Arsenal hefur áhuga á Rogers - Elliott færist nær Leipzig - Forest hefur áhuga á Carmona og Cash
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Breiðablik
LL 2
1
Virtus
Lengjudeild kvenna
Fylkir
LL 1
1
Keflavík
Besta-deild kvenna
Stjarnan
LL 2
2
FH
Besta-deild kvenna
Þór/KA
LL 4
0
FHL
Lengjudeild kvenna
ÍBV
LL 4
1
HK
Þór/KA
4
0
FHL
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir '2 1-0
Karen María Sigurgeirsdóttir '19 2-0
Sandra María Jessen '53 3-0
Sandra María Jessen '70 , misnotað víti 3-0
Bríet Fjóla Bjarnadóttir '92 4-0
21.08.2025  -  18:00
Boginn
Besta-deild kvenna
Dómari: Sveinn Arnarsson
Áhorfendur: 161
Byrjunarlið:
20. Jessica Grace Berlin (m)
2. Angela Mary Helgadóttir ('87)
8. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('87)
10. Sandra María Jessen (f) ('82)
13. Sonja Björg Sigurðardóttir ('73)
14. Margrét Árnadóttir
18. Bríet Jóhannsdóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('73)
24. Hulda Björg Hannesdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
3. Kolfinna Eik Elínardóttir
4. Ellie Rose Moreno ('73)
7. Amalía Árnadóttir ('73)
15. Krista Dís Kristinsdóttir
17. Emelía Ósk Kruger ('87)
21. Ísey Ragnarsdóttir
23. Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('82)
27. Henríetta Ágústsdóttir ('87)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Iðunn Elfa Bolladóttir
Sigurbjörn Bjarnason
Aron Birkir Stefánsson
Hildur Anna Birgisdóttir
Jóhann Hilmar Hreiðarsson
Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir
Eva S. Dolina-Sokolowska

Gul spjöld:
Margrét Árnadóttir ('60)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Öruggur sigur heimamanna.
92. mín MARK!
Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þór/KA)
Aukaspyrna Rétt utan teigs sem Henríetta tekur á fjær. Boltinn er skallaður út úr teignum en þar bíður Bríet sem hamrar boltann upp í hornið fjær og gulltryggir 4 - 0 sigur
92. mín Gult spjald: Calliste Brookshire (FHL)
Peysutog
90. mín
FHL Þessa stundina virðist FHL líklegra liðið til að setja næsta mark. Miklu grimmari
89. mín
Álitleg sókn Calliste sækir horn vinstra megin og tekur sjálf og setur boltann í hliðarnetið
87. mín
Inn:Henríetta Ágústsdóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Þór/KA skiptir Tvöföld skipting hjá heimamönnum
87. mín
Inn:Emelía Ósk Kruger (Þór/KA) Út:Angela Mary Helgadóttir (Þór/KA)
Þór/KA skiptir Tvöföld skipting hjá heimamönnum
86. mín
Aukaspyrna Aukaspyrna rétt utan teigs sem Taylor tekur en beint á Jessicu.
86. mín
Inn:Christa Björg Andrésdóttir (FHL) Út:Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir (FHL)
FHL skiptir
86. mín
Inn:Íris Vala Ragnarsdóttir (FHL) Út:Katrín Edda Jónsdóttir (FHL)
FHL skiptir
84. mín
Aukaspyrna Þór/KA fær aukaspyrnu úti við hliðarlínu hægra megin sem Hulda Björg tekur á fjær en skallað burtu.
82. mín
Inn:Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þór/KA) Út:Sandra María Jessen (Þór/KA)
Fyrirliðinn fer út af Þór/KA gerir þriðju skiptinguna.
81. mín
Hornið Karen með enn eitt hornið og á fjær eins og áður. FHL nær að verjast þessu eins og áður þó svo að Bríet hafi náð að setja höfuðið í boltann
80. mín
Horn Amalía kemst upp hægra megin og vinnur horn.
78. mín
Peysutog og færi Bæði Sandra og Karen fá farþega á peysurnar en ekkert dæmt og FHL brunar upp og fær í kjölfarið ágæta stöðu sem þær nýta vel og Mikaela nær góðu skoti sem Jessica ver í horn.
76. mín
hálffæri Aftur fer Ellie illa með Katrínu og kemst upp að endalínu og leggur boltann fyrir en Embla enn einu sinni vel vakandi og hirðir boltann
74. mín
Dauðafæri Ellie er varla komin inn á þegar hún er send í gegn og fer framhjá Katrínu sem er síðasti varnarmaðurinn og bara markmaðurinn eftir en skotið frekar laust og Embla ver.
73. mín
Inn:Amalía Árnadóttir (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Skiptingar hjá Þór/KA
73. mín
Inn:Ellie Rose Moreno (Þór/KA) Út:Sonja Björg Sigurðardóttir (Þór/KA)
Skiptingar hjá Þór/KA
71. mín
Dauðafæri FHL brunaði upp og Taylor fékk dauðafæri sem Jessica ver. Fengu horn og upp úr því skoruðu FHL en voru dæmdar rangstæðar.
70. mín Misnotað víti!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Varið víti Sandra tók sjálf vítið sem hún fékk og á frekar laust skot í vinstra hornið sem Embla ver auðveldlega. Vel gert hjá Emblu en að sama skapi illa tekið víti.
69. mín
Hornið Hornið kom á fjær og Þór/KA nær honum. Hulda Ósk brunar upp völlin þó Sonja liggi eftir, leggur hann til vinstri á Margréti sem sendir fyrir á Söndru sem fær víti
68. mín
Horn Taylor með boltann inni í teig á móti Huldu Björgu og fær horn. Hornið tekið á fjær og endar í innkasti sem endar svo í öðru horni en nú vinstra megin.
67. mín
Skot Hulda Ósk leggur boltann út á Karen sem á skot yfir markið
66. mín
Hornið Karen með hornið á fjær en Embla slær boltann út í teig og Sandra nær honum en missir hann í útspark.
66. mín
Horn Hulda Ósk með boltann uppi í hægra horninu og vinnur horn.
63. mín
FHL hálffæri AFtur fór Björg upp hægri kantinn og aftur með góða fyrirgjöf en varnarmaður Þór/KA nær að komast fyrir sendinguna og koma boltanum í burtu.
62. mín
Dauðafæri Björg kemst upp hægri kantinn og á góða fyrirgjöf sem Taylor nær að stýra í átt að marki en naumlega framhjá.
62. mín
Gott færi Embla tekur stutt útspark sem Sandra kemst inn í og á skot en Embla ver.
60. mín Gult spjald: Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Peysutog Margrét stoppar sókn FHL
59. mín
Hornið Hornið svífur yfir alla og endar í útsparki
58. mín
Færi Karen fær boltann inni í teig og á gott skot á markið sem Embla ver í horn.
57. mín
Aukaspyrna FHL fær aukaspyrnu vinstra megin við miðlínu og Candela setur boltann inn í teig þar sem Alexia rétt missir af honum.
56. mín
Hornið Karen með hornið sem verður ekkert úr en Þór/KA heldur pressu eftir hornið sem endar með því að boltinn fer í útspark.
55. mín
Horn Hulda Ósk lendir í kapphlaupi við Rósey sem bjargar í horn.
53. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
3 - 0, geggjuð fyrirgjöf Hulda Ósk fær boltann upp hægri vænginn og stingur Katrínu, vinstri bakvörð FHL af og á frábæra fyrirgjöf beint á höfuð Söndru Maríu sem stýrir boltanum af öryggi framhjá Emblu.
51. mín
Pressa gestanna Alexia og Taylor vinna boltann fyrir utan teig og ná að halda pressu á Þór/KA. Að lokum kemur fyrigjöf frá hægri á Taylor sem nær ekki að stýra boltanum með höfðinu þannig að Jessica á í litlum vandræðum með að verja skallann.
50. mín
Skot Margrét vinnur boltann utan teigs, leggur á Söndru sem sendir hann til baka. Margrét á skot en beint á Emblu.
46. mín
Sömu lið Það virðist engin skipting hafa átt sér stað í hálfleiknum. En gaman verður að sjá hverju hálfleiksræðurnar skila.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Jæja þá hefst seinni hálfleikur og eins og lög gera ráð fyrir hafa liðin haft skipti á vallarhelmingum.
45. mín
Hálfleikur
2 - 0 í hálfleik Heimastúlkur eru tveimur mörkum yfir í hálfleik og er það mjög sanngjarnt. FHL áttu þó sín augnablik í seinni hluta hálfleiksins en Þór/KA stóð það allt af sér og Jessica hirti þessa fáu bolta sem láku í gegnum vörnina.
44. mín
Horn FHL vinnur horn hægra megin þegar Bríet setur hann aftur fyrir. Gott horn en Sonja skallar burt og Þór/KA brunar í sókn sem rennur út í sandinn.
43. mín
Skot Eftir fínt spil FHL fær Alexia boltann utan teigsins og á gott skot sem Jessica ver vel og heldur boltanum.
42. mín
Sókn Sandra fær boltann frá Bríet upp vinstri kantinn og leggur hann út í teiginn á Sonju en Sonja nær ekki til boltans.
38. mín
Horn Hulda Björg ætlar að vinna útspark en spyrnir boltanum í Calliste og fær hann í sig aftur áður en boltinn fer út af. Hún tekur sjálf hornið, fær boltann aftur og heldur pressunni með góðri fyrirgjöf. Þór/KA nær að losa aðeins um pressu með að koma boltanum í innkast.
37. mín
Hornið Boltanum komið burtu af varnarmönnum og Þór/KA hefur nýja sókn
37. mín
Horn EFtir klafs úti hægra megin fær Þór/KA horn.
35. mín
Hálffæri Sandra leikur sér úti vinstra megin og nær góðri fyrirgjöf en örlítið of há fyrir Sonju sem nær ekki að stýra boltanum á markið.
34. mín
Sókn FHL brunar í kjölfarið upp í sókn sem endar með skoti framhjá hjá Calliste. Það hefur heldur betur lifnað yfir leiknum og þá sérstaklega gestunum.
33. mín
Hornið Hornið breytist í skyndisókn hjá Þór/KA sem endar með dapri sendingu Sonju inn fyrir á Söndru sem FHL á ekki í neinum vandræðum með að verjast.
32. mín
DAUÐAFÆRI Taylor fær boltann í teig Þór/KA og er allt í einu ein á móti Jessicu sem kemur vel út og ver, boltinn skrúfast upp í loftið og bjargað í horn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Efnileg sókn Margrét á snilldarsendingu á Bríeti sem kemur boltanum fyrir á Söndru en Alexia nær að bjarga áður en Sandra kemst í skotið.
29. mín Gult spjald: Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir (FHL)
Aukaspyrna Sandra fer enn einu sinni upp vinstri kantinn framhjá Hrafnhildi sem togar Söndru niður rétt fyrir utan teig. Hulda Björg tekur skot beint í varnarvegginn og ekkert verður úr frekar góðri stöðu.
28. mín
Hröð sókn Í kjölfar hornsins spilar Þór/KA sig í gegn og Sandra kemst upp að endalínu og leggur boltann út en Embla er vel vakandi og hirðir boltann af hættusvæðinu.
26. mín
Horn Taylor nær að setja pressu á Huldu Björg og vinnur innkast og svo í kjölfarið horn. Hornið er tekið stutt og Calliste kemur boltanum inn í teig en Jessica hirðir hann.
23. mín
Fyrsti fjórðungur Það er óhætt að segja að Þór/KA hafi stjórnað leiknum þennan fyrsta fjórðung.
23. mín
FHL aftur Sama og áðan, Calliste reynir sendingu inn á teig Þór/KA en Taylor misles sendinguna og missir af boltanum.
22. mín
FHL sókn Calliste ber boltann upp vallarhelming Þór/KA og á stungusendingu en þar vantar hlaupið.
19. mín MARK!
Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
2 - 0 Langskot Sonja fær boltann inni í teig FHL og leikur aðeins út og nær skoti á markið sem Embla ver. Þór/KA vinnur strax boltann og Karen fær hann 3 - 4 metra utan teigs og setur hann upp í fjærhornið. Glæsilegt mark.
17. mín
Hornið Ekkert verður úr horninu
16. mín
Dauðafæri Sandra enn einu sinni upp vinstri kantinn og alveg upp að endalínu, leggur boltann út á Huldu Ósk sem hamrar boltann í varnarmann og yfir. Horn.
15. mín
Markmaðurinn - Embla Fönn Hef komist að því að markmaðurinn heiri Embla Fönn - a.m.k. þar til annað kemur í ljós
14. mín
Gott færi Sonja fær óvænt boltann eftir kiks frá varnarmanni en skotið er laust og beint á markmanninn
12. mín
Hröð sókn Sandra fær boltann við vinstri hliðarlínu og neglir honum yfir á Huldu Ósk sem nær ekki að gera sér eins mikið úr sendingunni og hún hefði getað og fær innkast. ´Hún fær aftur boltann úr innkastinu og kemst þá í gegn en varnarmenn hreinsa frá.
10. mín
Höfuðmeiðsl Björg í FHL fær boltann í höfuðið og leikurinn er stöðvaður. Kemur þá ekki bara Rósey fyrirliði sem er skráð fyrst á skýrslu eins og væri markvörður. Hún er alls ekki í markinu. Engin er hins vegar með (M) á skýrslu þannig að ég bíð eftir að sjá númer markmannsins.
8. mín
Hálffæri Hulda Björg með langa sendingu á Margréti sem nær ekki að taka boltann niður
7. mín
Horn Eftir hraða sókn upp vinstri kant nær Hrafnhildur að pota boltanum út af áður en Sandra nær fyrirgjöf. Hornið kemur á fjær og skallað yfir.
5. mín
Stungusending Gestirnir slegnir út af laginu eftir markið og eru mjög óöruggar. Þór/KA vinna boltann ofarlega og Sandra er send í gegn en Rósey snögg út og er á undan í boltann.
2. mín MARK!
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir (Þór/KA)
Hornið og mark 1 - 0 Gott horn á fjærstöngina og þaðan berst boltinn til Kimberley sem setur boltann í slá og niður. Aðstoðardómari flaggar mark.
1. mín
Fyrsta færið Þór/KA sækir upp vinstra megin, Sandra kemur boltanum fyrir en heimastúlkur koma sér ekki í almennilegt færi. Fá þó horn frá hægri
1. mín
Byrjað Leikurinn er hafinn. Þór/KA leikur í norður en FHL í átt að miðbæ Akureyrar.
Fyrir leik
Leikurinn er að bresta á Liðin eru komin inn á og nokkuð vel mætt í Bogann.
Fyrir leik
Hvernig sem á það er litið þá eru heimastúlkur sterkari á pappír en gestirnir að austan.
-1.5 á Þór/Ka gefur stuðulinn 1.82
Fyrir leik
Síðustu leikir Eins og áður sagði unnu FHL síðasta leik sinn og höfðu þar á undan tapað öllum.
Þór/KA þarf nauðsynlega á sigri að halda til að snúa aðeins ofan af döpru gengi að undanförnu. Þær hafa aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum er þær tóku á móti Víkingi 21. júní og settu fjögur mörk á Fossvogsliðið en fengu eitt á sig á móti. 4 - 1 sigur 21. júní, fyrir akkurat 2 mánuðum. Þannig að það er aldeilis kominn tími á sigur hjá Akureyringum.
Fyrir leik
Markaskorar liðanna Hjá heimamönnum er Sandra María markahæst með 9 mörk og vill örugglega bæta í í dag til að koma sér upp til Berglindar Blika sem er með þremur mörkum meira. Sonja og Karen koma svo næstar með 3 mörk hvor.

Hjá gestunum að austan er Taylor Marie með 2 mörk og svo eru 6 sem hafa skorað eitt mark.

Það segir sitt um hve erfitt þetta sumar hefur verið fyrir FHL að Sandra María er búin að skora marki meira en allt lið andstæðinganna.
Fyrir leik
Staða liðanna Þór/KA er í 5. sæti og er í fjögurra til fimm liða baráttu um 2 sæti í efri hlutanum. Það er því mikið undir hjá heimastúlkum að sigra í dag og festa sig betur fyrir ofan "línuna"
Fyrir leik
Staða liðanna Staða liðanna er ólík í deildinni. FHL unnu sinn fyrsta leik í sumar í síðustu umferð er Fram var lagt að velli fyrir austan. FHL er fyrir vikið neðst í deildinni með 3 stig, 10 stigum á eftir Víking sem vermir næst neðsta sætið.
Byrjunarlið:
4. Rósey Björgvinsdóttir (f)
7. Candela Gonzalez Domingo
8. Katrín Edda Jónsdóttir ('86)
12. Embla Fönn Jónsdóttir
13. Taylor Marie Hamlett
14. Alexia Marin Czerwien
15. Björg Gunnlaugsdóttir
16. Mikaela Nótt Pétursdóttir
21. Isabelle Rose Gilmore
22. Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir ('86)
24. Calliste Brookshire
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
1. Keelan Terrell
3. Íris Vala Ragnarsdóttir ('86)
5. Diljá Rögn Erlingsdóttir
11. Christa Björg Andrésdóttir ('86)
17. Viktoría Einarsdóttir
23. Bjarndís Diljá Birgisdóttir
25. Ólína Helga Sigþórsdóttir
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Ljubisa Radovanovic (Þ)
Björgvin Karl Gunnarsson (Þ)
Anton Helgi Loftsson
Ólafur Sigfús Björnsson

Gul spjöld:
Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir ('29)
Calliste Brookshire ('92)

Rauð spjöld: