Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
Lengjudeild karla
Grindavík
19:15 0
0
Njarðvík
Besta-deild karla
Afturelding
19:15 0
0
Breiðablik
Lengjudeild karla
Þór
2' 0
0
Þróttur R.
Lengjudeild kvenna
HK
19:15 0
0
Grótta
Þór
0
0
Þróttur R.
03.07.2025  -  18:00
Boginn
Lengjudeild karla
Dómari: Sveinn Arnarsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
5. Yann Emmanuel Affi
6. Ibrahima Balde
7. Orri Sigurjónsson
9. Rafael Victor
10. Aron Ingi Magnússon
11. Clement Bayiha
18. Sverrir Páll Ingason
19. Ragnar Óli Ragnarsson
24. Ýmir Már Geirsson
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
8. Einar Freyr Halldórsson
16. Nökkvi Hjörvarsson
25. Pétur Orri Arnarson
27. Atli Þór Sindrason
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Elín Rós Jónasdóttir
Gestur Örn Arason

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
2. mín
Þróttarar ná að verjast. Þórsarar fara svo í aðra sókn og þá er Balde dæmdur rangstæður eftir fyrirgjöf frá Sverri.
1. mín
Þórsarar fá aukaspyrnu eftir 10 sekúndur, brotið á Ibrahima Balde. Aron Ingi tekur aukaspyrnu úti á vinstri kantinum.
1. mín
Leikur hafinn
Þór byrjar með boltann
Fyrir leik
Það verða læti Um helgina er auðvitað N1 mótið á Akureyri og að sjálfsögðu Pollamót Þórs og Samskipa. Það er margmenni á Akureyri og þétt setinn bekkurinn í Boganum. Það má búast við talsverðum látum inni í Boga í kvöld.
Fyrir leik
Fjórða og fimmta sætið Þór hefur unnið tvo leiki í röð og er í fjórða sæti deildarinnar með sautján stig, fimm stigum minna en topplið ÍR.

Þróttur hefur einungis unnið einn af síðustu fimm leikjum en er í 5. sæti deildarinnar með 15 stig.

Þór er með markatöluna 25:17 og Þróttur er með markatöluna 18:17.
Fyrir leik
Byrjunarliðin: Tvær breytingar hjá Þór og ein hjá Þrótti Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá 0-5 útisigrinum gegn Fjölni í síðustu viku. Vilhelm Ottó Biering Ottósson er meiddur og Atli Þór Sindrason tekur sér sæti á bekknum. Ýmir Már Geirssong og Sigfús Fannar Gunnarsson koma inn í liðið. Pétur Orri Arnarsson kemur inn á bekkinn í stað Peter Jones sem er ekki með í dag.

Venni, þjálfari Þróttar, gerir eina breytingu frá 2-2 jafnteflinu gegn HK. Benoný Haraldsson er ekki með í dag og Viktor Andri Hafþórsson kemur inn í liðið. Njörður Þórhallsson kemur aftur inn í hópinn.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sigfús Fannar kemur aftur í lið Þórs eftir leikbann
Fyrir leik
Þriðja liðið Sveinn Arnarsson er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Birkir Örn Pétursson og Ágúst Örn Víðisson. Sverrir Gunnar Pálmason er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn
Fyrir leik
Tíðindi af Þrótti Jakob Gunnar Sigurðsson mun í sumarglugganum (opnar 17. júlí) yfirgefa Þrótt og halda á láni til danska félagsins Lyngby. Lyngby fær hann á eins árs lánssamningi með kaupmöguleika. Húsvíkingurinn á því ekki marga leiki eftir með Þrótti, en hann er þar á láni frá KR.

Á móti mun KR lána Hrafn Tómasson til Þróttar. Krummi, eins og hann er oftast kallaður, er að snúa aftur á völlinn eftir að hafa slitið krossband í apríl í fyrra.
Fyrir leik
Undirskriftir í Hamri Á síðustu viku hafa Þórsarar greint frá því að þeir Ibrahima Balde, Aron Ingi Magnússon og Kristófer Kató Friðriksson væru allir búnir að skrifa undir samninga við félagið. Kató (2009) var að skrifa undir sinn fyrsta samning en hinir tveir voru að framlengja samninga sína.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Balde
Fyrir leik
Einn besti leikmaður Þróttar ekki með Kári Kristjánsson, leikmaður Þróttar, er ekki með í dag en hann er að vinna sig til baka eftir að hafa fengið einkirningasótt. Hann hefur misst af undanförnum leikjum, en það ætti ekki að vera langt í hann.

Félög í Bestu deildinni vildu fá Kára í vetur og þá hafnaði Þróttur nýlega tilboði frá Östersund í sóknarsinnaða miðjumanninn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Adam spáir sínum gamla aðstoðarþjálfara sigri Adam Pálsson, leikmaður Vals í Bestu deildinni, er spámaður umferðarinnar. Hann spáir sigri Þórs í kvöld.

Þór 4 - 1 Þróttur (fimmtudagur, 18:00)
Þetta verður erfiður leikur fyrir Þróttarana mína því Siggi Höskulds er að búa til einhverja skepnu þarna fyrir norðan og þeir vinna þetta 4-1 og Siggi rífur sig úr að ofan eftir leik. En Villi Kaldal setur eitt sárabótamark með volley.

Fyrir leik
Velkomin í Bogann Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs og Þróttar í 11. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram í Boganum á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson
8. Baldur Hannes Stefánsson
9. Viktor Andri Hafþórsson
20. Viktor Steinarsson
21. Brynjar Gautur Harðarson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason
33. Unnar Steinn Ingvarsson
75. Liam Daði Jeffs
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
4. Njörður Þórhallsson
6. Emil Skúli Einarsson
7. Eiður Jack Erlingsson
10. Jakob Gunnar Sigurðsson
27. Sigfús Árni Guðmundsson
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Stefán Þórður Stefánsson
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis
Bergsveinn Ás Hafliðason
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira

Gul spjöld:

Rauð spjöld: