Man Utd hefur áhuga á Valverde - Guehi gæti farið til Tottenham - Frank hefur líka áhuga á Collins
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Stjarnan
LL 3
4
FH
Evrópukeppni unglingaliða
KA U19
LL 1
0
Jelgava U19
KA U19
1
0
Jelgava U19
Samtals
3
:
2
Þórir Hrafn Ellertsson '27 1-0
01.10.2025  -  14:00
Greifavöllurinn
Evrópukeppni unglingaliða
Dómari: Karl Koppel (Eistland)
Byrjunarlið:
99. Jóhann Mikael Ingólfsson (m)
8. Kristján Breki Pétursson
9. Þórir Hrafn Ellertsson
10. Andri Valur Finnbogason ('85)
10. Valdimar Logi Sævarsson
17. Almar Örn Róbertsson ('72)
18. Viktor Máni Sævarsson
19. Snorri Kristinsson
21. Maron Páll Sigvaldason
26. Agnar Óli Grétarsson ('63)
28. Gabriel Meira ('85)

Varamenn:
1. Hermann Ágúst Tryggvason (m)
2. Sigursteinn Ýmir Birgisson
3. Sigmundur Logi Þórðarson
4. Breki Snær Ketilsson
6. Maron Björgvinsson
7. Halldór Ragúel Guðbjartsson ('72)
25. Sigurður Nói Jóhannsson ('85)
29. Viktor Breki Hjartarson ('63)
32. Ívan Logi Jóhannsson ('85)

Liðsstjórn:
Slobodan Milisic (Þ)
Egill Daði Angantýsson (Þ)

Gul spjöld:
Almar Örn Róbertsson ('13)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frábær sigur hjá KA sem er komið áfram í næstu umferð þar sem liðið mætir gríska liðinu PAOK
90. mín
Aukaspyrna frá Valdimar beint á Velika. Gestirnir fá aukaspyrnu og Velika fer inn í teiginn. Ekkert kom út úr henni og Jóhann handsamar boltann að lokum.
90. mín
Sex mínútur í uppbótatíma! Jóhann Mikael klár í slaginn
90. mín
Jóhann Mikael Ingólfsson markvörður KA þarf á aðhlynningu að halda.
88. mín
Gestirnir að komast í álitlegt færi en Maron Pálll Sigvaldason gerir frábærlega og kemur boltanum í horn.
85. mín
Inn:Ívan Logi Jóhannsson (KA U19) Út:Andri Valur Finnbogason (KA U19)
85. mín
Inn:Sigurður Nói Jóhannsson (KA U19) Út:Gabriel Meira (KA U19)
84. mín
ÞARNA SLUPPU KA MENN! Marks Kristapsons sleppur í gegn en sem betur fer fyrir KA menn rennir hann boltanum framhjá markinu! Algjört dauðafæri!
78. mín
Fyrirgjöf sem Andri Valur Finnbogason nær að komast örlítið í sýndist mér en boltinn fer framhjá.
72. mín
Inn:Halldór Ragúel Guðbjartsson (KA U19) Út:Almar Örn Róbertsson (KA U19)
Almar kominn á mikið hættusvæði á gulu spjaldi, skynsamleg skipting.
69. mín
Gestirnir koma boltanum í netið eftir hornspyrnu en dómarinn var búinn að flauta þar sem boltinn fór aftur fyrir í fyrirgjöfinni.
68. mín
KA kemst upp í skyndisókn eftir hornspyrnu hinu megin. Boltinn endar hjá Almari en hann á skot hátt yfir. Illa farið með gott tækifæri.
65. mín
Snorri Kristinsson fær boltann fyrir utan teiginn og tekur viðstöðulaust skot en boltinn framhjá.
63. mín
Inn:Marks Kristapsons (Jelgava U19) Út:Rudolfs Lakis (Jelgava U19)
63. mín
Inn:Viktor Breki Hjartarson (KA U19) Út:Agnar Óli Grétarsson (KA U19)
Fyrir leik, í hálfleik og á meðan leik stendur

Pepsi Max - fyrir þorstann í meira!
57. mín
Afskaplega rólegt hérna undanfarnar mínútur.
48. mín Gult spjald: Adams Dreimanis (Jelgava U19)
Brýtur á Valdimar og sparkar boltanum í hann þegar hann liggur eftir.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Ein breyting hjá gestunum í hálfleik.
46. mín
Inn:Edvards Sniedzitis (Jelgava U19) Út:Nils Voitiskis (Jelgava U19)
45. mín
Hálfleikur
KA menn með forystuna í hálfleik. Mjög verðskuldað!
43. mín Gult spjald: Rudolfs Lakis (Jelgava U19)
Brýtur á Kristjáni Breka.
41. mín Gult spjald: Davis Calbergs (Jelgava U19)
Fær gult spjald fyrir dýfu. Reynir að næla sér í víti.
38. mín
Frábær sending hjá Almari Erni inn fyrir vörnina á Kristján Breka Pétursson. Kristján leikur á varnarmann Jelgava og rennir boltanum aftur á Almar en hann hittir boltann illa, markspyrna
33. mín
Besta færi gestanna til þessa. Sýnist það vera Adams Dreimanis sem fær fyrirgjöfina en hann nær ekki að stýra boltanum á rammann.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Gestirnir reyna að sækja en KA menn loka vel á þá.
27. mín MARK!
Þórir Hrafn Ellertsson (KA U19)
MAAAAARK! KA menn eru komnir yfir!! Valdimar með frábæra aukaspyrnu en boltinn fer í samskeytin og Þórir ræðst á boltann og skorar á opið markið.

25. mín
Þórir Hrafn Ellertsson með skalla en Velika ver í slá, þessi var hársbreidd frá því að vera inni. Leikmenn ekkert að gefa í skyn að hann væri inni samt.
23. mín
KA menn að skapa hættu eftir langt innkast en Martins Velika, markvörður Jelgava, er maður leiksins til þessa. Rosaleg innköst sem Agnar Óli Grétarsson er að bjóða upp á.
21. mín
Mjög bragðdauft undanfarnar mínútur. KA með yfirhöndina eins og staðan er núna.
13. mín Gult spjald: Almar Örn Róbertsson (KA U19)
Rosaleg tækling og verðskuldað spjald.
8. mín
DAUÐAFÆRI Andri Valur Finnbogason í dauðafæri. Frábært spila hjá KA og boltinn endar hjá Andra inn á markteignum einn á móti markmanni een hann ver stórkostlega í horn.
6. mín
KA menn líklegri í upphafi leiks. Hafa komið sér í góðar stöður en ekki náð að skapa sér teljandi færi.
1. mín
Leikur hafinn
Valdimar Logi Sævarsson sparkar þessu af stað

Fyrir leik
Dómarar frá Eistlandi Dómararnir í dag koma frá Eistlandi. Karl Koppel er með flautuna og á hliðarlínunum eru þeir Riivo Stolts og Thor Vaas.

Sveinn Arnarsson, sem vissulega er Íslendingur, er svo fjórði dómari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn er fjórði dómari
Fyrir leik
Unglingalið KA leikur seinni leikinn
Mynd: Aðsend

KA, sem varð Íslandsmeistari í 2. flokki á síðasta ári, mætir í dag lettneska liðinu Jelgava í seinni viðureign liðanna í 1. umferð Evrópukeppni unglingaliða.

Það má búast við spennandi leik en fyrri leikurinn í Lettlandi endaði með 2-2 jafntefli og verður leikið til þrautar í dag.

Lettneska liðið leiddi 2-0 í hálfleik í fyrri leiknum en KA kom til baka í seinni hálfleik og náði jafntefli.

Valdimar Logi Sævarsson minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu og varamaðurinn Andri Valur Finnbogason jafnaði svo metin á 84. mínútu.

Þeir Slobodan Milisic og Egill Daði Angantýsson eru þjálfarar KA liðsins.

Mynd: Aðsend
Byrjunarlið:
23. Martins Velika (m)
6. Valters Purs
9. Nils Voitiskis ('46)
11. Rudolfs Lakis ('63)
14. Adams Dreimanis
16. Armands Becers
17. Valters Berzins
20. Davis Calbergs
24. Gustavs Nulle
26. Marcis Susts
99. Karlis Anmanis

Varamenn:
12. Kristaps Nimants (m)
15. Kristers Zeltins
18. Kristians Bernans
19. Edvards Sniedzitis ('46)
27. Marks Kurcanovs
31. Marks Kristapsons ('63)
71. Tomass Kristapsons

Liðsstjórn:
Valerijs Redjko (Þ)

Gul spjöld:
Davis Calbergs ('41)
Rudolfs Lakis ('43)
Adams Dreimanis ('48)

Rauð spjöld: