Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
Bongo og smá gola
Valur
Valur
2 - 1
Breiðablik
Breiðablik
0 - 14' Damir MuminovicBjarni Mark Antonsson 71'1 - 1Orri Sigurður Ómarsson 93'2 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 1376
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
VALSMENN SIGRA!
Vilhjálmur Alvar flautar til leiksloka. Valsmenn sneru taflinu við og hirtu stigin þrjú. Valsarar nú með fimm stiga forystu á toppi deildarinnar.
Valur
93. mín
DRAMATÍSKARA VERÐUR ÞAÐ EKKI!

Orri Sigurður Ómarsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)

Valsmenn koma til baka og stela sigrinum!

Tryggvi tekur hornspyrnuna og Orri nær að koma hausnum í boltann og stýrir boltanum í netið.

Svipuð uppskrift og í fyrra markinu!
92. mín
Valsarar fá hornspyrnu.
92. mín
Valsmenn líklegri!
90. mín
Fimm mínútum bætt við!
Fáum við sigurmark?
88. mín
Þarna munaði litlu!
Valsmenn fá hornspyrnu, boltinn berst út í teiginn á Adam Ægi sem lætur vaða en boltinn í varnarmann. Því næst berst boltinn á Lundemo og skot hans í varnarmann Breiðabliks við marklínuna!

86. mín
Túfa kallar eftir meiri stuðning frá Völsurum í stúkunni og stuðningsmenn verða við þeirri beiðn.
Valur
81. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtJónatan Ingi Jónsson
Valur
81. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
Valur
79. mín
Gult spjald

Hólmar Örn Eyjólfsson

Hólmar ekki hrifinn af því að Arnór Gauti fór utan í Frederik Schram og lyftir Blikanum upp og togar hann frá.
Breiðablik
79. mín
Gult spjald

Arnór Gauti Jónsson

Fer í Frederik Schram þegar markvörðurinn hélt á boltanum, við litla hrifningu Valsmanna.
79. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.
76. mín
Tryggvi Hrafn gerir vel, sendir varamanninn Ásgeir Helga á rassinn, og lætur vaða. Skotið þó kraftlítið og Anton Ari ver örugglega.
Breiðablik
74. mín
InnKristófer Ingi Kristinsson
ÚtTobias Thomsen
Breiðablik
74. mín
InnÁsgeir Helgi Orrason
ÚtÓli Valur Ómarsson
Valur
74. mín
Gult spjald

Lúkas Logi Heimisson

Breiðablik
74. mín
Gult spjald

Damir Muminovic

73. mín
Ágúst Orri með skot af löngu færi sem Frederik Schram ver vel.
Valur
71. mín
Bjarni MARK!

Bjarni Mark Antonsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)

Tryggvi tekur hornspyrnuna, boltinn í pakkann og Bjarni Mark nær að setja hausinn í þetta og stýrir boltanum í netið!
70. mín
Höskuldur nærri því að setja hann í eigið net!
Valsmenn fá nú hornspyrnu, boltinn í pakkann og Höskuldur skallar boltann rétt yfir eigið mark og boltinn í aðra hornspyrnu.
68. mín
Gestirnir fá hornspyrnu, en Bjarni Mark skallar frá.
Valur
67. mín
InnMarius Lundemo
ÚtAron Jóhannsson
Breiðablik
63. mín
InnDavíð Ingvarsson
ÚtGabríel Snær Hallsson
Valur
61. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtAlbin Skoglund
60. mín
Tryggvi Hrafn í afbragðsfæri, en klikkar. Flaggaður rangstæður í kjölfarið.
59. mín
Valsmenn hafa sótt í sig veðrið, fá nú hornspyrnu. Anton Ari kýlir spyrnuna frá, boltinn á Jónatan Inga sem tekur skot en boltinn í varnarmann.
53. mín
Breiðablik fær hornspyrnu, boltinn í teiginn en Hólmar Örn skallar frá.
51. mín
Áhorfendatölur
1376 manns mættir á N1-völlinn, stúkan hér á Hlíðarenda tekur þó aðeins 1201 manns.
50. mín
Óli Valur með stórhættulega fyrirgjöf fyrir mark Valsmanna, en enginn Bliki mættur á hættusvæðið.
46. mín
Valsmenn fá hornspyrnu, boltinn dettur fyrir Albin Skoglund fyrir utan teig sem á skot í varnarmann.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Engar breytingar í hálfleik.
45. mín
45. mín
Hálfleikur
Blikar leiða í hálfleik
+1

Vilhjálmur Alvar flautar til hálfleiks. Eftir mark Breiðabliks á fjórðu mínútu hefur leikurinn annars verið tíðindalítill.

Valsmenn ekki séð til sólar í þessum fyrri hálfleik. Hafa varla komist yfir miðju og hafa átt í stökustu vandræðum með að spila í gegnum háa pressu Breiðabliks.
45. mín
Einni mínútu bætt við
44. mín
Blikar fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, Höskuldur tekur, en spyrna hans yfir allan pakkann og aftur fyrir endalínu.
Valur
39. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

Kristinn Freyr fer harkalega í Óla Val og fær að líta fyrsta gula spjald leiksins. Dóra Árna var vægast sagt ekki skemmt yfir tæklingu Kristins.
38. mín
Blikar ógna!
Boltinn berst á Tobias Thomsen, sem lúrir einn á fjær. Hann tekur þrumuskot, en Frederik Schram ver frábærlega.
37. mín
Aftur fær Breiðablik horn, þeir taka það stutt. Höskuldur gefur fyrir en Orri Sigurður skallar frá.
34. mín
Breiðablik fær hornspyrnu, Höskuldur tekur en beint á Frederik Schram sem handsamar boltann.
27. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, boltinn á fjær á Damir sem skallar í varnarmann.

Sóknin lifir enn. Boltinn berst á Óla Val sem tekur skot, en boltinn rétt framhjá marki Valsmanna.
24. mín
Lítið að frétta síðustu mínútur hér á Hlíðarenda.
15. mín
Óli Valur sker inn frá vinstri, tekur lúmskt skot í nærhornið en Frederik Schram sér við honum og ver örugglega.
12. mín
Kópacabana halda stuðinu uppi í stúkunni, með Hilmar Jökul í broddi fylkingar.
10. mín
Valsmenn fá sína þriðju hornspyrnu í röð. Boltinn dettur fyrir Aron Jó sem tekur hælspyrnu í átt að marki, en Blikar koma boltanum frá.
9. mín
Albin Skoglund með skot sem fer í varnarmann og aftur fyrir endalínu, eftir frábæran undirbúning Aron Jó. Valsmenn fá horn!
Breiðablik
4. mín
BLIKAR EKKI LENGI AÐ ÞESSU!

Damir Muminovic (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)

Höskuldur tekur hornið stutt, fær boltann aftur og gefur fyrir. Þar rís Damir Muminovic manna hæst og stangar boltann í netið.

Draumabyrjun Breiðabliks!
3. mín
Breiðablik fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Veislan er hafin!
Tobias Thomsen sparkar boltanum beint út af í upphafsspyrnu leiksins.

Valsmenn leika í sínum klassísku rauðu treyjum, en Blikar klæðast alsvörtum varabúning sínum.
Fyrir leik
Biðin styttist!
Liðin ganga til vallar, stúkan svo gott sem full og sólin skín sínu fegursta, svona á þetta að vera!
Fyrir leik
Epic early win alert - Í þessum stórleik er Epic með Epic early win á bæði lið. Valur 2.00 og Breiðablik 2.90. Ef liðið kemst yfir þá er veðmálið unnið, óháð því hvernig leikurinn endar.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar frá 2-2 jafntefli við ÍA í síðustu umferð í Bestu-deildinni.
Inn í byrjunarliðið koma þeir Sigurður Egill Lárusson og Aron Jóhannsson í stað Andi Hoti og Jakobar Franz.

Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, gerir þrjár breytingar frá 1-1 jafntefli gegn Zrinjski Mostar í forkeppni Evrópudeildarinnar síðastliðinn fimmtudag.

Leikmennirnir þrír sem koma inn eru þeir, Óli Valur Ómarsson, Gabríel Snær Hallsson og Arnór Gauti Jónsson.

Fyrir leik
Markahæsti í Lengjudeildinni spáir í spilin
Adam Árni Róbertsson, skoraði þrennu gegn Leikni á föstudag og er nú jafnmarkahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar með 10 mörk, ásamt þeim Degi Orra Garðarssyni og Omar Diouck. Adam spáir í stórleik kvöldsins.

Valur 3 - 2 Breiðablik
,,Þetta verður geggjaður og opinn leikur, Jónatan Ingi verður til mikilla vandræða fyrir Blika og skorar og leggur upp. Blikar koma til baka og jafna 2-2 en Patrick Pedersen skorar sigurmarkið úr víti eftir að nafni minn Adam Páls keyrir inn í teig og sækir víti, hann verður reyndar brjálaður að fá ekki að taka það en Hólmar nær að róa hann niður."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Blikar fengu ekki frestun
Breiðablik gerði 1-1 jafntefli gegn Zrinjski Mostar frá Bosníu á útivelli síðastliðinn fimmtudag. Liðið óskaði, ásamt Víkingum sem léku Evrópuleik sama dag, eftir frestun á leik kvöldsins en var neitað.

Mynd: Breiðablik
Fyrir leik
Þriggja hesta kapphlaup
Toppbaráttan í Bestu-deildinni er heldur betur lífleg. Valur, Breiðablik og Víkingur bera af, en Valsmenn sitja á toppi deildarinnar með tveggja stiga forystu á Blika og Víkinga.

Sæti - Lið - Leikir - Mt. - Stig
1 - Valur - 17 - +21 - 34
2 - Víkingur R. - 17 - +11 - 32
3 - Breiðablik - 17 - +7 - 32
-------------------------------
4 - Fram - 17 - +4 - 25
5 - Stjarnan - 17 - +2 - 25
6 - Vestri - 17 - +1 - 23

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dramatík á Kópavogsvelli
Fyrir leik
Valsmenn gerðu jafntefli uppi á Skipaskaga
Fyrir leik
Stórleikja-sunnudagur!
Heilir og sælir góðir lesendur, verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Hlíðarenda. Hér í kvöld tekur Valur á móti Breiðablik í sannkölluðum toppslag í Bestu-deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.