Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
Kerecisvöllurinn
-5 gráður og vindur
Vestri
Vestri
2 - 3
Keflavík
Keflavík
Sergine Modou Fall 5'1 - 01 - 115' Marin Mudrazija1 - 242' Sindri Snær Magnússon1 - 356' Eiður Orri RagnarssonÞórður Gunnar Hafþórsson 90'2 - 3
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Keflvíkingar sprækir og náðu í flottan sigur á Vestra

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitunum í dag voru gæði leikmanna Keflavíkur á síðasta þriðjung vallarins. Keflavík fengu ekki mjög mikið af færum en þegar þau komu þá nýttu þeir þau vel.

Bestu leikmenn

1. Eiður Orri Ragnarsson

Eiður var mjög sprækur úti á hægri kantinum hjá Keflvíkingum í dag, duglegur og skoraði gott mark.

2. Þorlákur Breki Þ. Baxter

Breki var hörku flottur í miðjunni hjá Keflavík í dag, var út um allt og skilaði góðu dagsverki.

Atvikið

Þriðja mark Keflvíkinga sem Eiður Orri skoraði, eftir þetta mark hægðist mikið á Vestramönnum og það má segja að þetta mark hafi að vissu leiti klárað leikinn. Vestramenn ógnuðu ekki mikið á mark Keflvíkinga eftir þetta fyrr en á síðustu mínútum leiksins

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða það að Keflavík lyfta sér upp í annað sæti A.riðils Lengjubikarsins og Vestri detta niður í það fimmta.

Vondur dagur

Emmanuel Duah. Duah spilaði sem fremmsti maður Vestra í leiknum og komst aldrei í takt við leikinn, það kom lítið sem ekkert frá honum í dag.

Dómarinn - 7

Twana og hans menn voru flottir í dag. Twana leyfði leiknum að fljóta vel framan af , en hann varð smá spjaldaglaður undir lok leiks. Annars flottur
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.