Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Robinson á óskalista Man Utd - Fabregas til Chelsea?
Powerade
Antonee Robinson til Manchester United?
Antonee Robinson til Manchester United?
Mynd: EPA
Hvað gerir Tonali?
Hvað gerir Tonali?
Mynd: EPA
Sandro Tonali vill frekar fara til Ítalíu þrátt fyrir áhuga frá Manchester, Ben White gæti farið frá Arsenal og Andoni Iraola á blaði hjá ensku úrvalsdeildarfélagi. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins, BBC tekur það helsta saman og samantektin er í boði Powerade.



Manchester City og Manchester United vilja Sandro Tonali (25) miðjumann Newcastle en þessi fyrrum leikmaður AC Milan myndi frekar vilja fara heim til Ítalíu. (Talksport)

Ben White (28) er mættur aftur í enska landsliðið en hann gæti verið á förum frá Arsenal. Everton hefur áhuga. (FourFourTwo)

Aston Villa er á meðal úrvalsdeildarfélaga sem vilja fá Ibrahim Mbaye (18) sóknarmann PSG. (Sky Sports)

Manchester United hefur bætt Antonee Robinson (28) vinstri bakvörð Fulham á óskalistann sinn. (Football Insider)

West Ham og Nottingham Forest munu fá samkeppn frá AC Milan um Santiago Castro (21) sóknarmanni Bologna. (Tuttomercatoweb)

Randal Kolo Muani (27) sem er á láni hjá Tottenham frá PSG er spenntur fyrir því að fara til Juventus í sumar. (Gazzettan)

Crystal Palace íhugar að reyna við Andoni Iraola, stjóra Bournemouth, en Oliver Glasner mun yfirgefa Palace í sumar. (Telegraph)

Manchester United hefur einnig áhuga á hinum 43 ára gamla Iraola. (Mirror)

Eigendur Chelea munu styðja við bakið á Liam Rosenior jafnvel þó liðið nái ekki Meistaradeildarsæti. (Mail)

Cesc Fabregas, stjóri Como, er á meðal þeirra sem koma til greina hjá Chelsea ef félagið gerir stjórabreytingu. (Teamtalk)

Juventus fylgist með Antonio Rudiger (33) sem verður samningslaus hjá Real Madrid í sumar. (Tuttosport)
Athugasemdir
banner
banner