Man Utd vill Kane - Arsenal hefur áhuga á Yildiz - Villa vill kaupa Sancho
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Þróttur R.
18:00 0
0
Víkingur R.
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Breiðablik
18:00 0
0
Stjarnan
Besta-deild kvenna - Efri hluti
FH
56' 1
1
Valur
FH
1
1
Valur
0-1 Fanndís Friðriksdóttir '43
Thelma Karen Pálmadóttir '53 1-1
25.09.2025  -  16:15
Kaplakrikavöllur
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Byrjunarlið:
1. Macy Elizabeth Enneking (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
6. Katla María Þórðardóttir (f)
7. Thelma Karen Pálmadóttir
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir
13. Maya Lauren Hansen
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir
23. Deja Jaylyn Sandoval
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
37. Jónína Linnet
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
8. Valgerður Ósk Valsdóttir
33. Anna Heiða Óskarsdóttir
36. Harpa Helgadóttir
41. Ingibjörg Magnúsdóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Aldís Guðlaugsdóttir
Vigdís Edda Friðriksdóttir
Brynjar Sigþórsson
Harpa Finnsdóttir
Haraldur Sigfús Magnússon
Baldur Orri Ragnarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
56. mín
FH sækir horn.

Skömmu áður hafði Deja átt hörkuskot sem Tinna þurfti að hafa sig alla við að slá frá.
53. mín MARK!
Thelma Karen Pálmadóttir (FH)
Mark
Málfríður með skelfileg mistök. Ætlar að setja boltann til baka á Tinnu en er alltof lengi að athafna sig og Thelma Karen hirðir af henni boltann.

Ein gegn Tinnu verða henni á engin mistök og botinn liggur í netinu og allt er jafnt.
50. mín
Berglind Freyja með boltann við D-bogann á teig Vals og lætur vaða. Arna Sif hendir sér fyrir skot hennar sem fer svo hættulaust í fang Tinnu.

Arna Sif að spila sinn fyrsta deildarleik frá því árið 2023! En hún er að koma til baka eftir að hafa slitið krossband og eignast barn.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
FH sparkar okkur af stað á ný.
45. mín
Hálfleikur
Valur leiðir hér eftir helst til bragðdaufan fyrri hálfleik. Komum aftur eftir korter með síðari hálfleikinn.
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma hér í Kaplakrika.
43. mín MARK!
Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Stoðsending: Anna Rakel Pétursdóttir
Mark!
Anna Rakel með boltann á Fanndísi sem skorar með góðu skoti framhjá Mayu í marki FH.
40. mín
FH sækir. Koma sér í álitlegt færi í teignum en Tinna Brá vel á verði og handsamar boltann.
35. mín
Valur fær hprnspyrnu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Valur sækir. Fanndís með boltann úti til hægri og í fínni fyrirgjafarstöðu með Jordyn að mæta inn á teiginn. Sendingin frá Fanndísi arfaslök og beint á fyrsta FHing sem koma boltanum frá.
29. mín
Elísa Viðars reynir að þr?ða Jordyn í gegnum vörn FH en Macy mætir vel út og handsamar boltann.
26. mín
Birna Kristín reynir skot fyrir FH frá hægra vítateigshorni en boltinn talsvert framhjá markinu.
24. mín
Sláarskot
J?ja í þeim töluðu færðist líf í þetta.

Boltinn hrekkur á Jasmin Erlu eftir ágæta sókn Vals. Hún reynir að lyfta boltanum yfir Macy í marki FH en setur aðeins of mikið púður í skotið sem lendir á ofanverðri þverslánni.
23. mín
Lítið að frétta
Leikur beggja liða rosalega tilviljanakenndur og fátt um fínan fótbolta hér.
16. mín
Thelma Lóa bjartsýn
Tekur boltann viðstöðulaust af einhverjum tuttugu metrum og neglir honum hátt hátt yfir markið. Boltinn lent á Viðistaðatúni eða þar í grennd svo hátt fór hann.
14. mín
Aftur Fanndís
Sama uppskrift of fyrir mínútu síðan. Macy þarf að dýfa sér á boltann en gerir sitt vel og grípur.
13. mín
Valur skarpara liðið
Fanndís kemst inn á teiginn úti til vinstri og lætur vaða en skotið tiltölulega beint á Macy
11. mín
Jordyn Rhodes með ágæt tilþrif í teig FH. Snýr af sér varnarmann og nær skoti úr þröngri stöðu maf markteig. Macy mætt og grípur auðveldlega.
8. mín
Valur sækir
Elísa með hættulegan bolta fyrir markið frá hægri en heimakonur skalla í horn.
3. mín
Maya Lauren með skot úr teignum eftir snögga sókn FH en varnarmenn komast fyrir.
1. mín
Kraftur í FH frá fyrstu sekúndu
Mættar upp að endalínu strax eftir miðju og koma boltanum fyrir markið. Tinna Brá handsamar þó boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Kaplakrika. Valur sparkar okkur af stað
Fyrir leik
Dómarateymið Aðaldómari leiksins er Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson. Með honum til aðstoðar eru Óliver Thanh Tung Vú og Ásgeir Viktorsson. Varadómari leiksins er Ronnarong Wongmahadthai. Eftirlitsmaður frá KSÍ er Ásgrímur Helgi Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Óli Ágústsson
Fyrir leik
Í efri hluta þrátt fyrir erfitt tímabil Þetta tímabil hefur verið ólíkt því sem Valur hefur vanist á undanförnum árum, þegar liðið barðist reglulega um titilinn. Nú situr Valur í 4. sæti og er úr leik í titilbaráttunni. Hins vegar er liðið enn með tölfræðilegan möguleika á að tryggja sér Evrópusæti með því að enda í 3. eða 4. sæti, þó að verkefnið verði krefjandi.

Valur tapaði 1-0 gegn Fram í seinustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Óli Ágústsson
Fyrir leik
Enn tölfræðilegur möguleiki FH situr í 2. sæti eftir skiptingu deildarinnar og á enn tölfræðilegan möguleika á að vinna titilinn, þó margt þyrfti að ganga upp til að það gerðist. Mikilvægara er að liðið passi sig á að missa ekki of mörg stig, því Þróttur er aðeins tveimur stigum á eftir í 3. sæti. Þótt titilbaráttan sé ólíkleg væri það gríðarlega stórt fyrir kvennalið FH að tryggja sér 2. sætið og þar með sæti í Meistaradeildinni á næsta ári.

FH sigraði 0-4 gegn Tindastól í seinustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Brynjar Óli Ágústsson
Fyrir leik
Fyrsti í efri hluta! Góða daginn gott fólk og verið hjartanlega velkomin á þessa þráð beinu textalýsingu frá Kaplakrika þar sem FH tekur á móti Val í fyrsta leik í efri hlutanum.

Leikurinn hefst kl: 16:15.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aðrir leikir í dag:
Efri hluti
Þróttur - Víkingur R. 18:00
Breiðablik - Stjarnan 18:00

Neðri hluti
Þór/KA - Tindastóll 19:15
Brynjar Óli Ágústsson
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
7. Elísa Viðarsdóttir (f)
9. Jasmín Erla Ingadóttir
10. Berglind Rós Ágústsdóttir
11. Anna Rakel Pétursdóttir
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir
30. Jordyn Rhodes
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
12. Esther Júlía Gustavsdóttir (m)
3. Sóley Edda Ingadóttir
5. Bryndís Eiríksdóttir
13. Nadía Atladóttir
22. Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir
24. Auður Björg Ármannsdóttir
26. Ása Kristín Tryggvadóttir
27. Helena Ósk Hálfdánardóttir
34. Hildur Högnadóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Jóhann Emil Elíasson
María Hjaltalín
Hallgrímur Heimisson
Fjalar Þorgeirsson
Helgi Freyr Þorsteinsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: