Man Utd gæti reynt við Pope - Arsenal vonar að Palace lækki verðið á Eze
Lengjudeild karla
Selfoss
19:15 0
0
ÍR
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Breiðablik
16' 0
0
Lech Poznan
Lengjudeild karla
Fjölnir
15' 0
0
Völsungur
Lengjudeild kvenna
Grótta
19:15 0
0
Grind/Njarð
Valur
2
3
FH
Elín Metta Jensen '2 1-0
1-1 Elísa Lana Sigurjónsdóttir '4
1-2 Maya Lauren Hansen '29
Elísa Viðarsdóttir '81 2-2
2-3 Margrét Brynja Kristinsdóttir '119
29.07.2025  -  19:30
N1-völlurinn Hlíðarenda
Mjólkurbikar kvenna
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Maya Lauren Hansen
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
5. Bryndís Eiríksdóttir ('46)
7. Elísa Viðarsdóttir (f)
9. Jasmín Erla Ingadóttir ('82)
10. Berglind Rós Ágústsdóttir
14. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
16. Elín Metta Jensen ('46)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir ('46)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
20. Björk Björnsdóttir (m)
3. Sóley Edda Ingadóttir ('46)
6. Natasha Anasi
13. Nadía Atladóttir ('82)
17. Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('46)
24. Auður Björg Ármannsdóttir
26. Ása Kristín Tryggvadóttir
27. Helena Ósk Hálfdánardóttir
30. Jordyn Rhodes ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Kristján Guðmundsson (Þ)
María Hjaltalín
Hjörtur Fjeldsted
Fjalar Þorgeirsson
Anna Sóley Jensdóttir
Jónas Breki Kristinsson

Gul spjöld:
Málfríður Anna Eiríksdóttir ('27)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Úfffff þetta var rosalegt! FH knýja fram sigur á lokamínútum framlengingar, hélt við værum að fara í vító!

Takk fyrir mig! Skýrsla og viðtöl koma inn seinna í kvöld
119. mín MARK!
Margrét Brynja Kristinsdóttir (FH)
Stoðsending: Thelma Karen Pálmadóttir
Váááá Thelma Karen með fyrirgjöf úr efstu hillu! Beint í fæturnar á Margréti sem setur hann inn
118. mín
Hér er allt í járnum á lokamínútum
116. mín
FH konur þeysast í skyndisókn en Sóley Edda rétt kona á réttum stað kemur í veg fyrir þessa skyndisókn
115. mín
Fanndís með rosalega fyrirgjöf en engin Valskona nær honum í teignum
113. mín
Themla Lóa komin í góða stöðu en Málfríður Anna gerir ótrúlega vel og fleygir sér fyrir boltann
110. mín
Maya stingur boltanum inn á Margréti Brynju hún með gabbhreyfingarnar á hreinu endar síðan með lélegu skoti eða fyrirgjöf? Eiginlega ómögulegt að segja til um hvort... Boltinn allavega útaf
109. mín
Frábær sending upp á Thelmu Karen sem á góða fyrirgjöf en Berglind Freyja nær hins vegar ekki til boltans
108. mín
Hörkuskot hjá Elísu Lönu en Tinna Brá hins vegar vel vakandi í markinu
107. mín
Fanndís með hættulegan bolta inn í en þar var engin Valskona til að taka við honum
106. mín
Fanndís sparkar þessu af stað fyrir Valskonur
106. mín
Inn:Margrét Brynja Kristinsdóttir (FH) Út:Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
105. mín
Hálfleikur
Staðan hér enn 2-2

Ágætis færi á báða bóga hvað gerist í seinni hálfleik framlengingarinnar?!?!
105. mín
+1

Fanndís með hornspyrnu, alls konar vesen inn í teig FH en koma honum þó að lokum frá
105. mín
a.m.k. 2 mínútum bætt við
104. mín
Leikur stöðvaður þar sem Berglin lá óvíg eftir, hún er þó staðin upp, sýnist aðhlynningin hafa verið íbúfen og paratabs og inn á aftur
103. mín
Dauuuuuðafæri Maya Hansen komin í dauðafæri, skotið þó aðeins of laust og Tinna Brá ver vel
96. mín
Það er kominn ágætis hiti í þennan leik...
94. mín
Svakalegt skot hjá Thelmu Karen en Tinna Brá ver vel
91. mín
Leikur hafinn á ný! Deja jaylyn sparkar okkur af stað í framlengingu
91. mín
Inn:Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH) Út:Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (FH)
91. mín
Jæja! Við erum á leiðinni í framlengingu hérna á Hlíðarenda, Valskonur ótrúlega seigar að finna jöfnunarmarkið
90. mín
Hættulegt... +2

Ingibjörg með sprett upp kanntinn, hún og Maya voru komnar í mjög álitlega stöðu, Tinna hins vegar lokar hér ótrúlega vel á Mayu
90. mín
a.m.k. 2 mínútum bætt við
90. mín
Lokamínúturnar hérna á venjulegum leiktíma... Förum við í framlengingu?
87. mín
Ingibjörg platar Elísu Viðars alveg upp úr skónum, boltinn er svo hirtur af henni af valsvörninni þær með hættulega sendingu svo til baka sem Maya Hansen er örlítið frá því að stela
84. mín
Elísa Lana með skot en Tinna grípur þennan örugglega
82. mín
Inn:Nadía Atladóttir (Valur) Út:Jasmín Erla Ingadóttir (Valur)
81. mín MARK!
Elísa Viðarsdóttir (Valur)
Úffff aftur markmannsmistök hjá FH og Elísa Viðars gengur á lagið og hamrar boltanum inn, þarna er reynslan hjá Val mætt
80. mín
Hörkuskot hér frá FH sem Tinna ver yfir
78. mín
Hæææættttttuleeeeegt Maya Hansen kemst ein í gegn en Tinna Brá aftur vel á verði
77. mín
FH stuðningsmenn hafa greinilega fjölmennt á leikinn að styðja sínar konur, heyrist hér hátt áfram FH
76. mín
Harpa reynir fyrirgjöf en Tinna Brá grípur þetta
73. mín
Jordyn við það að sleppa í gegn en stöðvuð af Hörpu Helgadóttur
70. mín
Valur heldur betur búið að sækja í sig veðrið, eru að spila miklu betri sóknarleik en í fyrri hálfleik
66. mín
Inn:Ingibjörg Magnúsdóttir (FH) Út:Thelma Lóa Hermannsdóttir (FH)
65. mín
Thelma Lóa minnir á sig! á gott skot en rétt framhjá
63. mín
Berglind með höööörkuskot fyrir utan tieg en aftur ver Enneking vel
62. mín
Elísa reynir hér fyrirgjöf en Enneking vel á verði og grípur þetta
60. mín
Inn:Harpa Helgadóttir (FH) Út:Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
59. mín
Fannnnndís Með hörkuskot en Macy Henneking ver vel
56. mín
Elísa með góða spyrnu! Hættulegt færi en Enneking grípur þetta vel
52. mín
FH aftur mættar eftir hálfleikinn, smá bras í byrjun en svo hafa komið hér álitleg færi
47. mín
Valur byrjar seinni hálfleikinn með látum, 3x skipting og svo strax bara tvö ljómandi færi! Enneking gerir hins vegar vel í að verja
46. mín
Inn:Jordyn Rhodes (Valur) Út:Kolbrá Una Kristinsdóttir (Valur)
46. mín
Inn:Arnfríður Auður Arnarsdóttir (Valur) Út:Elín Metta Jensen (Valur)
46. mín
Inn:Sóley Edda Ingadóttir (Valur) Út:Bryndís Eiríksdóttir (Valur)
45. mín
Hálfleikur
FH leiðir hér 1-2 í hálfleik, hafa bara verið miklu betri eftir því sem leið á leikinn, í raun óheppnar að hafa ekki náð fleiri mörkum inn.

Það má hins vegar ekki afskrifa Valskonur, gífurleg reynsla sem það lið býr yfir og Elín Metta er til alls líkleg
45. mín
uppbótatími a.m.k. 1 mínúta
44. mín
Boltinn berst upp á Mayu sem keyrir með hann upp en Lillý Rut gerir þetta ógeðslega vel, hægir á henni og nær síðan að pikka boltanum frá henni
39. mín
úfffffffff Thelma Lóa eiginlega bara dettur með boltann inn í markið en hendi dæmd og því ekkert mark hjá FH

Vörnin hjá Val hefur síðustu mínútur eiginlega bara verið eins og gatasigti...
38. mín
Elísa brýtur á Kötlu Maríu, aukaspyrna sem þær taka stutt
37. mín
Leikurinn stöðvaður Kolbrá fékk hér rétt áður skot í höfuðið, gengur útaf og fær test hjá sjúkraþjálfara, greinilega staðist því hún fær leyfi til að koma aftur inn á
36. mín
Skrítnir dómar hér.... Tinna Brá stálheppin að aðstoðardómari lyfti flagginu og rangstæða dæmd
34. mín
Darraðardans í teignum hjá FH, Elín á svo skot í varnamann og afturfyrir endalínu, munaði engu að hún næði að jafna og setja sitt annað mark
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín Gult spjald: Thelma Lóa Hermannsdóttir (FH)
29. mín MARK!
Maya Lauren Hansen (FH)
Katla María á skalla í þverslánna og hver önnur en Maya Hansen er síðan mætt í frákastið og stangar hann inn
27. mín Gult spjald: Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur)
Stöðvar hér Mayu Hansen sem var að komast í gegn
26. mín
Elísa vel á verði og kemst inn í hættulega sendingu á upp á Thelmu Karen
24. mín
Maya Hansen með fast skot langt fyrir utan teig sem Tinna Brá á ekki í vandræðum með
22. mín
Þetta var skrítið... Enneking fær krefjandi sendingu til baka, þarf að hafa sig alla við um að ná henni og fellur til jarðar eeeeeeen nær þó að halda boltanum inn á
20. mín
Sending upp á Elínu en rangstæða dæmd
16. mín
Dæmt á Thelmu Karen fyrir peysutog á Elísu, áhorfendur láta vel í sér heyra
15. mín
Stórhættuleg hornspyrna hjá Fanndísi sem Macy Enneking þarf að hafa sig alla við að verja
14. mín
Greinilegt leikplan hjá FH að setja boltann yfir eða inn fyrir vörnina hjá Val, fremstu leikmenn FH eru öskufljótar
9. mín
Fanndís tekur hornspyrnu fyrir Val, Macy ver út í teiginn, í kjölfarið kemur síðan skot sem endar í þverslánni
7. mín
Andrea Rán með hornspyrnu fyrir FH en boltinn út fyrir endalínu
4. mín MARK!
Elísa Lana Sigurjónsdóttir (FH)
Þetta var ekki lengi gert!

Sending úr vörn FH sýnist mér frá Kötlu Maríu inn fyrir vörn Vals þar sem Elísa Lana er fljótust og leggur hann snyrtilega í markið
2. mín MARK!
Elín Metta Jensen (Valur)
Vá! Eins og í síðasta leik þá skorar Valur hérna bara strax á upphafsmínútum!

Fast skot frá Elínu Mettu en eitthvað er nýi markamaður FH sofandi... hreinlega grípur hann en missir hann svo inn? úffff

Fyrsta mark Elínar eftir endurkomuna
1. mín
Leikur hafinn
Birna Kristín sparkar þessu af stað fyrir gestina
Fyrir leik
Byrjunarlið kvöldsins klár! Valur

Matthías Guðmundsson og Kristján Guðmundsson gera þrjár breytingar á liði sínu frá 2-1 sigrinum á FHL í síðasta leik Bestu deildarinnar.
Inn í byrjunarliðið koma Elín Metta, Jasmín Erla og Málfríður Anna í staðinn fyrir Natöshu, Helenu Ósk og Jordyn Rhodes.

FH
Bræðurnir Guðni og Hlynur Eiríkssynir gera hins vegar engar breytingar á sínu liði frá 3-1 sigri sínum á Fram í síðasta leik sínum í Bestu deildinni.
Fyrir leik
Dómarar kvöldsins Á flautunni í kvöld verður Gunnar Oddur Hafliðason og honum til halds og traust verða Bergur Daði Ágústsson og Ronnarong Wongmahadthai aðstoðadómarar,

Eftirlitsmaður er Hjalti Þór Halldórsson og varadómari í kvöld er Jens Elvar Sævarsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH FH unnu Þór/KA fyrir norðan í Boganum 1-3 í 8-liða úrslitunum.
Hefndu þær þar með fyrir tapið gegn þeim árið áður, þegar Þór/KA sigraði FH 0-1 í 8-liða.

FH ólíkt Val hefur verið að gera vel í Bestu deildinni þetta árið og sitja í 2. sæti með 25 stig, líkt og Þróttur í 3. sæti og ekki nema þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks.

FH hefur verið að raða til sín leikmönnum í glugganum og verður áhugavert að sjá hvernig FH mæta til leiks í kvöld!

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Valur Valskonur ríkjandi bikarmeistarar sigruðu Þrótt í 8-liða úrslitum 2-1 á Hlíðarenda.

Í Bestu deildinni hafa Valskonur ekki riðið feitum hesti og eru sem stendur í 5. sæti deildarinnar með 15 stig líkt og Fram í 6. sætinu og heilum 13 stigum á eftir toppliði Breiðabliks

Bikardraumurinn lifir þó enn góðu lífi og Valur getur vel tekið Bikarmeistaratitilinn ef þær detta í gírinn!

Ég á ekki von á öðru en að Valur gefi því allt í þetta í kvöld!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá N1-vellinum á Hlíðarenda þar sem Valur tekur á móti FH í undanúrslitum mjólkurbikarsins

Leikurinn hefst á slaginu 19:30!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
73. Macy Elizabeth Enneking (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
5. Arna Eiríksdóttir (f)
6. Katla María Þórðardóttir
7. Thelma Karen Pálmadóttir
8. Valgerður Ósk Valsdóttir ('60)
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('66)
13. Maya Lauren Hansen
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir
20. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('91)
23. Deja Jaylyn Sandoval
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
3. Erla Sól Vigfúsdóttir
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir ('91)
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir ('106)
36. Harpa Helgadóttir ('60)
37. Jónína Linnet
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('66) ('106)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Guðmundur Jón Viggósson
Brynjar Sigþórsson
Harpa Finnsdóttir

Gul spjöld:
Thelma Lóa Hermannsdóttir ('33)

Rauð spjöld: