SKÝRSLAN: Eiginlega fáránlegt að Þróttur vann í Boganum
Hvað réði úrslitum?
Færanýtingin númer eitt tvö og þrjú. Þróttarar fengu eitt mjög gott færi í fyrri hálfleiknum en hittu ekki markið af stuttu færi. Svo var það upptalið þangað til á 86. mínútu. Þórsarar fengu fullt af færum en náðu ekki að nýta nægilega mörg. Í stöðunni 1-0 fengu Þórsarar fullt af sénsum til að koma sér í betri stöðu en tókst það ekki. Þróttarar náðu að ýta Þórsurum niður undir lokin, sköpuðu sér stöðu en eina alvöru færið var í jöfnunarmarkið. Sigurmarkið var svo algjört draumamark. Það má tala um rán í Boganum.
Bestu leikmenn
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson
Laddi var betri en enginn í markinu, engar kannski heimsklassa vörslur en gerði vel oft einn á móti einum og hélt sínum mönnum í leiknum.
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
Drauma sigurmark hjá bakverðinum, byrjaði hægra megin en fór svo út vinstra megin. Ýmir Már Geirsson og Orri Sigurjónsson voru bestir í liði heimamanna.
Atvikið
Sigurmarkið á 92. mínútu, Eiríkur, sem var kominn með fyrirliðabandið, teygði sig í boltann, rann einhvern veginn og setti boltann upp í skeytin á marki Þórsara. Óverjandi í fyrstu sýn.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttarar eru komnir upp fyrir Þórsara og vinna loksins aftur sigur. Heimavöllur Þórsara heldur áfram að skila þeim ekki nægilega mörgum stigum, einungis tveir sigrar í sjö leikjum í Boganum. Sigur Þróttara var aftur á móti fjórði sigur þeirra á útivelli í fimm leikjum.
Vondur dagur
Clement Bayiha. Færanýting hans, og reyndar fleiri leikmanna, var alls ekki nógu góð og það kostaði heimamenn í dag.
Dómarinn - 6
Heilt yfir fínt, flaut og flaut sem maður skildi ekki alveg, en ekkert alvarlegt. Ein aukaspyrna sem dæmd var á Orra í fyrri hálfleik fannst mér skrítin, ekki alvarlegra en það.



