
Chelsea og Man Utd berjast um Emiliano Martínez, Jarell Quansah er á förum frá Liverpool og Marc Guehi nálgast Liverpool. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Chelsea hefur boðist að fá argentínska landsliðsmarkvörðinn Emiliano Martínez (32) frá Aston Villa fyrir 45 milljónir punda í sumar, en það er hins vegar talið að Martínez vilji frekar fara til Manchester United. (Mirror)
Manchester United er reiðubúið að hefja formlegar viðræður við Aston Villa um Martínez, en það gerist ekki fyrr en félagið hefur selt kamerúnska markvörðinn Andre Onana (29). (Football Insider)
Jarell Quansah (22), varnarmaður Liverpool fer í læknisskoðun hjá Bayer Leverkusen áður en hann gengur frá 35 milljóna punda skiptum sínum til þýska félagsins. (Fabrizio Romano)
Liverpool er að ganga frá samkomulagi við Crystal Palace um enska miðvörðinn Marc Guehi (24). (Mirror)
Darwin Nunez (26), framherji Liverpool, er klár í að ganga í raðir Napoli í sumar, en ítalska félagið er ekki sagt reiðubúið að ganga að 70 milljóna punda verðmiða leikmannsins. (Mirror)
Manchester United gæti þurft að borga leikmönnum til þess að yfirgefa félagið í sumar þar sem margir þeirra eru með langa og dýra samninga, en Marcus Rashford (27) og Alejandro Garnacho (20) eru meðal þeirra sem félagið vill selja. (Telegraph)
Sunderland hefur náð samkomulagi við Strasbourg um hinn 21 árs gamla Habib Diarra. Félagið borgar 30 milljónir punda fyrir senegalska leikmanninn sem er metfé hjá félaginu. (Guardian)
Nottingham Forest hefur lagt fram 5 milljóna punda tilboð í Pablo Maffeo (27), bakvörð Real Mallorca. (El Chiringuito)
Enn er langt á milli Newcastle og Burnley í viðræðum þeirra um enska markvörðinn James Trafford (22). Burnley hafnaði á dögunum 25 milljóna punda tilboði í Trafford. (Sky Sports)
Crystal Palace ætlar að skrá sig í baráttuna við Newcastle, Liverpool og Tottenham um Tyler Dibling (19), vængmann Southampton. (Fotoball Insider)
Nico Williams (22), leikmaður Athletic Bilbao, hefur tjáð Barcelona að hann vilji ganga í raðir félagsins og hefur krafist þess að hann verði skráður í hópinn um leið sem þýðir að Barcelona gæti þurft að selja leikmenn fyrst til þess að uppfylla fjárhagsleg skilyrði spænsku deildarinnar. (Marca)
Fenerbahce hefur náð samkomulagi við Al Nassr um að fá kólumbíska sóknarmanninn Jhon Duran (21) á láni út tímabilið. (Foot Mercato)
Athugasemdir