Manchester-liðin sýna Donnarumma áhuga - Arsenal vill klára kaupin á Eze - Fofana til Everton?
Besta-deild karla
Vestri
90' 2
0
ÍBV
Rey Cup U16 kvenna
Bayern Munchen U16
26' 1
0
Stjarnan U16
Rey Cup U16 karlar
Þróttur U16
LL 4
1
Austurland U16
Rey Cup U14 kvenna
Bayern Munchen U14
LL 2
1
RKVN U14
Rey Cup U14 karlar
Valur U14
LL 4
0
Selfoss U14
Vestri
2
0
ÍBV
Diego Montiel '20 1-0
Ágúst Eðvald Hlynsson '43 2-0
27.07.2025  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Áhorfendur: 330
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
2. Morten Ohlsen Hansen
3. Anton Kralj ('72)
4. Fatai Gbadamosi
7. Vladimir Tufegdzic ('84)
8. Ágúst Eðvald Hlynsson ('81)
10. Diego Montiel ('72)
28. Jeppe Pedersen
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson
40. Gustav Kjeldsen
77. Sergine Fall ('46)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
1. Benjamin Schubert (m)
5. Thibang Phete ('72)
15. Guðmundur Arnar Svavarsson ('72)
17. Guðmundur Páll Einarsson ('84)
19. Emmanuel Duah ('81)
22. Elmar Atli Garðarsson ('46)
23. Silas Songani
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Jón Hálfdán Pétursson
Þorsteinn Goði Einarsson
Vladan Djogatovic
Vignir Snær Stefánsson
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
90. mín
5 mínútum bætt við
90. mín
Eyjamenn fá hornspyrnu
87. mín
Guðmundur Páll og Mattias Edeland skullu saman og liggja hér eftir en þeir halda báðir leik áfram
84. mín
Inn:Guðmundur Páll Einarsson (Vestri) Út:Vladimir Tufegdzic (Vestri)
83. mín
Guy í smá vandræðum reynir að grípa boltann en missir hann og Vestra menn koma þessu frá markinu
81. mín
Inn:Emmanuel Duah (Vestri) Út:Ágúst Eðvald Hlynsson (Vestri)
79. mín
Tufa með fínan skalla á markið en Marcel Zapytowski ver þetta vel
77. mín
Inn:Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV) Út:Hermann Þór Ragnarsson (ÍBV)
74. mín
Víðir með fínt skot fyrir utan teig en Guy ver þetta vel
72. mín
Inn:Thibang Phete (Vestri) Út:Diego Montiel (Vestri)
Montiel tekinn útaf hér, maður leiksins að mínu mati
72. mín
Inn:Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri) Út:Anton Kralj (Vestri)
71. mín
Montiel setur spyrnuna beint í vegginn og Vestri fær hornspyrnu
70. mín
Montiel með flotta takta og er svo nelgdur niður rétt fyrir utan teig ÍBV
67. mín
Inn:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV) Út:Oliver Heiðarsson (ÍBV)
67. mín
Inn:Víðir Þorvarðarson (ÍBV) Út:Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
67. mín
Inn:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV) Út:Elvis Bwomono (ÍBV)
66. mín
Alex Freyr með fína aukapyrnu og Sigurður nær smá snertingu á boltann en skallar framhjá markinu
61. mín
Áhorfendur eru 330 hér í dag
60. mín
ÍBV að ógna meiri í seinni hálfleik en enginn hættuleg færi
57. mín
ÍBV fá hornspyrnu sem Tufa skallar frá
52. mín
Milan Tomic tekur skot lengst fyrir utan teig en það er hátt yfir markið
48. mín
Alex Freyr með fyrsta skot seinni hálfleiksins sem fer í Eið Aron og endar í hornspyrnu sem Guy Smit grípur
46. mín
Seinni farinn af stað Vestri byrjar með boltann
46. mín
Inn:Sverrir Páll Hjaltested (ÍBV) Út:Þorlákur Breki Þ. Baxter (ÍBV)
46. mín
Inn:Elmar Atli Garðarsson (Vestri) Út:Sergine Fall (Vestri)
45. mín
45. mín
Hálfleikstölfræði af Sýn Sport Með boltann: 53% - 47%
Marktilraunir: 5-6
Skot á mark: 3-3
Hornspyrnur: 0-2
Heppnaðar sendingar: 218-183
45. mín
Hálfleikur
Vestri að vinna 2-0 en lítið búið að gerast í þessum leik.

Vestri búnir að nýta færin sín vel og verjast vel
45. mín Gult spjald: Oliver Heiðarsson (ÍBV)
Brýtur á Gustav Kjeldsen er alltof seinn í að reyna við boltann
43. mín MARK!
Ágúst Eðvald Hlynsson (Vestri)
Stoðsending: Diego Montiel
MARK!!! Ágúst keyrir á vörn ÍBV tekur þríhyrning með Diego Montiel og setur svo boltann í fjærhornið!
Fyrsti leikurinn hanns og fyrsta markið Vestri eru komnir í 2-0!
39. mín
Oliver Heiðarsson með skot en Guy Smit á auðvelt með að grípa það
38. mín
Diego Montiel með skemmtilega takta tekur boltann framhjá einum kemur honum á Ágúst sem framlengir á Jeppe Pedersen sem á skot beint á markið
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
37. mín
Tufa að sleppa í gegn en það er flögguð rangstæða!
28. mín
Oliver Heiðarsson keyrir inn á teig Vestramanna og á skot beint á Guy Smit í markinu
26. mín
Vincente Valor tekur aukaspyrnu á hægri kanntinum og kemur með fyrirgjöf að markinu og boltinn fer rétt framhjá
24. mín
Fyrstu hornspyrnu leiksins fá ÍBV
20. mín MARK!
Diego Montiel (Vestri)
MAAARK!!! Diego Montiel vinnur hér boltaan rétt fyrir utan teig og keyrir á vörn ÍBV skýtur og boltinn fer aðeins í Mattias Edeland og endar í markinu! Fyrsta mark Vestra í deildinni síðan 15 júní
19. mín
Vincente Valor reynir að lyfta boltanum á Breka Baxter en bolting fer útaf og Vestre fá markspyrnu
15. mín
Mjög rólegur leikur lítið um færi fyrstu 15 mínúturnar
10. mín
STÖNGIN!!! Diego Montiel tekur spyrnuna sem er föst og smellur í innanverða stöngina og boltinn endar svo hjá ÍBV
9. mín
Vestri fær aukaspyrnu á fínum stað Mattias Edeland brýtur á Ágústi Eðvald
4. mín
ÍBV fær fyrstu aukaspyrnu leiksins, Fall brýtur á miðjum velli
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! ÍBV sparkar þessu í gang
Fyrir leik
Vestri hefur verið í brasi í undanförnum leikjum með að skora mörk og sömu sögu má segja um ÍBV.
Undir 2.5 mörk í þessum er á stuðlinum 2.10 hjá Epic.
Fyrir leik
Elvis og Oliver byrja hjá ÍBV Alls eru þrjár breytingar á liði Eyjamanna. Oliver Heiðarsson, Elvis Bwomono og Þorlákur Breki Baxter koma inn fyrir Felix Þór Friðriksson, Sverri Pál Hjaltested og Víði Þorvarðarson.

Oliver Heiðars er að snúa aftur í byrjunarliðið eftir erfið meiðsli sem hann varð fyrir fyrr á tímabilinu og þá er þetta fyrsti leikur Elvis sem sneri aftur í ÍBV eftir að hafa spilað með St. Mirren í Skotlandi síðustu tvö ár.
Fyrir leik
Töluverðar breytingar Það eru töluverðar breytingar á Vestraliðinu frá síðasta leik en Ágúst Hlynsson, Jeppe Pedersen, Sergine Modou Fell, Eiður Aron Sigurbjörnsson og Anton Kralj koma inn í liðið fyrir Gunnar Jónas Hauksson, Guðmund Arnar Svavarsson, Emmanuel Agyeman Duah, Elmar Atla Garðarsson og Guðmund Pál Einarsson.
Fyrir leik
Ágúst Hlyns beint í byrjunarlið Vestra
Mynd: Vestri

Vestri hefur fengið svakalega styrkingu fyrir síðari hluta tímabilsins en Ágúst Eðvald Hlynsson er genginn í raðir félagsins frá AB í Danmörku. Hann fer beint í byrjunarlið Vestra.

Daði Berg Jónsson sneri aftur í Víking á dögunum eftir að hafa verið á láni hjá Vestra og kemur Ágúst til með að fylla í skarðið sem Daði skildi eftir sig.

Ágúst er 25 ára gamall og getur leyst flestar sóknarstöðurnar á vellinum.

Hann spilaði með Þór til ellefu ára aldurs áður en hann gekk í raðir Breiðabliks. Hér á landi spilaði hann með Blikum, FH, Val og Víkingi, en erlendis var hann í akademíunni hjá Bröndby og Norwich, ásamt því að hafa leikið með Horsens í dönsku B-deildinni.

Síðustu tvö tímabil hefur hann spilað með AB í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Jóhannesar Karls Guðjónssonar.

Ágúst hefur spilað 35 leiki og skorað 5 mörk með yngri landsliðum Íslands og á 104 leiki í efstu deild á Íslandi.
Fyrir leik
Vestri hefur tapað fjórum leikjum í röð Vestramenn töpuðu 1-0 fyrir Breiðabliki í Kópavoginum í síðustu umferð. Alls hafa Djúpmenn tapað fjórum deildarleikjum í röð en þeir eru hinsvegar komnir í úrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem þeir munu mæta Val. Vestri er í sjötta særi með 19 stig og hefur verið að síga niður töfluna eftir hreint geggjaða byrjun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Vestri vann ÍBV í Vestmannaeyjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vladimir Tufegdzic og Gunnar Jónas Hauksson skoruðu mörkin þegar Vestri vann 2-0 útisigur gegn ÍBV þann 4. maí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
ÍBV fékk Elvis til baka í glugganum Glugginn er galopinn en Eyjamenn fengu varnarmanninn Elvis Bwonomo. Fyrst kom Elvis til liðsins árið 2022 og lék þá með ÍBV tvö leiktímabil en hann var eftir tímabilið 2023 valinn besti leikmaður ÍBV.

   15.07.2025 14:07
Elvis mættur aftur til Eyja (Staðfest)
Fyrir leik
ÍBV vann í síðustu umferð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Freyr Hilmarsson skoraði sigurmark ÍBV gegn Stjörnunni í 1-0 sigri í síðustu umferð. ÍBV hefur náð í fjögur stig úr síðustu tveimur leikjum og náð að stöðva taphrinu. Eyjamenn eru í níunda sæti með átján stig. Oliver Heiðarsson er kominn í gang aftur eftir meiðsli sem eru ansi góð tíðindi fyrir liðið.

   15.07.2025 15:00
Sneri aftur eftir tveggja mánaða fjarveru - „Gæti ekki verið ánægðari"
Fyrir leik
Í leikbanni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn drjúgi Gunnar Jónas Hauksson tekur út leikbann í dag.
Fyrir leik
Marchetti norðursins er eftirlitsmaður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KSÍ er ekkert að spara í dag og Birkir Sveinsson, Marchetti norðursins, er mættur til Ísafjarðar og sinnir eftirlitsstörfum.
Fyrir leik
ÞÞÞ í þriðja liðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Aðstoðardómari: Kristján Már Ólafs
Aðstoðardómari: Bryngeir Valdimarsson
Varadómari: Hreinn Magnússon
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Velkomin með okkur í beina textalýsingu frá Ísafirði þar sem Vestri og ÍBV mætast í 16. umferð Bestu deildarinnar. Flautað verður til leiks klukkan 14.

Umferðin hófst með 2-0 sigri KA gegn ÍA fyrir rúmri viku síðan og svo gerðu KR og Breiðablik 1-1 jafntefli í gær. Þett eru aðrir leikir umferðarinnar:

sunnudagur 27. júlí
14:00 Vestri-ÍBV (Kerecisvöllurinn)
19:15 Fram-Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)

mánudagur 28. júlí
19:15 Stjarnan-Afturelding (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:
1. Marcel Zapytowski (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
5. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
22. Oliver Heiðarsson ('67)
23. Arnór Ingi Kristinsson
24. Hermann Þór Ragnarsson ('77)
25. Alex Freyr Hilmarsson (f) ('67)
30. Vicente Valor
42. Elvis Bwomono ('67)
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('46)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
3. Emil Gautason
4. Nökkvi Már Nökkvason
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('67) ('67)
10. Sverrir Páll Hjaltested ('46)
11. Víðir Þorvarðarson ('67)
14. Arnar Breki Gunnarsson ('77)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Óskar Elías Zoega Óskarsson
Elías J Friðriksson
Arnar Gauti Grettisson
Elías Árni Jónsson
Filipe Andre Alexandre Machado

Gul spjöld:
Oliver Heiðarsson ('45)

Rauð spjöld: