Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 20:10
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolti.net bikarinn: Laglegt aukaspyrnumark fyrirliðans sendi Álftanes áfram - Grótta vann Dalvík/Reyni
Bjarki Flóvent sendi Álftanes áfram með laglegu marki
Bjarki Flóvent sendi Álftanes áfram með laglegu marki
Mynd: Álftanes
Björgvin Brimi skoraði í sigri Gróttu
Björgvin Brimi skoraði í sigri Gróttu
Mynd: Grótta
Álftanes og Grótta tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins í kvöld.

Álftanes vann KF, 1-0, á Ólafsfjarðarvelli en eina markið gerði fyrirliðinn Bjarki Flóvent Ásgeirsson með stórglæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik.

Það vakti athygli að tveir leikmenn fæddir 2010 voru í hópnum hjá KF og einn þeirra í byrjunarliðinu. Elís Beck Kristófersson byrjaði leikinn og þá var Sebastian Amor Óskarsson á bekknum.

Grótta vann þá Dalvík/Reyni, 2-1, á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi, en sá leikur var í beinni textalýsingu á Fótbolti.net.

Dalvíkingar höfðu átt hættulegasta færi leiksins á 26. mínútu er Tómas Þórðarson skaut boltanum úr teignum en Alexander Arnarsson varði það og fjórum mínútum síðar kom Björgvin Brimi Andrésson heimamönnum í forystu.

Hann gerði vel fyrir utan vítateig gestanna og skaut boltanum sem fór af varnarmanni og í netið.

Hálftíma fyrir leikslok tvöfölduðu Gróttumenn forystuna úr vítaspyrnu. Marciano Aziz öruggur á punktinum.

Dalvík/Reynir tókst að minnka muninn með laglegu sporðdrekasparki en það kom of seint og lokatölur því 2-1.

Álftanes og Grótta komin með farseðil inn í 16-liða úrslitin en Dalvík/Reynir og KF úr leik.

Úrslit og markaskorarar:

KF 0 - 1 Álftanes
0-1 Bjarki Flóvent Ásgeirsson

Grótta 2 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Björgvin Brimi Andrésson ('30 )
2-0 Marciano Aziz ('60 , víti)
2-1 Þröstur Mikael Jónasson ('93 )
Lestu um leikinn
Athugasemdir
banner