Fotbolti.net
Besta deildin
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 4
Stjarnan
Stjarnan
0 - 117' Jóhann Árni Gunnarsson0 - 227' Örvar Eggertsson52' Þorri Mar ÞórissonGylfi Þór Sigurðsson (víti) 53'1 - 21 - 375' Andri Rúnar Bjarnason1 - 482' Guðmundur Baldvin NökkvasonGylfi Þór Sigurðsson (víti) 86'2 - 4
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Stjarnan fer með sigur hér í Víkinni
Gunnar Oddur flautar til leikksloka. Stjarnan vinnur hér 4-2 í mjög
furðulegum fótboltaleik.

Takk fyrir mig í kvöld.
Stjarnan
94. mín
InnAdolf Daði Birgisson
ÚtBenedikt V. Warén
92. mín
Víkingur fær hornspyrnu
90. mín
Uppbótartíminn hér í Víkinni er að lágmarki fjórar mínútur.
89. mín
Dauðafæri hjá Víkingum!1
Óskar Borgþórs fær boltann og swtur boltann í stöngina. Valdimar nær til boltans og nær ekki að setja boltann á markið.
Víkingur R.
86. mín
Mark úr víti!

Gylfi Þór Sigurðsson

Gylfi setur boltann í hægra hornið. Árni Snær skutlar sér ekki einusinni.

2-4 !
Stjarnan
86. mín
Gult spjald

Árni Snær Ólafsson

86. mín
VÍKINGUR FÆR VÍTI!
Stjarnan
85. mín
Gult spjald

Alex Þór Hauksson

Alex Þór fær spjald hér nýkomin inn á.
Stjarnan
84. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtGuðmundur Baldvin Nökkvason
Stjarnan
84. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtAndri Rúnar Bjarnason
Víkingur R.
83. mín
InnPablo Oshan Punyed Dubon
ÚtDaníel Hafsteinsson
Stjarnan
82. mín
Stjarnan að ganga frá þessu endanlega!!

Guðmundur Baldvin Nökkvason (stoðsending: Guðmundur Kristjánsson)

Samúel Kári tekur langt innkast frá vinstri inn á teiginn sem Karl Friðleifur nær ekki að skalla í burtu, Gummi Kri nær að skalla boltann áfram á Guðmund Baldvin sem skorar með hálfgerðum hjólhest.

Game over.
Stjarnan
81. mín
Gult spjald

Samúel Kári Friðjónsson

Of lengi að framkvæma innkast.
Stjarnan
78. mín
Gult spjald

Guðmundur Baldvin Nökkvason

Stjarnan
75. mín
HVAÐ VAR ÞETTA HJÁ VÍKINGUM??

Andri Rúnar Bjarnason

Karl Friðleifur fær boltann og ætlar senda til baka á Viktor Örlyg en Andri Rúnar kemst í boltann, leikur á Pálma og setur svo boltann í netið.

Núna held ég að þetta sé komið hjá Stjörnunni.
Víkingur R.
74. mín
InnValdimar Þór Ingimundarson
ÚtPeter Oliver Ekroth
Stjarnan
72. mín
Gult spjald

Benedikt V. Warén

Tekur Gylfa niður.
67. mín
Gylfi Þór setur frábæra pressu á Árna Snæ og kemst í útsparkið upp völlinn hjá Árna. Gylfi var nálægt því að komast í þennan bolta.
Víkingur R.
64. mín
Gult spjald

Tarik Ibrahimagic

Gummi Kri með frábæran sprett sem endar með því að Tarik tekur hann niður.

Tarik allt annað en sáttur með liðsfélagana sína þarna að hleypa Gumma í þennan sprett.
Víkingur R.
59. mín
Gult spjald

Aron Baldvin Þórðarson

Aron Baldvin látið einhver orð flakka.
Stjarnan
59. mín
InnSigurður Gunnar Jónsson
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
Víkingur R.
57. mín
InnStígur Diljan Þórðarson
ÚtErlingur Agnarsson
Víkingur R.
57. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtAtli Þór Jónasson
55. mín
ATLI ÞÓR HVERNIG SKORARU EKKI ÞARNA???
Gylfi Þór teiknar boltann inn á Atla sem er sloppinn aleinn í gegn en skýtur beint á Árna, fær boltann aftur og lætur Árna aftur verja frá sér.

Sjálfstraustið lítið hjá Atla og það sást greinilega þarna.
Stjarnan
54. mín
Gult spjald

Andri Rúnar Bjarnason

Víkingur R.
53. mín
Við höfum leik!!

Gylfi Þór Sigurðsson

Gylfi Þór er öruggur á punktinum.

Setur boltann í vinstra hornið.
Stjarnan
52. mín
Rautt spjald

Þorri Mar Þórisson

Viktor Örlygur fær boltann innfyrir og Þorri tekur hann niður.

Þorri aftasti maður og tekur hann niður, það þýðir beint rautt.
52. mín
VÍKINGAR FÁ VÍTIIII
48. mín
Óskar fær boltann fyrir utan og á skot sem fer framhjá.
48. mín
Erlingur með góðan bolta inn á teiginn á Atla sem nær ekki að koma almennilegu skoti á markið.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farin af stað.
Víkingur R.
46. mín
InnTarik Ibrahimagic
ÚtHelgi Guðjónsson
45. mín
Hálfleikur
Stjarnan leiðir inn í hálfleik
Gunnar Oddur flautar til hálfleiks. Stjarnan fer með tveggja marka forskot inn í hálfleikinn.

Tökum okkur korter.
45. mín
GYLFI ÞÓR!!
Gylfi vinnur boltann og kemst í gott færi en setur boltann yfir.
45. mín
Gylfi Þór fær boltann við D bogann og á skot sem fer rétt framhjá.

Þrjár mínútur í uppbótartíma.
42. mín
Karl Friðleifur með frábæran bolta inn á Atla sem hittir ekki boltann.

Atli átt erfitt uppdráttar í þessum fyrri hálfleik.
Stjarnan
39. mín
Gult spjald

Örvar Eggertsson

Brotlegur á miðjum velli.
38. mín
Daníel kemur boltanum á Óskar sem reynir sdkot en hittir ekki boltann.
31. mín
Víkingur fær hornspyrnu
Karl Friðleifur með góðan bolta inn á teiginn og Stjörnumenn koma boltanum afturfyrir.
Stjarnan
27. mín
STJÖRNUMENN BÆTA VIÐ!1

Örvar Eggertsson (stoðsending: Benedikt V. Warén)

Benedikt Warén fær boltann við miðjulínuna og á frábæran bolta inn fyrir á Örvar Eggertsson sem getur ekki annað en skorað.

Stjörnumenn komnir í góða stöðu hér í Víkinni! Evrópuþynnka í Víkingum?
22. mín
Stjarnan skorar en dæmt af
Gummi Kri skallar boltamn í netið eftir hornspyrnu frá hægri en rangstaða dæmd.
20. mín
Víkingarnir nálægt því að jafna!
Eftir þunga sókn Víkinga endar boltinn úti vinstra megin hjá Helga Guðjóns sem lyftir boltanum inn á Erling sem nær skalla en boltinn beint á Árna Snæ.
Stjarnan
17. mín
SJÖRNUMENN ER KOMNIR YFIR!!

Jóhann Árni Gunnarsson (stoðsending: Örvar Eggertsson)

Stjarnan tekur innkast frá hægri. Þorri á fyrirgjöfina inn á teignn sýndist mér. Örvar Eggertsson skallar boltann áfram inn á Jóhann Árna sem klárar framhjá Pálma í marki Víkinga.

Rangstöðulykt af þessu?

0-1 Stjarnan
14. mín
Víkingar vilja vítaspyrnu
Pálmi Rafn fær boltann og á frábæran bolta upp hægra megin á Karl, sem kemur með boltann fyrir, boltinn fer af Stjörnumanni og í burtu.

Sölvi Geir og bekkur Víkinga tryllist og fara upp að ÞÞÞ og kalla líklega eftir hendi víti en Gunnar Oddur dæmir ekkert.
13. mín
Stjarnan fær hornspyrnu
Benedikt reynir fyrirgjöf sem fer af Karl Friðleif.
12. mín
GYLFI ÞÓR!!
Viktor Örlygur gerir rosalega vel inn á vítateig Stjörnunnar og nær að koma boltanum út á Gylfa sem á skot sem fer rétt framhjá.

Þetta var heldur betur færii.
8. mín
Víkingarnir hafa verið að hóta fyrsta markinu
Núna fær Gylfi boltann og tekur hann skemmtilega til vinstri og á skot sem er þægilegt fyrir Árna í marki Stjörnunnar.
6. mín
Óskar Borgþórs ætlar sér að skora í kvöld.

Fær boltann aftur og kemst í álitlega stöðu og á skot sem Árni ver.
4. mín
Óskar Borgþórs
Fær boltann út til vinstri og fer inn á völlinn, lætur vaða og Árni Snær þarf að hafa fyrir að verja þennan.
1. mín
Pálmi Rafn fær boltann og spyrnir boltanum upp völlinn. Örvar Eggertsson er alltof seinn og fer beint í Pálma.

Þetta hefði alltaf verið gult ef þetta hefði ekki komið á fyrstu mínútu leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar Oddur flautar leikinn á. Stjarnan byrjar með boltann.

Góða skemmtun.
Fyrir leik
Styttist
Gunnar Oddur leiðir liðin til leiks, áhorfendur standa á vfætiur og klappa og vallarþulur heimamanna er byrjaður að kynna liðin.
Fyrir leik
Stjarnan eru ekki óskamótherji liða sem eru á milli Evrópuleikja og gætu orðið Víkingum óþægur ljár í þúfu í kvöld. Stjörnu sigur er á stuðlinum 4.75 á Epic
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn FH í síðustu umferð. Róbert Orri Þorkelsson kemur inn fyrir Svein Gísla Þorkelsson. Atli Þór Jónasson kemur inn fyrir Nikolaj Hansen. Erlingur Agnarsson kemur þá í liðið fyrir Tarik brahimagic

Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar geirir tvær breytingar á sínu liði frá jafnteflinu gegn Fram í síðustu umferð. Þorri Mar Þórisson, Örvar Eggertsson koma báðir inn í lið Stjörnunnar. Alex Þór Hauksson og Adolf Daði Birgisson fá sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Markahæsti í Lengjudeildinni spáir í spilin
Adam Árni Róbertsson, skoraði þrennu gegn Leikni á föstudag og er nú jafnmarkahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar með 10 mörk, ásamt þeim Degi Orra Garðarssyni og Omar Diouck. Adam spáir í stórleik kvöldsins

Víkingur 3 - 0 Stjarnan (19:15 í dag)
Víkingar taka þennan alltaf, Gylfi er komin í einhvern ham og mun þræða hann trekk í trekk inn á fremstu þrjá, Hansen setur tvö og Caulker fær hann svo leiðinlega í hnéð og inn.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingar eru í miðju einvígi gegn Bröndby.
Víkingar sem unnu stórkostlegan 3-0 sigur á Bröndby á fimmtudag báðu um frestun ásamt Breiðabliki en fengu NEI frá KSÍ . Seinni leikir liðanna fara fram fimmudaginn næstkomandi.

Fyrir leik
Kíkjum á stöðuna!
Víkingur er í þessu þriggja hesta titilkapphlaupi með Val og Breiðablik. Víkingar eru í öðru sæti deildarinnar með 32.stig.

Stjarnan siglir lignan sjó og er liðið um miðja deild eða í 6.sæti deildarinnar með 25.stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarinn
Gunnar Oddur Hafliðason flautar leikinn hér í kvöld. Honum tl aðstoðar verða þeir Guðmundur Ingi Bjarnason og Patrik Freyr Guðmundsson.

Fjórði dómari er Þórður Þorsteinsson Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hamingjan heilsar á Sunnudegi
Góðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur á Víkingsvöll þar sem Víkingur og Stjarnan mætast í Bestu deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.