að gera sig líklegan til að skora annað mark sitt. Á tvær tilraunir með stuttu millibili, Guðmundur Rafn ver þá fyrri en sú seinni flýgur yfir.
28. mín MARK!
Bóas Heimisson (KFG)
Stoðsending: Jón Arnar Barðdal
KFG jafnar úr hornspyrnu! Bóas Heimisson með flott skallamark eftir hornspyrnu frá vinstri og staðan er orðin jöfn!

Fín byrjun á þessum leik. Þeir áhorfendur sem borguðu sig inn hafa ekki verið sviknir.
25. mín
Skottilraun KFG Kristján Ólafsson, sonur Óla Kristjáns þjálfara kvennaliðs Þróttar, með skottilraun en hittir boltann ekkert sérstaklega vel og hann flýgur töluvert framhjá markinu.
23. mín
Leikurinn stöðvaður eftir höfuðhögg. Skot sem fer í höfuðið á Daniel Beneitez sem liggur eftir. Brynjar dómari stöðvar leikinn tímabundið.
22. mín
Skottilraun Víðismanna David Toro með nokkuð lúmska skottilraun fyrir utan teig, framhjá markinu. Ekkert galin tilraun.
20. mín
Bréf úr Vesturbænum KV og Hvíti Riddarinn eru að eigast við í þessari keppni, leikurinn hófst á sama tíma.

"Mark ársins komið í Fótbolti.net bikarkeppninni. Leikmaður Hvíta fékk boltan rétt fyrir utan eigin vítateig, hljóp í gegnum alla vörn KV og þegar hann var kominn að vítateig KV vippaði hann boltanum yfir markmann KV. Maradona HM 1986."
17. mín
KFG nálægt því að jafna! Helgi Snær með skot en það er bjargað á línu! KFG að kalla eftir því að fá hendi, mark, eða bara eitthvað. Áfram heldur leikurinn!
13. mín MARK!
David Toro Jimenez (Víðir)
Fyrsta færið hjá Víði og það er mark! Algjörlega gegn byrjun leiksins!

David Toro rænir boltanum af leikmanni KFG og kemst í gegn, kemur boltanum framhjá Guðmundi markverði KFG og boltinn rúllar inn.

Mögulega skráist þetta mark á Uros Jemovic sem var mættur á línuna í baráttu við varnarmann KFG en ég gef Toro þetta. Hann á algjörlega heiðurinn af þessu marki.
13. mín
Djordje Biberdzic nálægt því að komast í dauðafæri en á slaka móttöku á boltann, missir hann frá sér og gerist svo brotlegur.
12. mín
Garðbæingar byrja betur KFG heldur áfram að stjórna ferðinni. Bóas Heimisson með skot fyrir utan teig sem fer töluvert framhjá.
11. mín
Dregið á föstudag Fyrsta leik dagsins í keppninni er lokið. Höttur/Huginn verður í pottinum þegar dregið verður á föstudaginn, í hádeginu, í beinni textalýsingu Fótbolta.net.

   25.06.2025 19:05
Fótbolti.net bikarinn: Glæsileg endurkoma Hattar/Hugins
8. mín
KFG ógnar meira í upphafi leiks KFG skeinuhættari í byrjun og hafa fengið tvær hornspyrnur sem fyrirliðinn Jón Arnar Barðdal hefur séð um að taka. Náðu hinsvegar ekki að skapa sér færi úr hvorugri spyrnunni.
5. mín
Inn:Stefán Alex Ríkarðsson (KFG) Út:Daníel Darri Þorkelsson (KFG)
Skipting vegna meiðsla strax í byrjun.
5. mín
Mihajlo Bibercic er í stúkunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er að fylgjast með syni sínum Djordje sem spilar fyrir heimamenn í KFG.
4. mín
Aðhlynning Daníel Darri Þorkelsson liggur eftir á vellinum eftir að hafa lent í samstuði við Dominic Briggs, leikmann Víðis.
1. mín
Leikur hafinn
Brynjar Þór hefur flautað til leiks. Víðismenn sem hófu leik.
Fyrir leik
Þá er allt til reiðu og liðin ganga til vallar Ég er kominn inn í boxið góða og fólk er að koma sér fyrir í stúkunni. Menn eru að búast við jöfnum og skemmtilegum leik. Ef staðan verður jöfn að loknum venjulegum leiktíma þá verður framlengt, vítakeppni ef staðan verður enn jöfn eftir 120. Góða skemmtun!
Fyrir leik
Stutt í leik og leikmenn að klára upphitun Blaðamannaboxið er harðlæst og verið að leita að einhverjum með lyklavöld. Það reddast vonandi áður en blásið verður til leiks.
Fyrir leik
Það er markaveisla í kortunum og stuðullinn á Epic á yfir 3.5 mörk er 2.05
Mate Dalmay
Fyrir leik
Tvö stig skilja liðin að á Íslandsmótinu Eftir níu umferðir í 2. deildinni er KFG í 8. sæti með 10 stig en Víðir í 11. sæti með 8 stig. Liðin mættust síðasta föstudag hér í Garðabænum og þar vann KFG 2-1 sigur.

KFG 2 - 1 Víðir
1-0 Dagur Óli Grétarsson ('49 )
1-1 Haraldur Smári Ingason ('51 )
2-1 Kristján Ólafsson ('75 )
Fyrir leik
Liðin sem léku fyrsta úrslitaleikinn KFG og Víðir léku til úrslita á Laugardalsvelli 2023, í fyrsta sinn sem keppnin var haldin.

Ólafur Bjarni Hákonarson kom KFG yfir í þeim leik, Tómas Leó Ásgeirsson jafnaði úr víti og það var svo dramatík í lokin þegar Elís Már Gunnarsson skoraði sigurmarkið á 88. mínútu.

Selfoss varð meistari á síðasta ári eftir að hafa unnið KFA 3-1 á Laugardalsvelli. Selfoss er eðlilega ekki með ár þar sem liðið fór upp í Lengjudeildina

   29.09.2023 21:14
Fótbolti.net bikarinn: Víðir vann á Laugardalsvelli

   01.10.2023 06:30
Myndaveisla: Víðir vann Fótbolti.net bikarinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Nour Natan Ninir og Ásmundur Hrafn Magnússon.
Fyrir leik
Leiðin á Laugardalsvöll Tindastóll, Ýmir, Reynir Sandgerði, Kári og KFA tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum í gær. Tíu leikir verða í kvöld og svo verður dregið í 16-liða úrslit keppninnar í beinni textalýsingu í hádeginu á föstudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heil og sæl, velkomin með okkur á Samsungvöllinn í Garðabæ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hér fer fram leikur KFG og Víðis í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda.

miðvikudagur 25. júní
16:45 Höttur/Huginn-KÁ (Fellavöllur)
18:00 KF-Álftanes (Ólafsfjarðarvöllur)
18:00 Grótta-Dalvík/Reynir (Vivaldivöllurinn)
19:15 Magni-Kormákur/Hvöt (Grenivíkurvöllur)
19:15 Sindri-Árbær (Jökulfellsvöllurinn)
19:15 KV-Hvíti riddarinn (KR-völlur)
19:15 Víkingur Ó.-Elliði (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 KFG-Víðir (Samsungvöllurinn)
19:15 Haukar-Ægir (BIRTU völlurinn)
19:15 ÍH-Þróttur V. (Skessan)

mánudagur 7. júlí
18:00 KFS-Vængir Júpiters (Týsvöllur)
Byrjunarlið:
12. Jón Garðar Arnarsson (m) ('46)
6. Paolo Gratton (f)
8. Ottó Helgason
10. David Toro Jimenez ('70)
11. Uros Jemovic
14. Daniel Beneitez Fidalgo
17. Cristovao A. F. Da S. Martins
21. Dominic Lee Briggs ('69)
24. Aron Örn Hákonarson
26. Róbert William G. Bagguley
27. Einar Örn Andrésson ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
1. Jón Orri Sigurgeirsson (m) ('46)
5. Dusan Lukic ('69)
7. Alexis Alexandrenne ('46)
19. Tómas Freyr Jónsson
25. Eyþór Ingi Einarsson
43. Þórir Guðmundsson
54. Kristófer Snær Jóhannsson ('70)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sveinn Þór Steingrímsson (Þ)
Björgvin Freyr Larsson
Markús Máni Jónsson
Haraldur Smári Ingason
Snorri Már Jónsson
Cameron Michael Briggs

Gul spjöld:

Rauð spjöld: