SKÝRSLAN: ÍBV valtaði yfir Vestra í fyrri hálfleik
Hvað réði úrslitum?
ÍBV spilaði bara vörn og hleypti Vestra ekki í nein færi og sóttu svo hratt á þá og Vestri ræði ekkert við hraðann í bæði Hermanni og Oliver sem kláruðu Vestra liðið í þessum leik
Bestu leikmenn
1. Hermann Þór
Var sprækur og ógnaði mikið í skyndisóknum. Kláraði færin sín vel og átti frábæra stoðsendingu
2. Oliver Heiðarsson
Vestri átti í vandræðum með hraðan á Oliver sem lagði upp og skoraði í dag og var mjög góður.
Atvikið
Þessi 2 mörk rétt fyrir hálfleikinn, Vestri greinilega ekki með einbeitingu og voru að bíða eftir að komast inn í hálfleikinn með 0-2 stöðu en fara með 0-4 stöðu í hálfleikinn
Hvað þýða úrslitin?
Vestri eru í vondum málum þurfa líklegast að vinna 2 af 3 núna til að halda sér í deildinni en gæti verið nóg að vinna bara KR í seinustu umferð.
ÍBV eru öruggir og verða í deild þeirra bestu á næta ári!
Vondur dagur
Davíð Smári, Diego Montiel og bara allt Vestra liðið þetta var bara mjög slæmur dagur fyrir Vestra og greinilegt að Fatai er límið í þessu liði þeir leka inn mörkum án Fatai. Seinustu 3 leikir án Fatai hafa Vestri fengið á sig 13 mörk, fyrir þessa leiki voru þeir bara búnir að fá á sig 24 mörk í 21 leik!
Dómarinn - 7
Hann var bara fínn, voða lítið að gera rólegur seinni hálfleikur



