Liverpool fær samkeppni frá Real Madrid - Barcelona á eftir Haaland - Man Utd býður Mainoo í skiptum fyrir Valverde
Besta-deild karla - Efri hluti
Víkingur R.
92' 2
1
Fram
Besta-deild karla - Efri hluti
Stjarnan
89' 0
0
FH
Besta-deild karla - Neðri hluti
KA
LL 4
2
KR
Besta-deild karla - Neðri hluti
ÍBV
LL 1
1
Afturelding
Víkingur R.
2
1
Fram
Helgi Guðjónsson '55 , víti 1-0
1-1 Jakob Byström '70
Gylfi Þór Sigurðsson '79 2-1
Rúnar Kristinsson '87
21.09.2025  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta-deild karla - Efri hluti
Aðstæður: Grátt yfir þessu og vægur úði
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason ('78)
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('78)
23. Nikolaj Hansen ('83)
24. Davíð Örn Atlason ('46)
25. Valdimar Þór Ingimundarson
32. Gylfi Þór Sigurðsson
- Meðalaldur 30 ár

Varamenn:
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
7. Erlingur Agnarsson ('78)
15. Róbert Orri Þorkelsson ('46)
17. Atli Þór Jónasson
20. Tarik Ibrahimagic ('78)
27. Matthías Vilhjálmsson ('83)
33. Haraldur Ágúst Brynjarsson
36. Þorri Ingólfsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson
Brynjar Björn Gunnarsson

Gul spjöld:
Davíð Örn Atlason ('41)
Oliver Ekroth ('45)
Ingvar Jónsson ('92)

Rauð spjöld:
92. mín Gult spjald: Ingvar Jónsson (Víkingur R.)
Fær gult fyrir leiktöf.
90. mín
Fimm mínútum bætt við! Framarar í leit að jöfnunarmarki.
90. mín
Rúnar fer ekki í búningsklefann. Þess í stað stendur hann fyrir aftan mark Framara og fylgist grannt með gangi mála.
87. mín Rautt spjald: Rúnar Kristinsson (Fram)
Rúnar fær það rauða! Lætur einhver orð falla við Aðalbjörn Heiðar, fjórða dómara leiksins, og fær að líta rauða kortið!
86. mín Gult spjald: Rúnar Kristinsson (Fram)
Rúnar spjaldaður fyrir mótmæli.
85. mín Gult spjald: Alex Freyr Elísson (Fram)
Fer harkalega í Helga Guðjóns og uppsker það gula.
84. mín
Mikil harka í víkinni þessa stundina!
83. mín
Inn:Kristófer Konráðsson (Fram) Út:Freyr Sigurðsson (Fram)
83. mín
Inn:Alex Freyr Elísson (Fram) Út:Már Ægisson (Fram)
83. mín
Inn:Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.) Út:Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
79. mín MARK!
Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Daníel Hafsteinsson
GYLFI KEMUR VÍKINGI YFIR! Boltinn á Daníel Hafsteins sem tíar boltann upp fyrir Gylfa sem kemur á ferðinni og hamrar boltanum í netið.

78. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
78. mín
Inn:Tarik Ibrahimagic (Víkingur R.) Út:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
78. mín
Leikurinn hefur opnast verulega við jöfnunarmark Framara.
76. mín
Chopart með stórhættulega fyrirgjöf fyrir mark Víkings en Ingvar grípur vel inn í.
70. mín MARK!
Jakob Byström (Fram)
EINS OG ÞRUMA ÚR HEIÐSKÍRU LOFTI Varamaðurinn jafnar metin úr fyrsta færi Framara í seinni hálfleik.

Oliver Ekroth ætlar sér að hreinsa með skalla en gefur beint á Byström sem klárar frábærlega með viðstöðulausu skoti. Allt jafnt!
67. mín
Nákvæmlega ekkert búið að gerast það sem af er síðari hálfleiks fyrir utan vítafíaskóið.
66. mín
63. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Magnús Þórðarson (Fram)
55. mín Mark úr víti!
Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
NÚ SKORAR HANN! Öruggur og þrumar boltanum í hornið. Skorar hér gegn uppeldisklúbbnum og brýtur ísinn.
54. mín Gult spjald: Magnús Þórðarson (Fram)
Fer í bókina fyrir mótmæli.
54. mín
VIKTOR VER EN VÍTIÐ VERÐUR ENDURTEKIÐ! Viktor Freyr farinn af línunni þegar hann ver vítið og Helgi fær annan séns.

Rétt metið hjá dómurunum en Framarar eru verulega ósáttir!
52. mín
Víkingar fá vítaspyrnu! Boltinn á Karl Friðleif í teignum, Karl sparkar bara í Frey Sigurðsson og fellur við. En Sigurður Hjörtur bendir engu að síður á punktinn, kolrangur dómur!
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Gestirnir hefja síðari hálfleikinn.
46. mín
Inn:Róbert Orri Þorkelsson (Víkingur R.) Út:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Ein breyting í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Kærkomið hlé Þessi fyrri hálfleikur hefur ekki verið mikil skemmtun. Vonandi verður síðari hálfleikurinn betri.

Víkingur haldið betur í boltann en Framarar komu sér betur inn í þetta þegar leið á hálfleikinn.
45. mín
+2

Fred lætur vaða úr þröngri stöðu en boltinn langt framhjá.
45. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
+2

Brýtur á Fred við vítateigshliðina og uppsker réttilega gult spjald að launum.
45. mín
Einni mínútu bætt við.
44. mín
Boltinn dettur fyrir Israel Garcia rétt fyrir utan teig Víkings en hann hamrar boltanum hátt yfir markið.
41. mín
Fram fær hornspyrnu en Víkingar skalla frá.
41. mín Gult spjald: Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Fer hressilega í Fred og fær að líta fyrsta gula spjald leiksins.
39. mín
Heimamenn fá hornspyrnu, Gylfi tekur en Sigurður Hjörtur dæmir aukaspyrnu áður en að boltinn kemur í teiginn.
33. mín
Helgi Guðjóns með skalla á mark Framara en Viktor Freyr ver örugglega.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Viktor Örlygur fær frábæra sendingu í gegn, kassar hann vel og lætur vaða en boltinn í varnarmann.

Víkingar fylgja skotinu eftir en aftur fer boltinn í varnarmann og Framarar hirða boltann að lokum.
26. mín
Gylfi aftur á ferðinni Gylfi með þrumuskot fyrir utan teig en boltinn fer rétt yfir mark gestanna. Hann er að hóta!
26. mín
Gylfi í frábæru færi! Gylfi sleppur einn í gegn en setur boltann rétt framhjá úr teig Framara. Besta færi leiksins hingað til.
24. mín
Víkingar hafa ekki náð að brjóta þétta vörn Fram á bak aftur. Framarar ógnað lítið sem ekkert hér í upphafi leiks.
22. mín
Viktor Örlygur með þrumuskot af löngu færi en Viktor Freyr ver vel í marki gestanna.
21. mín
Víkingur fær fyrstu hornspyrnu leiksins, en spyrnan fer yfir allan pakkann og aftur fyrir endalínu.
17. mín
Davíð Örn með frábæra fyrirgjöf á Viktor Örlyg sem skallar beint á nafna sinn í marki Fram.
16. mín
Víkingur fær aukaspyrnu um þrjátíu metrum frá marki. Gylfi gefur fyrir en Framarar skalla frá.
13. mín
Hiti í Daníeli Hafsteins Daníel Hafsteins ýtir í og togar Fred niður þegar leikurinn er stopp. Daníel fær þó einungis tiltal frá Sigurði Hirti dómara og er í raun heppinn að sleppa óspjaldaður frá þessu.
10. mín
Bæði lið þreifa á hvoru öðru hér fyrstu tíu mínúturnar. Víkingar þó haldið betur í boltann.
5. mín
Gylfi tekur hörkuskot fyrir utan teig og boltinn fer rétt framhjá marki gestanna.
4. mín
Viktor Örlygur með frábæran sprett í gegnum vörn Framara, sólar þrjá, fjóra en missir boltann að lokum.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn hefja leik! Rauðsvartir Víkingar og alhvítir Framarar.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar, styttist í þetta.
Fyrir leik
Víkingar eru að finna taktinn varnarlega og stuðulinn á “bæði lið skora : Nei” á Epic er 2,5. Ekki ólíklegt að þeir skelli í lás í kvöld.
Fyrir leik
Bæði lið gera tvær breytingar Sölvi Geir Ottesen gerir tvær breytingar frá 7-0 sigri gegn KR í síðasta leik. Stígur Diljan Þórðarsson og Óskar Borgþórsson víkja báðir úr byrjunarliði Víkings og eru utan hóps. Í þeirra stað koma þeir Davíð Örn Atlason og Viktor Örlygur Andrason.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir sömuleiðis tvær breytingar frá síðasta leik. Róbert Hauksson tekur sér sæti á bekknum en Simon Tibbling er í leikbanni og er því utan hóps. Inn í byrjunarliðið koma þeir Magnús Þórðarson og Már Ægisson.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
„Njóta þess að spila stóra leiki við bestu lið landsins“ Leikurinn leggst vel í Sigurjón Rúnarsson, leikmanns Fram, sem segir markmið Framara vera að klára tímabilið með stæl. Fótbolti.net heyrði í Sigurjóni í aðdraganda leiksins.

„Þessi leikur leggst vel í okkur við komum vel gíraðir til leiks, alltaf gaman að spila alvöru leiki. Við þurfum bara að vera eins massífir og höfum verið varnarlega og beinskeyttir frammávið.“

Með hvaða markmið farið þið inn í efra umspilið?

„Förum með það markmiði að vinna þá leiki sem eru eftir og bara njóta þess að spila stóra leiki við bestu lið landsins og enda tímabilið með stæl og byggja ofaná það fyrir næsta tímabil."



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
„Alltaf vel jarðtengdir“ Fótbolti.net ræddi við Óskar Borgþórsson, leikmann Víkings, í aðdraganda leiksins. Óskar segir Fram vera með sterkt lið og að Víkingar þurfi að spila sinn besta leik til að ná úrslitum.

„Fyrsti leikur í úrslitakeppninni og við erum ótrúlega spenntir. Framarar eru með gott lið og góðan þjálfara og við þurfum að spila okkar besta leik til þess að vinna þann leik. Fram er líka með góða leikmenn með gæði sem við þurfum að stoppa," segir Óskar.

Víkingur vann 0-7 sigur á KR í síðustu umferð. Þurfti að jarðtengja menn eftir þann leik?

„Virkilega sterkur útisigur í sóðasta leik á móti KR þar sem leikplanið heppnaðist fullkomlega. En annars erum við alltaf vel jarðtengdir."



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingar sigurstranglegri Fyrri leikir á tímabilinu: Víkingur 3-2 Fram, Fram 2-2 Víkingur.

Stuðlar Epic: Víkingur 1,40 - Jafntefli 5,20 - Fram 7,50.

Leikmaður til að fylgjast með: Valdimar Þór Ingimundarson fór hamförum í 7-0 sigrinum gegn KR. Skoraði þrennu og ógnaði stöðugt.

Mikið mun mæða á: Miðað við frammistöðu Víkings í síðasta leik mun Viktor Freyr Sigurðsson í marki Fram hafa nóg að gera.


Fyrir leik
Simon Tibbling í banni Simon Tibbling, einn besti maður Fram á tímabilinu, verður ekki með Frömurum í kvöld þar sem hann tekur út leikbann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lítið í húfi fyrir Framara Fram tryggði sér í efri hluta tvískiptingarinnar á dramatískan hátt. Liðið gerði jafntefli gegn FH með jöfnunarmarki í uppbótartíma. Framarar þurftu þá að bíða eftir viðureign Breiðabliks og ÍBV. Þar gerðu liðin jafntefli og því fór Fram upp í efri hlutann en ekki ÍBV.

Það er lítið að keppa upp á fyrir Framara nema kannski heiðurinn í þessum fimm leikjum tvískiptingarinnar. Liðið getur ekki fallið og á ekki raunhæfan í möguleika á að ná Evrópusæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Sjóðheitir Víkingar Víkingur er á toppi deildarinnar með tveggja stiga forskot á bæði Stjörnuna og Val. Liðið kemur eflaust með hátt sjálfstraust inn leik kvöldsins en Víkingur hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum. Þeir héldu til sýningar á Meistaravöllum í síðustu umferð þar sem liðið vann stórsigur á KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Víkin heilsar! Heilir og sælir lesendur góðir, verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá viðureign Víkings og Fram í fyrstu umferð í tvískiptri Bestu-deild.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
10. Fred Saraiva
11. Magnús Þórðarson ('63)
16. Israel Garcia
19. Kennie Chopart (f)
23. Már Ægisson ('83)
25. Freyr Sigurðsson ('83)
26. Sigurjón Rúnarsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Bjarki Arnaldarson (m)
36. Þorsteinn Örn Kjartansson (m)
9. Róbert Hauksson
15. Jakob Byström ('63)
30. Kristófer Konráðsson ('83)
32. Hlynur Örn Andrason
71. Alex Freyr Elísson ('83)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Óskar Smári Haraldsson
Daníel Traustason
Friðgeir Bergsteinsson
Kirian Elvira Acosta

Gul spjöld:
Magnús Þórðarson ('54)
Alex Freyr Elísson ('85)
Rúnar Kristinsson ('86)

Rauð spjöld:
Rúnar Kristinsson ('87)