Man Utd gæti reynt við Pope - Arsenal vonar að Palace lækki verðið á Eze
Lengjudeild karla
Selfoss
19:15 0
0
ÍR
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Breiðablik
14' 0
0
Lech Poznan
Lengjudeild karla
Fjölnir
10' 0
0
Völsungur
Lengjudeild kvenna
Grótta
19:15 0
0
Grind/Njarð
Þór
2
0
Grindavík
Rafael Victor '57 1-0
Haraldur Björgvin Eysteinsson '78 , sjálfsmark 2-0
29.07.2025  -  18:00
Boginn
Lengjudeild karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Yann Emmanuel Affi
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
5. Yann Emmanuel Affi
6. Ibrahima Balde
7. Orri Sigurjónsson ('63)
8. Einar Freyr Halldórsson ('84)
9. Rafael Victor ('90)
15. Kristófer Kristjánsson ('63)
19. Ragnar Óli Ragnarsson
24. Ýmir Már Geirsson
25. Christian Jakobsen ('84)
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('84)
10. Aron Ingi Magnússon ('63)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
18. Sverrir Páll Ingason ('63)
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('90)
26. Dagbjartur Búi Davíðsson ('84)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Gestur Örn Arason
Stefán Ingi Jóhannsson

Gul spjöld:
Orri Sigurjónsson ('53)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sanngjarn sigur heimamanna staðreynd. Grindavík átti síðustu tilraun leiksins en Aron Birkir kýldi boltann út.
93. mín
Verið afskaplega tiðindalítið eftir seinna mark leiksins. Þetta er að komast í höfn fyrir Þór.
90. mín
fimm mínútum bætt við
90. mín
Inn:Vilhelm Ottó Biering Ottósson (Þór ) Út:Rafael Victor (Þór )
86. mín Gult spjald: Sindri Þór Guðmundsson (Grindavík)
84. mín
Inn:Dagbjartur Búi Davíðsson (Þór ) Út:Einar Freyr Halldórsson (Þór )
84. mín
Inn:Hermann Helgi Rúnarsson (Þór ) Út:Christian Jakobsen (Þór )
83. mín
Inn:Manuel Gavilan Morales (Grindavík) Út:Darren Sidoel (Grindavík)
83. mín
Inn:Árni Salvar Heimisson (Grindavík) Út:Ármann Ingi Finnbogason (Grindavík)
78. mín SJÁLFSMARK!
Haraldur Björgvin Eysteinsson (Grindavík)
Stoðsending: Sverrir Páll Ingason
Sverrir Páll Ingason reynir fyrirgjöf en boltinn fer af Haraldi og rúllar í netið.
76. mín
Adam Árni Róbertsson í færi hinu megin. Átti skalla sem Aron Birkir blakar yfir. Ekkert kemur út úr hornspyrnunni.
75. mín
Affi í dauðafæri eftir hornspyrnu en boltinn fer einhvern vegin ekki inn.
70. mín
Þór fær aukaspyrnu inn í D-boganum. Sigfús reyndi skot meðfram jörðinni í markmannshornið en boltinn fór í varnarmann.
66. mín
Skalli yfir markið eftir hornspyrnu frá Grindavík
63. mín
Inn:Sverrir Páll Ingason (Þór ) Út:Kristófer Kristjánsson (Þór )
63. mín
Inn:Aron Ingi Magnússon (Þór ) Út:Orri Sigurjónsson (Þór )
57. mín MARK!
Rafael Victor (Þór )
Stoðsending: Ibrahima Balde
Aron Birkir dúndrar boltanum fram á Balde sem er með boltann inn á teignum og rennur honum á Rafa sem á ekki í neinum vandræðum með að renna boltanum í netið.
56. mín
Kristófer Kristjánsson með skot en boltinn alltaf á leiðinni yfir markið.
53. mín Gult spjald: Orri Sigurjónsson (Þór )
Reyndi að stöðva skyndisókn. Grindavík komst hins vegar áleiðis og Twana lét leikinn fljóta en reif spjaldið upp þegar sóknin rann út í sandinn.
47. mín
Rafa með sendingu á Christian Jakobsen en skotið frá honum beint á Matias Niemela.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við enda ekki mikið gengið á. Rólegum fyrri hálfleik lokið. Vonandi fáum við að sjá meira fjör í seinni hálfleik.
44. mín
Boltinn fer af Balde og inn fyrir vörn Þórs. Ármann Ingi fær boltann en skotið framhjá. Besta færi leiksins til þessa.
41. mín
Góð fyrirgjöf frá vinstri og Sigfús Fannar tekur viðstöðulaust skot úr góðu færi en hittir boltann illa og hann fer framhjá.
39. mín
Affi og Ragnar bakka hvorn annan upp. Í þetta sinn fer Breki Þór Hermannsson auðveldlega framhjá Ragnari Óla en Affi er mættur og kemur í veg fyrir að Breki komist lengra.
36. mín
Grindvíkingar hafa staðið vaktina vel aftast. Komast nú upp í skyndisókn og fá hornspyrnu. Twana dæmir aukaspyrnu inn á teignum.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Kristófer vinnur boltann hátt á vellinum og Rafael Victor fær hann. Á skot í varnarmann og aftur fyrir, hornspyrna. Ekkert verður úr henni.
29. mín
Ragnar Óli með skalla eftir horn. Hittir boltann mjög illa og hann rúllar í hendurnar á Matias.
23. mín
Ýmir Már með fastann bolta meðfram jörðinni þvert fyrir markið en Rafael Victor nær ekki til boltans. Þarna var tækifæri fyrir Þórsara.
19. mín
Rafael Victor með boltann fyrir utan teig. Álitleg sókn en hann ákveður að taka skot nánast úr kyrrstöðu og boltinn fer beint á Matias Niemela í marki Grindvíkinga.
13. mín
Verið rólegt undanfarnar mínútur. Þórsarar með yfirhöndina.
8. mín
Ármann Ingi Finnbogason með frábæran sprett inn á teiginn. Fór léttilega framhjá nokkrum Þórsurum. Fellur að lokum inn á teignum, kallar eitthvað eftir víti en fannst réttilega ekkert dæmt.
7. mín
Yann Affi misreiknar boltann og Ingi Þór Sigurðsson kemst framhjá honum en Ragnar Óli Ragnarsson kemur Affi til bjargar áður en Ingi kemst í góða stöðu.
4. mín
Rafael Victor kominn í góða stöðu en missir boltann frá sér. Þór fær horn. Ekkert kemur út úr því, Christian Jakobsen dæmdur rangstæður.
2. mín
Sigfús Fannar Gunnarsson reynir að skrúfa boltann í fjær eftir samspil við Ibrahima Baldee en boltinn fer framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Rafael Victor sparkar þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðin Það er ein breyting á liði Þórs sem gerði 2-2 jafntefli gegn Keflavík í síðustu umferð. Kristófer Kristjánsson kemur inn í liðið og er í fyrsta sinn í byrjunarliðinu í sumar. Clement Bayiha er ekki í hópnum.

Lið Grindavíkur er óbreytt frá 2-1 tapi gegn Þrótti. Manuel Gavilán er á bekknumen hann gekk óvænt til liðs við Grindavík á dögunum. Hann var á leið til Njarðvíkur. Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net voru Njarðvíkingar ekki ánægðir með líkamlegt ástand hans þegar hann mætti.
Fyrir leik
Viktor spáir heimasigri Viktor Freyr Sigurðsson, sem hefur verið frábær í marki Fram í sumar, spáir í leikinn.

Þór 3 - 1 Grindavík
Þórsarar taka þennan þægilega inn í Boganum. Ibrahima Balde heldur áfram að vera einn besti leikmaður deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Twana Khalid Ahmed er með flautuna í kvöld. Birkir Örn Pétursson og Kári Mímisson verða honum til aðstoðar. Vilhelm Adolfsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Markaveisla í fyrri leiknum Liðin mættust í fyrri umferðinni á Stakkavíkurvöllur í Grindavík og buðu upp á veislu. Þór var með 4-2 forystu þar til í blálokin þegar Ármann Ingi Finnbogason skoraði úr vítaspyrnu og náði að klóra í bakkann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Bras á Grindvíkingum Það hefur ekki gengið vel í Grindavík að undanförnu. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þórsarar flottir Þórsarar hafa verið á góðu skriði að undanförnu. Liðið hefur unnið fjóra gert eitt jafntefli og tapað einum. Sigfús Fannar Gunnarsson er næst markahæsti leikmaður deildarinnar með níu mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Góða kvöldið Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og Grindavíkur í Lengjudeildinni. Leikurinn er liður í 15. umferð.
Byrjunarlið:
1. Matias Niemela (m)
4. Darren Sidoel ('83)
7. Ármann Ingi Finnbogason ('83)
9. Adam Árni Róbertsson (f)
10. Ingi Þór Sigurðsson
11. Breki Þór Hermannsson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
16. Dennis Nieblas
21. Rúrik Gunnarsson
23. Sindri Þór Guðmundsson
26. Eysteinn Rúnarsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
2. Árni Salvar Heimisson ('83)
6. Viktor Guðberg Hauksson
19. Manuel Gavilan Morales ('83)
20. Mikael Máni Þorfinnsson
22. Lárus Orri Ólafsson
25. Máni Berg Ellertsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Árni Hróðmarsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson
Jón Aðalgeir Ólafsson
Karim Ayyoub Hernández
Guðmundur Heiðar Jónsson

Gul spjöld:
Sindri Þór Guðmundsson ('86)

Rauð spjöld: