Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
Í BEINNI
2. deild karla
Grótta
LL 2
0
Haukar
Grótta
2
0
Haukar
Grímur Ingi Jakobsson '48 1-0
Axel Sigurðarson '79 2-0
30.06.2025  -  19:15
Vivaldivöllurinn
2. deild karla
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Byrjunarlið:
1. Alexander Arnarsson (m)
3. Patrik Orri Pétursson
8. Caden Robert McLagan
9. Björgvin Brimi Andrésson
10. Grímur Ingi Jakobsson
11. Axel Sigurðarson ('80)
16. Kristófer Melsted (f)
17. Aron Bjarni Arnórsson ('70)
20. Dagur Bjarkason
20. Kristófer Dan Þórðarson ('90)
27. Marciano Aziz ('90)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
31. Hrafn Sverrisson (m)
7. Valdimar Daði Sævarsson ('80)
15. Einar Tómas Sveinbjarnarson
18. Hrannar Ingi Magnússon ('90)
22. Viktor Orri Guðmundsson ('70)
23. Birgir Davíðsson Scheving ('90)
24. Benedikt Aron Albertsson
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren
Viktor Steinn Bonometti
Marvin Darri Steinarsson
Benedikt Þór Viðarsson
Aron Logi Sigurpálsson
Patrekur Ingi Þorsteinsson

Gul spjöld:
Aron Bjarni Arnórsson ('16)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Grótta tekur öll stigin Verðskuldað eftir seinni hálfleikinn, en Haukar voru að mínu mati betri í fyrri. Grótta fer upp í þriðja sætið í 2. deild.

Grímur maður leiksins og Kristófer Melsted næst bestur.
92. mín
Fastur bolti sem Ævar Daði Segatta hendir sér á en skallar yfir.
91. mín
Haukur Darri Pálsson vinnur aukaspyrnu á hættulegum stað.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
90. mín
Inn:Birgir Davíðsson Scheving (Grótta) Út:Marciano Aziz (Grótta)
90. mín
Inn:Hrannar Ingi Magnússon (Grótta) Út:Kristófer Dan Þórðarson (Grótta)
88. mín Gult spjald: Stefán Logi Magnússon (Haukar)
Held þetta sé Stefán Logi sem eiginlega bað um spjald með pirringi.
86. mín
Inn:Hallur Húni Þorsteinsson (Haukar) Út:Andri Steinn Ingvarsson (Haukar)
86. mín
Inn:Birkir Brynjarsson (Haukar) Út:Tómas Atli Björgvinsson (Haukar)
82. mín
Ævar Daði Segatta lendir í samstuði við liðsfélaga og fær aðhlynningu.
80. mín
Inn:Valdimar Daði Sævarsson (Grótta) Út:Axel Sigurðarson (Grótta)
79. mín MARK!
Axel Sigurðarson (Grótta)
2-0 Góð sending frá vinstri inn á markteiginn sem Axel kemst í á nærstönginni og setur hann í netið!

Frábært spil og verðskuldað mark!
75. mín
Inn:Óliver Þorkelsson (Haukar) Út:Daði Snær Ingason (Haukar)
75. mín
Inn:Haukur Darri Pálsson (Haukar) Út:Kostiantyn Iaroshenko (Haukar)
75. mín
Inn:Ævar Daði Segatta (Haukar) Út:Guðjón Pétur Lýðsson (Haukar)
73. mín Gult spjald: Tómas Atli Björgvinsson (Haukar)
Held ég.

Mér fannst ég sjá rautt á loft en enginn fór af velli.
72. mín
Haukar allt annað en sáttir við Brynjar dómara sem dæmir hendi eftir hreinsun sem fer í Fannar, rangur dómur líklegast en róum okkur aðeins.
70. mín
Inn:Viktor Orri Guðmundsson (Grótta) Út:Aron Bjarni Arnórsson (Grótta)
70. mín Gult spjald: Daníel Smári Sigurðsson (Haukar)
Fær boltann í hendina þegar Kristófer Dan reynir að brjóta sér leið í gegn, Gróttumenn vilja annan lit.
69. mín
Mark???? Atgangur inn á vítateig Gróttu.

Brynjar lyftir hendinni og stöðvar leikinn.

Haukar vilja fá mark þarna en Grótta fær aukaspyrnu.
67. mín
Kostiantyn Iaroshenko með flotta fyrirgjöf sem Dagur verst vel. Haukar fá horn.

Grótta nær að hreinsa.
58. mín
Heimamenn liggja á gestunum þessar mínúturnar.
57. mín Gult spjald: Guðjón Pétur Lýðsson (Haukar)
Þú horfðir á þetta!

Öskrar Gaui á Brynjar dómara, mjög ósáttur við eitthvað sem ég missti af, kannski að boltanum var sparkað í burtu, en það er Gaui sem fær spjald.
55. mín
Færi! Kristófer Melsted með frábæra sendingu út í teiginn, finnur Marciano sem á skot sem Heiðar Máni gerir frábærlega í að verja, vel lesið!
51. mín
Víti?? Axel fer niður, Tómas Atli virðist fara í hann en ekkert dæmt. Gróttumenn sannfærðir og allur bekkurinn rís upp og kallar eftir víti.

Brynjar spjaldar svo einhvern á bekknum, ekki Rúnar Pál samt.
50. mín
Það er talsverður hliðarvindur, átta mig ekki á því hvaða áhrif hann hefur. Sólin gæti líka hafa truflað Heiðar í markinu, en skotið var gott! Haukar spila á móti sól í seinni.
48. mín MARK!
Grímur Ingi Jakobsson (Grótta)
Stoðsending: Grímur Ingi Jakobsson
Fyrsta markið Upp úr nánast engu, innkast úti vinstra megin, Grímur fær boltann, lætur vaða vinstra megin úr teignum, hittir boltann vel með vinstri og Grótta leiðir!
46. mín
Haukar byrja seinni hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Haukar fengið fleiri stöður en heimamenn verið góðir í að stöðva skotin á leiðinni á markið. Heimamenn náð góðum möguleikum út úr fyrirgjöfum en vantað að henda sér á boltann inn á teignum.
45. mín
Hálfleikur
45+1
Dagur hreinlega með skottilraun hægra megin við teiginn sem Heiðar Máni slær yfir markið. Dómararnir missa af því, benda á markspyrnu og svo er flautað til hálfleiks.
45. mín
Aron Bjarni Arnórsson með bjartsýnistilraun vel fyrir utan teig sem flýgur hátt yfir mark gestanna.
42. mín
Daði Snær Ingason með lipra takta og lætur vaða en skotið í markmann.

Einhver köll eftir víti rétt á undan en það leit ekki út fyrir að vera neitt.
39. mín
Hættulegur bolti frá Kristófer Melsted en Axel kemst ekki í boltann inn á markteignum.

Fannar Óli gerir sig líklegan hinu megin en tilraunin fer yfir.
37. mín
Haukar mjög líklegir þessar mínúturnar.

Gaui Lýðs að taka horn, fínasti bolti en Daníel nær ekki að stýra boltanum á markið.
36. mín
Andri Steinn Ingvarsson með flotta fyrirgjöf sem rétt missir af samherja inn á teig Gróttu.
35. mín
Gaui Lýðs með snúninga og tilþrif, gleður augað!

Daði Snær Ingason á svo skömmu síðar tilraun inn á teig Gróttu en skotið í varnarmann.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Kristófer Dan eitthvað pirraður út í Fannar Óla og Brynjar Þór þarf að stilla til friðar. Létt hrinding frá Fannari.
22. mín
Alexander Aron Tómasson í mjög góðu færi en Dagur kemst fyrir.
21. mín
Haukar fá flott skotfæri við vítateiginn en heimamenn henda sér fyrir.

Dagur svo með flotta fyrirgjöf hinu megin sem er nálægt því að finna samherja.
17. mín
Kostiantyn Iaroshenko tekur spyrnuna og boltinn virðist, það segia allavega Haukar í stúkunni, hafa farið af hendinni á Grími og svo í höfuðið og hann liggur eftir. Ekkert dæmt.

Grímur fær aðhlynningu og Haukar halda svo áfram að sækja.
16. mín Gult spjald: Aron Bjarni Arnórsson (Grótta)
Brýtur á Fannari Óla við D-bogann eftir slaka sendingu frá Alexander.
9. mín
Flott sókn hjá gestunum og Fannar Óli Friðleifsson á tilraun en hittir ekki markið eftir fyrirgjöf frá hægri.
7. mín
Dauðafæri Axel í dauðafæri en skotið ekki hnitmiðað og beint á Heiðar Mána. Glæsilegt samspil í aðdragandanum.
5. mín
Kostiantyn Iaroshenko lætur vaða á lofti en skotið beint á Alexander.
2. mín
Aðalmarkmaður Gróttu ekki með Marvin Darri Steinarsson, aðalmarkmaður Gróttu, er ekki með í dag. Í markinu stendur Alexander Arnarsson (2005) sem þreytti frumraun sína í Fótbolti.net bikarnum í liðinni viku.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Við Gróttu Bláklæddir Seltirningar og rauðir Hafnfirðingar ganga inn á völlinn og Við Gróttu með Bubba er í hátalarakerfinu.
Fyrir leik
Langt síðan Grótta tapaði Grótta er taplaust í síðustu sjö leikjum en hefur gert tvö jafntefli í röð í deildinni. Haukar hafa fengið sex stig úr síðustu þremur leikjum.
Fyrir leik
Glænýtt gervigras og glampandi sól Það er frábært veður, glampandi sól og leikmenn spila á gervigrasi sem var lagt fyrr í sumar. Þetta gæti orðið alvöru partí.
Fyrir leik
Velkomin á Vivaldi Góða kvöldið kæru lesendur og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik heimamanna í Gróttu og Hauka í 10. umferð 2. deildar.

Liðin sitja í 3. og 4. sæti deildarinnar, Haukar með stigi meira.
Byrjunarlið:
77. Heiðar Máni Hermannsson (m)
4. Fannar Óli Friðleifsson
6. Máni Mar Steinbjörnsson
10. Daði Snær Ingason ('75)
11. Kostiantyn Iaroshenko ('75)
15. Andri Steinn Ingvarsson ('86)
17. Tómas Atli Björgvinsson ('86)
20. Alexander Aron Tómasson
21. Daníel Smári Sigurðsson (f)
23. Guðjón Pétur Lýðsson ('75)
28. Magnús Ingi Halldórsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Þorsteinn Ómar Ágústsson (m)
5. Ævar Daði Segatta ('75)
7. Haukur Darri Pálsson ('75)
18. Óliver Steinar Guðmundsson
19. Birkir Brynjarsson ('86)
25. Hallur Húni Þorsteinsson ('86)
99. Óliver Þorkelsson ('75)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Ellert Ingi Hafsteinsson
Guðni Vilberg Björnsson
Dusan Ivkovic
Stefán Logi Magnússon

Gul spjöld:
Guðjón Pétur Lýðsson ('57)
Daníel Smári Sigurðsson ('70)
Tómas Atli Björgvinsson ('73)
Stefán Logi Magnússon ('88)

Rauð spjöld: