Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
Í BEINNI
2. deild karla
Grótta
LL 2
0
Haukar
Fylkir
0
0
ÍR
04.07.2025  -  19:15
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Smá banter sem gerir deildina skemmtilegri Árni Freyr Guðnason, þjálfari Fylkis, var tiltölulega nýbúinn að framlengja samningi sínum við ÍR síðasta haust þegar hann var ráðinn þjálfari Fylkis og var lítil ánægja með það hjá stuðningsmönnum ÍR. ÍR er á toppi deildarinnar en Fylkir hafði verið í miklu brasi fram að sigrinum gegn Völsungi á laugardag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Bergvin Fannar Helgason, leikmaður ÍR, var spurður út í komandi leik í viðtali á föstudag.

„Djöfull hlakka ég til að mæta Árna Guðna maður, ha!? Ég hef sjaldan verið jafn spenntur að vonandi pakka honum saman," sagði Bergvin Fannar.


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Árni var svo í viðtali tæpum sólarhring síðar og var spurður út í þessi ummæli.

„Það leggst mjög vel í mig að mæta ÍR. Núna er bara fókus á þann leik, ég þekki þá náttúrulega mjög vel, bæði þjálfarana og leikmennina, margir sem voru þarna í fyrra. Þeir eru á þvílíku skriði, þvílík stemning. Þetta verður hörku leikur."

„Bara allt í góðu, smá 'banter' og gerir deildina skemmtilegri. Mér þykir mjög vænt um hann Begga og frábært að hann sé farinn að skora mörk. Ég vona að hann skori í öllum leikjum nema á móti okkur," sagði þjálfarinn.

Fyrir leik
Fylkir Það er ekkert launungamál að tímabilið hefur byrjað með miklum vonbrigðum í Árbænum og sitja Fylkismenn í 9.sæti deildarinnar með 10 stig fyrir þessa umferð.
Það birtir þó vonandi til hjá Árbæingum sem unnu góðan sigur á Húsavík í síðustu umferð þegar þeir sigruðu Völsung 1-4.

Fylkir hafa skorað 14 mörk í sumar og hafa þessi mörk raðast niður á:

Þóroddur Víkingsson - 3 mörk
Pablo Aguilera Simon - 3 mörk
Eyþór Aron Wöhler - 2 mörk
*aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍR Breiholtið hefur hátt og hafa líka fulla ástæðu til! Fyrir elleftu umferð deildarinnar sitja þeir á toppi deildarinnar með 22 stig og hafa litið virkilega vel út í sumar.
ÍR fékk Grindavík í heimsókn í síðustu umferð og buðu upp á flugeldasýningu þegar þeir jörðuðu Grindvíkinga með 6-1 sigri.

ÍR hafa skorað 18 mörk í sumar og aðeins fengið á sig 5 en þeirra mörk hafa raðast niður á:

Bergvin Fannar Helgason - 4 mörk
Arnór Sölvi Harðarsson - 3 mörk
Óðinn Bjarkason - 2 mörk
Víðir Freyr Ívarsson - 2 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið X.
Fyrir leik
Velkomin á Tekk völlinn Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá leik Fylkis og ÍR sem fram fer á Tekk vellinum í Árbæ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: