Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
4
Breiðablik
Lengjudeild karla
Selfoss
LL 2
2
Leiknir R.
Lengjudeild karla
ÍR
LL 6
1
Grindavík
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 2
2
HK
Besta-deild karla
KA
LL 2
5
Valur
Lengjudeild karla
Fjölnir
LL 0
5
Þór
Vináttulandsleikur
Serbía
LL 1
3
Ísland
ÍR
6
1
Grindavík
Bergvin Fannar Helgason '11 1-0
Emil Nói Sigurhjartarson '55 2-0
Víðir Freyr Ívarsson '66 3-0
Bergvin Fannar Helgason '68 4-0
Víðir Freyr Ívarsson '71 5-0
5-1 Adam Árni Róbertsson '80
Bergvin Fannar Helgason '85 , víti 6-1
27.06.2025  -  19:15
AutoCenter-völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Breki Hólm Baldursson ('60)
4. Sigurður Karl Gunnarsson
6. Kristján Atli Marteinsson
7. Óðinn Bjarkason
8. Alexander Kostic
9. Bergvin Fannar Helgason
13. Marc Mcausland (f)
16. Emil Nói Sigurhjartarson
19. Hákon Dagur Matthíasson ('44)
23. Ágúst Unnar Kristinsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
5. Hrafn Hallgrímsson
14. Víðir Freyr Ívarsson ('44)
21. Sigurður Orri Ingimarsson
22. Jónþór Atli Ingólfsson
25. Gundur Ellingsgaard Petersen ('60)
30. Renato Punyed Dubon
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Helgi Freyr Þorsteinsson
Ívan Óli Santos
Andri Magnús Eysteinsson
Sölvi Haraldsson
Davíð Örvar Ólafsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stórsigur ÍR staðreynd sem fer í toppsætið með rosalega bætingu á markatölu.

Frekari viðbrögð væntanleg.
88. mín
Alexander Kostic með skot eftir góða sókn ÍR en setur boltann framhjá.
85. mín Mark úr víti!
Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Öryggið uppmálað og þrenna í húsi!
84. mín
ÍR er að fá vítaspyrnu! Bergvin Fannar sparkaður niður.

Hann fer skiljanlega sjálfur á punktinn og reynir við þrennuna.
80. mín MARK!
Adam Árni Róbertsson (Grindavík)

Mc Ausland rosalega kærulaus í öftustu línu og tapar boltanum. Adam Árni hirðir upp boltann og keyrir inn á teiginn og skorar með góðu skoti af vítapunkti.
80. mín
Úrslitin ráðinn og leikurinn ber þess merki. Grindvíkingar hættir og heimamenn hafa tögl og haldir á vellinum.En virðast hafa skipt niður um nokkra gíra skiljanlega.
74. mín
Grindvíkingar hafa lagt árar í bát hér í dag. Allur vindur úr þeim og stendur ekki steinn yfir steini í þeirra leik.
71. mín MARK!
Víðir Freyr Ívarsson (ÍR)
Stoðsending: Marc Mcausland
Slátrun!
Hornspyrna frá hægri berst á nærstöng þar sem Marc flikkar honum yfir á fjær. Víðir aleinn og á ekki í teiljandi vandræðum með að skalla boltann í netið frá markteig.

Tvö mörk frá varamanninum í dag.
68. mín MARK!
Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Heimamenn leika á alls oddi! Boltinn fellur fyrir Bergvin í teignum eftir hornspyrnu. Hann nær valdi á boltanum og skorar með föstu skoti úr miðjum teignum.
66. mín MARK!
Víðir Freyr Ívarsson (ÍR)
Hérðsbúinn skorar!
Hans fyrsta mark í Lengjudeildinni og það var glæsilegt!

Bergvin vinnur boltann á miðjum vellinum og keyrir í átt að marki. Víðir sker inn á völlinn frá vinstri og fær boltann í D-boganum og skorar með hnitmiðuðu skoti niður í hægra horn marksins.
63. mín
ÍR vinnur horn.

Skömmu áður hafði Grindavík fengið ágætt færi eftir að Ármann hætti að elta boltann í rangstöðunni. Flaggið fór niður og mér sýndist það vera Breki sem náði til boltans og átti skot sem Vilhelm varði.
60. mín
Inn:Gundur Ellingsgaard Petersen (ÍR) Út:Breki Hólm Baldursson (ÍR)
58. mín
Ármann Ingi kemst inn á teiginn frá hægri og reynir að setja hann á Adam sem er mættur í hlaupið en Vilhelm grípur vel inní.
57. mín
Inn:Viktor Guðberg Hauksson (Grindavík) Út:Sindri Þór Guðmundsson (Grindavík)
55. mín MARK!
Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
Stoðsending: Bergvin Fannar Helgason
Heimamenn tvöfalda
Vinna boltann og setja í fluggír. Boltinn fyrir markið frá hægri þar sem Bergvin tíar hann upp fyrir Emil sem skorar með góðu skoti af vítapunkti.
50. mín
Hætta i teig Grindavíkur eftir hornspyrnu frá vinstri. Heimamen ná ekki að koma boltanum á markið og markspyrna niðurstaðan.
47. mín
Heimamenn vinna hornspyrnu
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Heimamenn sparka okkur af stað á ný.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér i Breiðholti þar sem heimamenn eru með 1-0 forystu. Leikurinn sem slíkur tíðindalítill að mestu og hefur spilast nokkuð á forsendum heimamanna sem hafa heilt yfir verið sterkara liðið.
45. mín
Ármann með frábæran bolta fyrir marki ÍR úr aukaspyrnu. Frá vinstri yfir á fjær þar mér sýnist það vera Denis sem er aleinn en nær ekki að hitta markið.
45. mín
Víðir strax í færi en hittir boltann illa. Vinnur þó horn
44. mín
Inn:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR) Út:Hákon Dagur Matthíasson (ÍR)
43. mín
Hákon Dagur sestur á völlinn aftur og kallað eftir aðhlynningu.
42. mín
Hákon Dagur liggur eftir á vellinum eftir brot Grindvíkinga. Stendur þó nokkuð fljótt á fætur en kveinkar sér þó.
39. mín
Adam í færi í teig ÍR eftir ágæta sókn Grindavíkur en skotið laust og beint á Vilhelm
38. mín Gult spjald: Sindri Þór Guðmundsson (Grindavík)
36. mín
Bergvin sleppur einn í gegn Snilldar snúningur á miðjum vellinum og Bergvin fær flugbraut. Keyrir inn á teiginn en á slakt skot beint á Matias í marki Grindavíkur.
33. mín
Óðin dansar inn á teig Grindvíkur fyrir ÍR. Kemur boltanum á Bergvin í markteignum sem nær ekki valdi á boltanum sem fer afturfyrir í markspyrnu.
32. mín
Grindvíkingar með lífsmarki sóknarlega. Skot frá vinstra vítateigshorni sem siglir framhjá markinu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Heimamenn vinna hornspyrnu.
27. mín
Leikurinn verið nokkuð rólegur síðustu mínútur. Lítið sem kalla má færi eða annað slakt.
19. mín
Ármann með lúmska tilraun úr aukaspyrnu utan af væng en Vilhelm vel vakandi og með allt á hreinu
16. mín
Heimamenn heppnir!
Breki missir boltann á Ármann sem keyrir í átt að marki. Þræðir að mér sýnist Adam inn fyrir sem leikur á Vilhelm og skorar en flaggið er á lofti.

Réttur dómur en tæpt var það.
14. mín
Grindvíkingar lítið komist áfram gegn heimamönnum þetta fyrsta tæpa korter. Vörn ÍR að standa mjög vel.
11. mín MARK!
Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
MAAAARK!
Hornspyrna tekin inn á teiginn frá hægri inn á miðan teiginn. Boltanum flikkað yfir á fjærstöng þar sem Bergvin Fannar rís hæst og skallar boltann í netið úr úrvalsfæri.
8. mín
Hákon Dagur í ágætu færi vinstra megin í teignum eftir snarpa sókn ÍR en Matias vel á verði og ver vel
7. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er heimamanna
Þung pressa ÍRinga eftir hornið en ekkert verður úr.
3. mín
ÍRingar vilja víti
Sækja upp hægrin vænginn og komast inn á teiginn. ÍRingur fer niður í teignum og einhver köll um vítaspyrnu.

Hefði verið mjög soft dómur. Bomban er samt alls ekki sammála því.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað í Breiðholti. Það eru gestirnir sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Arnar Laufdal er spámaður umferðarinnar. Það eráhrifavaldurinn Arnar Laufdal sem spáir í leikina að þessu sinni. Arnar er þessa stundina í Serbíu þar sem hann er að sjá um samfélagsmiðlasköpun fyrir kvennalandsliðið í aðdraganda Evrópumótsins sem hefst í Sviss í næstu viku.

Um leikinn í Breiðholti sagði Arnar.

ÍR 2 - 0 Grindavík
ÍR bara of seigir og vinna þennan leik þægilega og skora tvö í fyrri. Búnt á skenkinn, Halli Eysteins á vegginn með Kristó litla Pálssyni ná því miður ekki að koma í veg fyrir þessi mörk og Grindjánar fara heim með sárt ennið og Sölvi Haralds syngur og trallar til morguns #FreeJónþórAtli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikurinn verður í beinni útsending og opinni dagskrá á Livey


Fyrir leik
Dómarinn Helgi Mikael Jónasson er maðurinn með flautuna í Breiðholti í kvöld.

Ronnarong Wongmahadthai og Nour Natan Ninir eru honum til aðstoðar með Gunnar Jarl Jónsson í eftirlitshlutverki fyrir KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Toppsætið í boði fyrir heimamenn
ÍRingar horfðu á eftir toppsæti deildarinnar í skaut Njarðvíkinga í gær þegar Suðurnesjamenn báru sigurorð af grönnum sínum í Keflavík 3-1. Breiðhyltingar geta þó endurheimt toppsætið með sigri í kvöld.

Grindavík sem situr í 8.sæti deildarinnar getur lyft sér upp í 5.sætið vinni þeir sigur hér í kvöld.
Fyrir leik
Öndverðir pólar mætast
Það má færa rök fyrir því að öflugasta varnarlið deildarinnar ÍR sé í kvöld að mæta öflugasta sóknarliði deildarinnar.

Vörn ÍR hefur verið það þetta til þesa í sumar að aðeins fjórum sinnum hefur liðið þurft að horfa á eftir boltanum í mark í þessum níu leikjum sem liðið hefur leikið til þessa. Yfirburðir ÍR í þeirri tölfræði er vægast sagt afgerandi en það lið sem hefur fengið á sig næst fæst mörk HK hefur fengið á sig rúmlega tvöfalt fleiri mörk eða 9 talsins.

Grindavík hefur á sama tíma farið hamförum fyrir framan mark andstæðinga sinna það sem af er sumri. Grindavík hefur leikið átta leiki til þessa í sumar og skorað í þeim heil 22 mörk. Aðeins Njarðvík hefur skorað meira til þessa í deildinni 24 en Grindvíkingar hafa leikið tveimur leikjum minna en Njarðvík.

Árangur liðanna á sitthvorum enda vallarinns er þó ekki á kostnaðar. Heimamenn í ÍR hafa ekki beint farið með himinskautum í markaskorun í sumar og hafa þanið netmöskvanna alls tólf sinnum. Á sama tíma hefur varnarleikur Grindvíkinga verið brothættur og hafa andstæðingar þeirra skorað alls 19 mörk á þá til þessa í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lengjudeild á föstudagskvöldi
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik ÍR og Grindavíkur í 10.umferð Lengjudeildar karla. Flautað verður til leiks á AutoCenter vellinum í Breiðholti klukkan 19:15
Byrjunarlið:
1. Matias Niemela (m)
2. Árni Salvar Heimisson
5. Sölvi Snær Ásgeirsson
7. Ármann Ingi Finnbogason
9. Adam Árni Róbertsson (f)
10. Ingi Þór Sigurðsson
11. Breki Þór Hermannsson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
16. Dennis Nieblas
21. Kristófer Máni Pálsson
23. Sindri Þór Guðmundsson ('57)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
6. Viktor Guðberg Hauksson ('57)
19. Arnar Smári Arnarsson
20. Mikael Máni Þorfinnsson
22. Lárus Orri Ólafsson
25. Andri Karl Júlíusson Hammer
26. Eysteinn Rúnarsson
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Árni Hróðmarsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson
Sreten Karimanovic
Jón Aðalgeir Ólafsson
Karim Ayyoub Hernández
Friðrik Þór Sigurðsson

Gul spjöld:
Sindri Þór Guðmundsson ('38)

Rauð spjöld: