Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
0 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 195' Amin Cosic
Dómari: Jens Elvar Sævarsson
Leik lokið!
Njarðvíkignar með risastóran sigur hérna á Tekk vellinum.

Amin Cosic kveðjur Njarðvíkinga með stæl!

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
Njarðvík
97. mín
InnSímon Logi Thasaphong
ÚtDominik Radic
Njarðvík
97. mín
InnArnar Helgi Magnússon
ÚtOumar Diouck
Njarðvík
95. mín
DRAMATÍK!!

Amin Cosic

AMIN COSIC KVEÐUR MEÐ STÆL!!!!!

Jaaaaahérna hér!!!

Freysteinn Ingi fær boltann úti vinsti og kemur honum á Svavar Örn og hann kemur með sendinguna fyrir markið sem dettur fyrir Amin Cosic!
94. mín
Er sigurmarkí þessu?
Nú fer hver að verða síðastur að skella á sig skikkjunni.
93. mín
Theodór Ingi keyrir inn á teig Njarðvíkinga og kemur með fyrirgjöf sem fer af Arnleifi og í hliðarnetið.
91. mín
Fjórar mínútur í uppbót
90. mín
Njarðvíkingar vinna boltann ofarlega og geta sótt á fáa Fylkismenn en fara illa af ráði sínu en vinna þó horn.
Fylkir
89. mín
Gult spjald

Ragnar Bragi Sveinsson

Stoppar skyndisókn Njarðvíkinga.
88. mín
Dominik Radic reynir að snúa í teig Fylkis og lyftir boltanum á markið sem dettur ofan á slána og Ólafur Kristófer handsamar hann svo.
Fylkir
86. mín
Gult spjald

Orri Sveinn Segatta

Stöðvar skyndisókn Njarðvíkinga.
85. mín
Færi
Eyþór Aron Wöhler með skalla sem dettur ofan á þaknetið.
Njarðvík
83. mín
Gult spjald

Oumar Diouck

Fylkir
82. mín
InnTumi Fannar Gunnarsson
ÚtEmil Ásmundsson
81. mín
Fylkir líklegri eins og staðan er þessa stundina.
Njarðvík
76. mín
InnKenneth Hogg
ÚtJoao Ananias Jordao Junior
75. mín
Pablo Simon í fínu skotfæri en lyftir boltanum yfir markið.
Fylkir
73. mín
InnPablo Aguilera Simon
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
71. mín
Joao Ananias með hættulegan bolta fyrir markið en hann flýtur í gegnum pakkann.
Njarðvík
68. mín
InnFreysteinn Ingi Guðnason
ÚtValdimar Jóhannsson
Njarðvíkingar að reyna hrista upp í þessu.
Njarðvík
65. mín
Gult spjald

Tómas Bjarki Jónsson

Brotlegur í baráttunni við Emil Ásmundsson.
63. mín
Emil Ásmundsson að vinna boltann af Tómasi Bjarka sem var aftastur en dæmdur brotlegur. Njarðvíkingar heppnir þarna.
62. mín
Emil Ásmundsson reynir bakfallsspyrnu sem fer af Njarðvíkingi og afturfyrir.
61. mín
Arnór Breki í afbragðsfæri en Njarðvíkingar ná að henda sér fyrir.

Fylkir verið mun betri hérna í síðari hálfleiknum.
58. mín
Valdimar Jóhannsson kominn í frábæra stöðu en tekur kolranga ákvörðun að reyna setja boltann fyrir markið í stað þess að skera hann út þar sem þrír Njarðvíkingar voru að koma á ferðinni.

Tomas Bjarki allt annað en sáttur með þessa ákvörðun liðsfélaga síns.
56. mín
Fylkir komið stekrari út í síðari hálfleikinn.
54. mín
Varsla!
Emil Ásmundsson með hörku skot sem Aron Snær ver virkilega vel.
51. mín
Máni Austmann tekur spyrnuna sjálfur en skotið yfir markið.
50. mín
Fylkir fær aukaspyrnu á flottum stað rétt fyrir utan teig. Tómas Bjarki dæmdur brotlegur í baráttu við Mána Austmann.
48. mín
Dominik Radic gerir vel að halda sókn Njarðvíkinga lifandi og kemur með hættulegan bolta fyrir markið en það var enginn með honum inni í teig til að ráðast á boltann.
47. mín
Guðmundur Tyrfingsson reynir skot fyrir utan teig en dregur hann framhjá markinu.
46. mín
Seinni farinn af stað
Heimamenn sparka þessu af stað aftur.
Fylkir
46. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtNikulás Val Gunnarsson
45. mín
Þetta var það síðasta sem gerðist í þesssum fyrri hálfleik.

Liðin fara markalaus inn í hálfleikinn.

Tökum okkur þetta akademíska korter og snúum svo aftur með síðari.
Fylkir
45. mín
Gult spjald

Emil Ásmundsson

Brýtur á Valdimar Jóhannssyni þegar Njarðvíkingar eru að hlaupa upp í skyndisókn.
Fylkir
43. mín
Gult spjald

Guðmundur Tyrfingsson

42. mín
Máni Austmann í skotfæri en skotið í varnarmann og Fylkir fær horn.
40. mín
Arnleifur og Birkir Eyþórs í baráttunni, Arnleifur notar misviðurkenndar aðferðir að skýla boltanum afturfyrir við litla hrifningu úr stúkunni.
36. mín
Njarðvíkingar að skapa ursla og Ólafur Kristófer reynir að kýla bolta burt en hittir ekki. Smá vandræðagangur en Fylkir leysir úr þessu.
30. mín
Guðmundur Tyrfingsson í afbragðs skallafæri en skallir framhjá. Boltinn mögulega farinn útaf þegar fyrirgjöfin kom en kemur út á því sama.
26. mín
Emil Ásmundsson að komast í skotfæri en Arnleifur Hjörleifsson nær að vera fyrir.
20. mín
Amin Cosic er að hrella Fylkismenn hérna á vinstri vængnum.
19. mín
Emil Ásmundsson tekur aukaspyrnuna og hún fer í vegginn og í hendurnar á Aroni Snær.
18. mín
Oumar Diocuk brýtur á Arnóri Breka rétt fyrir utan teig og Fylkir fær því aukaspyrnu á hættulegum stað.
17. mín
Njarðvíkingar að leita af opnunum en Fylkismenn eru þéttir til baka.
13. mín
Flott samspil hjá Amin Cosic og Valdimar Jóhannssyni vinnur horn fyrir Njarðvíkinga.
10. mín
Emil Ásmundsson með tilraun fyrir utan teig yfir markið.
4. mín
Valdimar Jóhannsson tekur spyrnuna og hún er yfir markið.
4. mín
Njarðvíkingar fá aukaspyrnu á flottum stað eftir að brotið hafi verið á Svavari Erni.
2. mín
Njarðvíkingar gefa klaufalega sendingu til baka og Fylkismenn fá fyrsta horn leiksins.
2. mín
Leikurinn er í beinni á Livey


1. mín
Það eru gestirnir sem sparka okkur stað hér á Tekk vellinum.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Atli Þór Jónasson, sem keyptur var frá HK til Víkings í vetur, spáir í leiki umferðarinnar. Atli skoraði sitt fyrsta Evrópumark í gær þegar hann skoraði í risasigri Víkings gegn Malisheva.

Fylkir 1 - 1 Njarðvík
Þetta verður hörku leikur sem endar 1-1. Gummi Tyrfings með mark og Oumar Diouck fyrir Njarðvík.

Fyrir leik
Arnar Grétarsson tók við Fylki í vikunni
Arnar var staðfestur í vikunni sem nýr þjálfari Fylkis en hann tekur við af Árna Guðnasyni. Árbæjarliðið er aðeins einu stigi frá fallsæti en fyrir tímabilið var því spáð sigri í Lengjudeildinni.



Mynd: Fylkir


Arnar skrifaði undir samning út tímabilið og stýrir Fylki í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið fær Njarðvík í heimsókn. Glugginn er að opna og Arnar segir að það verði skoðað hvort styrkja þurfi hópinn.

„Maður er nýtekinn við, aðragandinn er mjög stuttur. Við komum til með að skoða stöðuna á hópnum og við þurfum að skoða hvað er hægt að gera, hverju við þurfum á að halda. Fyrsta verkefni er að hugsa um leikinn á föstudag og svo í framhaldi af því förum við að skoða aðra hluti."

Fyrir leik
Fylkismenn bættu líka við sig
Fylki krækti í Mána Austmann Hilmarsson frá Fjölni, sem var markahæsti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð.

Hann er kominn með leikheimild með Fylki og getur tekið þátt í leiknum í kvöld.

Mynd: Fylkir


Fyrir leik
Njarðvíkingar bæta við sig
Njarðvík hefur á síðustu dögum fengið til sín tvo leikmenn fyrir baráttuna í seinni hluta Lengjudeildarinnar. Ganverjinn Thomas Boakye kom frá Halmstad í Svíþjóð og Manuel Gavilán kom frá Spáni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð






Fyrir leik
Amin Cosic kveður eftir leikinn í kvöld
Amin er kantmaður sem verður tvítugur í október. Hann hefur átt gott tímabil með Njarðvík, skorað fimm mörk í ellefu leikjum í Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Hann gengur formlega í raðir KR eftir leik í kvöld og gæti spilað sinn fyrsta leik með KR annan laugardag þegar KR spilar heimaleik gegn Breiðabliki.

Fyrir leik
Árni Freyr látinn fara frá Fylki
Árni Freyr Guðnason er ekki lengur þjálfari meistaraflokks karla hjá Fylki. Þetta kom fram í tilkynningu Fylkis á mánudaginn.



Fylkir réði Árna síðasta haust, eftir að hann og Jóhann Birnir Guðmundsson höfðu verið valdir þjálfarar ársins í Lengjudeildinni í fyrra eftir frábært tímabil með ÍR, og gerði við hann þriggja ára samning. Það byrjaði vel hjá Fylki undir stjórn Árna, liðið lék vel í vetur og fór alla leið í úrslitaleik Lengjubikarsins. Fylkir tók fjögur stig út úr fyrstu tveimur leikjum sínum en einungis sex úr síðustu tíu leikjum.

Árni var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að hafa fengið rautt spajd gegn ÍR í þarsíðustu umferð og var því ekki á hliðarlínunni þegar Fylkir tapaði 3-1 gegn Selfossi á föstudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fylkir
Fylkir hafa verið í ævintýralegri brekku á þessari leiktíð. Í síðustu umferð töpuðu þeir fyrir Selfoss á útivelli með þremur mörkum gegn einu.

Fylkir hafa bara unnið tvo leiki í deildinni það sem af er tímabils og sitja í 9.sæti deildarinnar með 10 stig.

Ljóst er að nýr þjálfari mun stýra liðinu gegn Njarðvíkingum en Fylkismenn rifu í gikkinn eftir Selfoss leikinn og ráku Árna Freyr Guðnason.

Fylkir hafa skorað 16 mörk í sumar og hafa þessi mörk raðast niður á:

Þóroddur Víkingsson - 3 mörk
Pablo Simon - 3 mörk
Eyþór Aron Wöhler - 2 mörk
Emil Ásmundsson - 2 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Njarðvík
Njarðvíkingum mistókst að taka toppsætið í síðustu umferð þegar þeir mættu Völsungi fyrir norðan. Njarðvíkingar sóttu þar sitt sjötta jafntefli í sumar með 1-1 jafntefli.

Njarðvík eru í 2. sæti deildarinnar stigi á eftir ÍR sem tróna á toppnum með 25 stig.

Njarðvíkignar eru jafnir HK í 2.-3. sætinu með 24 stig en markatala Njarðvíkinga er betri. Njarðvíkingar hafa skorað flest mörk allra liða í deildinni eða 30 og hafa þessi mörk raðast niður á:

Oumar Diocuk - 8 mörk
Dominik Radic - 6 mörk
Amin Cosic - 5 mörk
Valdimar Jóhannsson - 3 mörk
Tómas Bjarki Jónsson - 3 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið
Jens Elvar Sævarsson heldur utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Smári Stefánsson og Nour Natan Ninir.
Eftirlitsmaður KSÍ er Oddur Helgi Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Tekk völlinn!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Fylkis og Njarðvíkur í þrettándu umferð Lengjudeildarinnar sem fram fer á Tekk vellinum í Árbænum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



föstudagur 18. júlí
18:00 HK-Þór (Kórinn)
19:15 Grindavík-Selfoss (Vogaídýfuvöllurinn)
19:15 Keflavík-Fjölnir (HS Orku völlurinn)
19:15 Fylkir-Njarðvík (tekk VÖLLURINN)
19:15 Leiknir R.-Þróttur R. (Domusnovavöllurinn)

laugardagur 19. júlí
16:00 Völsungur-ÍR (PCC völlurinn Húsavík)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.