Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 10:18
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal skráir sig í baráttuna um leikmann Forest - Tekur Dyche við Tottenham?
Powerade
Elliot Anderson er einn af eftirsóttustu miðjumönnum ensku úrvalsdeildarinnar
Elliot Anderson er einn af eftirsóttustu miðjumönnum ensku úrvalsdeildarinnar
Mynd: EPA
Tottenham gæti ráðið Sean Dyche til bráðabirgða
Tottenham gæti ráðið Sean Dyche til bráðabirgða
Mynd: EPA
Öll félög eru að skoða miðjumenn en þeir Adam Wharton, Carlos Baleba og Elliot Anderson eru meðal leikmanna sem koma við sögu í Powerade-slúðurpakka dagsins.

Adam Wharton (22), leikmaður Crystal Palace og eitt af aðalskotmörkum Manchester United, er reiðubúinn að yfirgefa Palace í sumar. Hann vill ganga í raðir félags sem spilar í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. (Sun)

Brighton hefur slakað á afstöðu sinni varðandi sölu á kamerúnska miðjumanninum Carlos Baleba (22) og er líklegra til að samþykkja tilboð sem er vel undir 100 milljóna punda verðmiðanum sem félagið setti á síðasta sumar er Man Utd sýndi leikmanninum áhuga. (Sun)

Arsenal er að skoða það að fá enska miðjumanninn Elliot Anderson (23) frá Nottingham Forest, en Man City, Man Utd og Chelsea eru einnig á eftir honum. (CaughtOffside)

Man Utd og Liverpool eru með augu á franska miðjumanninum Aurelien Tchouameni (26), sem er á mála hjá Real Madrid. (Fichajes)

PSG ætlar ekki að selja georgíska vængmanninn Khvicha Kvaratskhelia (25) í sumar, en það hefur synjað tilraunum frá bæði Arsenal og Liverpool á síðustu vikum. (Teamtalk)

Man Utd hefur verið boðið tækifærið á að fá spænska framherjann Ferran Torres (26) frá Barcelona í sumar. (Teamtalk)

Juventus mun reyna að fá Robert Lewandowski (37) á frjálsri sölu frá Barcelona. (La Gazzetta dello Sport)

Ítalska félagið hefur einnig áhuga á að fá Mason Greenwood (24) frá Marseille, en Atlético Madríd er einnig sagt í baráttunni. (La Gazzetta dello Sport)

Spænski þjálfarinn Luis Enrique ætlar að hafna Man Utd og skrifa undir nýjan samning hjá Paris Saint-Germain. (i Paper)

Tottenham er að íhuga að leita til Sean Dyche til þess að bjarga liðinu frá falli, það er að segja ef Roberto De Zerbi vill ekki taka við liðinu fyrr en eftir tímabilið. (Telegraph)

Everton er að undirbúa samningaviðræður við David Moyes til að verðlauna Skotann fyrir frábæran árangur en hann tók Everton úr fallbaráttu og kom því í baráttu um Evrópusæti á þessarsi leiktíð. (Guardian)
Slapp
Athugasemdir
banner