Jackson nálgast Bayern - Mainoo gæti farið frá Man Utd - Como hafnaði tilboði Tottenham í Paz
Valur
0
0
Afturelding
26.08.2025  -  19:15
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta-deild karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Hvernig koma Valsarar til baka eftir tap í Laugardalnum? Eins og flestir vita léku Valsarar bikarúrslitaleik síðasta föstudag þar sem lið tapaði 0-1 gegn Vestra, það verður rosalega áhugavert að sjá hvernig Valur kemur til baka eftir þetta svekkjandi tap á föstudag.

Liðið verður án Patrick Pedersen sem sleit hásin í leiknum og verður hann ekki meira með á tímabilinu og það er gríðarlegt áfall fyrir Val.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spámaðurinn Reynir Haraldsson, leikmaður ÍR, spáir í leikina að þessu sinni. Umferðina. Reynir gékk til liðs við ÍR frá Fjölni í síðasta glugga.

Valur 2 - 3 Afturelding 19:15 í kvöld.
Djarfur. Margir að spá Aftureldingu niður. Munurinn á Aftureldingu og öðrum liðum sem hafa verið í fallbaráttu er að Afturelding spilar ekki tilviljunarkenndan fótbolta og það mun koma að því að þeir vinni leik. Valsmenn eru hinsvegar staðráðnir í að snúa við genginu eftir tapið í Eyjum en Aron Jó verður alltof reiður á miðsvæðinu. Aron Elí fer alltof hátt upp eftir leik og setur inn góðan post á LinkedIn sem ég mun henda á eitt gott ‚celebrate‘.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikurinn fer ekki fram án dómara Ívar Orri Kristjánsson fær það verkefni að flauta leikinn hér í dag. Honum til aðstoðar verða þeir Guðmundur Ingi Bjarnason og Antoníus Bjarki Halldórsson. Varadómari í kvöld verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kíkjum á stöðuna Valur er á toppi bestu deildarinnar með 37.stig þremur stigum á undan Víking Reykjavík sem situr í öðru sæti deildarinnar. Afturelding sem var um miðja deild í þægilegum málum er komið í fallsæti með 21.stig. svo það má segja að bæði liðin þurfi nauðsynlega á þremur stigum að halda í baráttunum sem liðin eru í.

Valur tapaði í Vestmannaeyjum 4-1 í síðustu umferð á meðan Afturelding gerði 3-3 jafntefli við KA.

Mynd: Raggi Óla


Frá leik liðanna á síðasta tímabili.
Fyrir leik
Besta deildin hefur verið aldrei verið svona skemmtileg Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur á N1-völlinn á Hlíðarenda þar sem Valur og Afurelding mætast í Bestu deild karla.

Flautað verður til leiks klukkan 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: