
Víkingur R.
2
1
Afturelding

Nikolaj Hansen
'50
1-0
1-1
Aron Jóhannsson
'52
Nikolaj Hansen
'79
2-1
29.06.2025 - 19:15
Víkingsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: 12° og smá vindkæling
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 1306
Maður leiksins: Nikolaj Hansen
Víkingsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: 12° og smá vindkæling
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 1306
Maður leiksins: Nikolaj Hansen
Byrjunarlið:
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
('64)


9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson
('81)

15. Róbert Orri Þorkelsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
('81)

23. Nikolaj Hansen


25. Valdimar Þór Ingimundarson
('72)

32. Gylfi Þór Sigurðsson
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
16. Jochum Magnússon (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
8. Viktor Örlygur Andrason
12. Ali Basem Almosawe
('64)

17. Atli Þór Jónasson
20. Tarik Ibrahimagic
('72)

24. Davíð Örn Atlason
('81)

27. Matthías Vilhjálmsson
('81)

34. Viktor Steinn Sverrisson
- Meðalaldur 25 ár
Liðsstjórn:
Kári Sveinsson (Þ)
Hajrudin Cardaklija (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (Þ)
Sölvi Ottesen (Þ)
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Rúnar Pálmarsson
Gul spjöld:
Erlingur Agnarsson ('35)
Gylfi Þór Sigurðsson ('41)
Rauð spjöld:
84. mín
Darraðardans inn á teig Víkings! Gestirnir koma boltanum inn á teiginn og reyna koma skoti á markið en það fer í alla vörn Víkings eins og hún leggur sig.
79. mín
MARK!

Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson
Stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson
Þeir eru komnir yfir á ný!
Oliver Ekroth á gjörsamlega frábæra sendingu yfir vörn gestanna á Karl Friðleif, sem rennur boltanum til hliðar á Nikolaj Hansen sem setur boltann í autt markið. Oliver Ekroth á heiðurinn að þessu!
76. mín
Leikurinn hefur orðið hægari en heimamenn eru klárlega líklegri aðilinn þessa stundina.
68. mín
Almo með skemmtilega gabbhreyfingu fyrir utan teig og reynir svo skot en það hafnar rétt framhjá markinu.
64. mín

Inn:Ali Basem Almosawe (Víkingur R.)
Út:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
Almo eins og hann er kallaður kemur inn á.
52. mín
MARK!

Aron Jóhannsson (Afturelding)
Gestirnir jafna!
Maður má bara ekki líta við! Það kemur fyrirgjöf inn á teiginn sem svífur alla leið á fjær, þar sem Hrannar Snær er einn og óvaldaður. Hann gefur hann svo bara á Aron Jó sem stendur beint á móti markinu og klárar snyrtilega.
50. mín
MARK!

Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson
Stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson
Fyrsta mark leiksins staðreynd!
Gylfi fær boltann í góðu svæði inn á miðjunni og vörn Aftureldingar virðist vera steinsofandi. Hann teiknar svo frábæra stungusendingu í gegn á Nikolah sem sólar Jökul og klárar!
45. mín
Hálfleikur
Fremur tíðindalítill fyrri hálfleikur. Afturelding verið betri aðilinn seinustu mínúturnar.
45. mín
+3
Nú upplifa Víkingar að brotið hafi verið á Valdimari rétt fyrir utan teig. Twana á öðru máli.
Nú upplifa Víkingar að brotið hafi verið á Valdimari rétt fyrir utan teig. Twana á öðru máli.
45. mín
+2
Afturelding á tvö skot sem fara bæði í varnarmenn Víkinga. Einhverjir að kalla eftir hendi. Mér sýndist nú ekki.
Afturelding á tvö skot sem fara bæði í varnarmenn Víkinga. Einhverjir að kalla eftir hendi. Mér sýndist nú ekki.
43. mín
Gunnar Bergmann á fyrirgjöf inn á markteig sem endar hjá Hrannari Snæ á fjærstönginni en hann nær engum krafti í skotið.
40. mín
Helgi Guðjóns á svo fyrirgjöf eða skot sem fer af vörn Aftureldingar á markið og Jökull þarf að blaka boltanum í horn.
35. mín
Gult spjald: Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)

Erlingur Agnarsson hoppar ansi harkalega inn í Axel Óskar sem liggur eftir. Maggi Már er allt annað en sáttur.
33. mín
Gestirnir nálægt því að brjóta ísinn!
Fyrirgjöf inn á teiginn, sem endar hjá Gunnari Bergmann. Hann klippir boltann í fyrsta en Pálmi ver frá honum út í teiginn, þar sem Aron Jó stendur en hann skýtur yfir.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Gestirnir eru að sækja í sig veðrið og eru líklegri aðilinn, eins og staðan er núna.
27. mín
Nú brýtur Nikolaj aftur af sér en Twana sleppir honum. Gestirnir eru ekki sáttir með það.
25. mín
Besta færi leiksins
Hrannar Snær fær boltann á góðum stað út á vinstri og keyrir inn á teig en skotið fer rétt framhjá markinu.
22. mín

Inn:Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding)
Út:Oliver Sigurjónsson (Afturelding)
Oliver lenti í einvígi við Vatnhamar og lá eftir í kjölfarið. Enes fær kallið.
18. mín
Uppstillingar liðanna
Víkingur
Pálmi
Karl Friðleifur - Ekroth - Róbert - Vatnhamar
Daníel - Gylfi
Valdimar - Erlingur - Helgi
Nikolaj Hansen
Afturelding
Jökull
Gunnar - Aron J. - Axel - Aron Elí
Oliver - Bjarni - Bjartur Bjarmi
Elmar - Stokke - Hrannar Snær
Víkingur
Pálmi
Karl Friðleifur - Ekroth - Róbert - Vatnhamar
Daníel - Gylfi
Valdimar - Erlingur - Helgi
Nikolaj Hansen
Afturelding
Jökull
Gunnar - Aron J. - Axel - Aron Elí
Oliver - Bjarni - Bjartur Bjarmi
Elmar - Stokke - Hrannar Snær
9. mín
Nikolaj Hansen fer núna aftan í Axel Óskar og við það eru gestirnir allt annað en sáttir. Sleppur við gula kortið.
8. mín
Þetta fer rólega af stað. Víkingar eru að reyna að brjóta þétta vörn Aftureldingar á bak aftur, eins og við var að búast.
6. mín
Gult spjald: Gunnar Bergmann Sigmarsson (Afturelding)

Fer aftan í Nikolaj Hansen. Gestirnir hissa á þessu spjaldi.
Fyrir leik
Afturelding hefur verið í miklu brasi með að skora á
útivelli, bæði lið skora: Nei á Epic er 2,25.
útivelli, bæði lið skora: Nei á Epic er 2,25.
Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt
Það eru nokkuð óvænt tíðindi úr herbúðum Víkinga en markmaðurinn Pálmi Rafn Arinbjörnsson kemur inn í rammann í stað Ingvars Jónssonar. Líklega að glíma við meiðsl. Erlingur Agnarsson, Helgi Guðjónsson og Róbert Orri Þorkelsson koma einnig inn í byrjunarliðið.
Það eru ekki miklar breytingar á liði Aftureldingar en Axel Óskar kemur aftur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann. Bjarni Páll Linnet Runólfsson dettur út úr liðinu frá síðasta leik og Sævar Atli Hugason dettur út en hann er að glíma við meiðsl.
Það eru ekki miklar breytingar á liði Aftureldingar en Axel Óskar kemur aftur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann. Bjarni Páll Linnet Runólfsson dettur út úr liðinu frá síðasta leik og Sævar Atli Hugason dettur út en hann er að glíma við meiðsl.

Fyrir leik
Gengi liðanna
Víkingur hefur fagnað góðu gengi undanfarið og sitja þeir í efsta sæti Bestu deildarinnar. Þeir unnu sannfærandi útisigur gegn KA í síðustu umferð. Einhverjir eru farnir að óttast það að þeir stingi af með deildina.
Nýliðarnir úr Mosfellsbæ hafa byrjað þetta tímabil virkilega vel. Þeir eru í sjötta sæti deildarinnar með 17 stig en þeir fóru með sigur af hólmi á hinum þrælskemmtilega Þórsvelli gegn ÍBV.
Nýliðarnir úr Mosfellsbæ hafa byrjað þetta tímabil virkilega vel. Þeir eru í sjötta sæti deildarinnar með 17 stig en þeir fóru með sigur af hólmi á hinum þrælskemmtilega Þórsvelli gegn ÍBV.

Fyrir leik
Twana á flautunni
Twana Khalid Ahmed er dómari leiksins í kvöld en hann hefur þurft að þola sinn skerf af gagnrýni á þessu tímabili. Kristján Már Ólafs er aðstoðardómari 1 og Bergur Daði Ágústsson gegnir hlutverki aðstoðardómara 2.

Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson

3. Axel Óskar Andrésson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Aron Jóhannsson

8. Aron Jónsson
10. Elmar Kári Enesson Cogic
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
20. Benjamin Stokke
30. Oliver Sigurjónsson
('22)

77. Hrannar Snær Magnússon
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
12. Arnar Daði Jóhannesson (m)
4. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
9. Andri Freyr Jónasson
11. Arnór Gauti Ragnarsson
21. Þórður Gunnar Hafþórsson
23. Sigurpáll Melberg Pálsson
25. Georg Bjarnason
27. Enes Þór Enesson Cogic
('22)

79. Róbert Agnar Daðason
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Heiðar Númi Hrafnsson
Enes Cogic
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason
Þórður Ingason
Gul spjöld:
Gunnar Bergmann Sigmarsson ('6)
Rauð spjöld: