Fotbolti.net
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Lengjudeild karla
Vogaídýfuvöllur
Grindavík
Grindavík
0 - 2
Selfoss
Selfoss
0 - 140' Ívan Breki Sigurðsson0 - 243' Aron Fannar Birgisson
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Fyrstir að halda hreinu gegn Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Mér fannst þetta kaflaskiptur leikur en Selfyssingar kannski aðeins ákveðnari á seinasta þriðjungnum og skora mörkin sín á tveggja mínútna kafla sem klárar leikinn.

Bestu leikmenn

1. Reynir Freyr Sveinsson

Mér fannst hann frábær í hjartanu. Var alltaf að skalla eitthvað í burtu eða henda sér fyrir skot. Frábær leikur hjá Reyni sem lagði líf og sál í leikinn.

2. Jón Vignir Pétursson

Hann er ótrúlega mikilvægur fyrir þetta Selfoss lið og þess vegna er svo sorglegt hvað gerðist í lokin þegar hann öklabrotnaði. Að mínu mati nýtist hann liðinu mun betur á miðjunni en hann var ekkert smá duglegur og góður í gær.

Atvikið

Það gerðist ansi óhugnalegt atvik undir lok leiks í gær þegar Jón Vignir, fyrirliði Selfoss, fór meiddur af velli. Maður sá það á viðbrögðum Halla Hróðmars, þjálfara Grindavíkur, hversu ljótt þetta var. En hann var kominn inn á áður en Guðmundur stoppaði leikinn þar sem honum brá og þurfti að hlúa að Jóni. Jón fór svo útaf með börum og í sjúkrabíl að leiks lokum. Það kom svo í ljós að hann öklabrotnaði. Þvílíkt sorglegur endir á þessu ágæta leik hjá Jóni og Selfoss.

Hvað þýða úrslitin?

Selfyssingar eru ekki í fallsæti og eru komnir upp í 9. sætið með 13 stig. Grindavík fór niður í 8. sætið á markatölu.

Vondur dagur

Fyrsti leikur Grindvíkinga á tímabilinu sem þeim mistekst að skora í. Mér fannst sóknarmenn Grindavíkur allir sem einn ekki góðir í dag og það sást lítið til þeirra. Selfyssingar fóru einhvernveginn létt með að halda hreinu í gær.

Dómarinn - 7

Þetta var að mínu mati bara vel dæmdur leikur hjá Guðmundi. Auðvitað eitt og eitt atvik hér og þar sem maður var ósammála en það er ekkert óvenjulegt. Hann fær góða sjöu frá mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.