Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
Í BEINNI
Undankeppni HM 2027
England
LL 2
0
Ísland
England
2
0
Ísland
Lucy Bronze '22 1-0
Georgia Stanway '78 2-0
07.03.2026  -  12:30
City Ground í Nottingham
Undankeppni HM 2027
Dómari: Silvia Gasperotti (Ítalía)
Byrjunarlið:
1. Hannah Hampton (m)
2. Lucy Bronze
3. Taylor Hinds
4. Keira Walsh
5. Leah Williamson
6. Esme Morgan
7. Lauren James ('75)
8. Georgia Stanway ('90)
9. Alessia Russo
10. Jess Park ('85)
11. Lauren Hemp

Varamenn:
13. Anna Moorhouse (m)
21. Ellie Roebuck (m)
12. Maya Le Tissier
14. Lucia Kendall ('90)
15. Lotte Wubben-Moy
16. Poppy Pattinson
17. Chloe Kelly ('75)
18. Grace Clinton
19. Agnes Beever-Jones
20. Laura Blindkilde Brown ('85)
22. Jessica Carter
23. Freya Godfrey

Liðsstjórn:
Sarina Wiegman (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þannig fór um sjóferð þá.
Þær ensku miklu betra liðið hérna í dag og má teljast hálfótrúlegt að þær hafi ekki skorað fleiri mörk en raun ber vitni. Íslenska liðið má eiga það að þær voru agaðar á stórum köflum í varnarleiknum en spilið allt of tilviljanakennt ef fyrstu fimm mínúturnar eru teknar út fyrir sviga. Þessi gluggi hefur sýnt okkur að við erum ansi langt frá þessum bestu liðum. Frekari viðbrögð frá Englandi koma seinna í dag.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
90. mín
Inn:Lucia Kendall (England) Út:Georgia Stanway (England)
+3
Elíza Gígja Ómarsdóttir
90. mín
+2 Misskilningur í spili íslenska liðsins á miðjunni og enska liðið kemst inn sendingu. Chloe Kelly ákveður að hlaða í skot lengst utan af velli en skotið er í varnarmann. Cecilía var líka á línunni í markinu þannig það verður að teljast afar ólíklegt að þetta skot hefði farið inn hefði það ratað á markið.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
90. mín
+1 Þrjár mínútur í uppbót
Elíza Gígja Ómarsdóttir
90. mín
Hemp tekur hlaup inn fyrir þar sem hún fær boltann og kemur honum svo fyrir markið en þar er Cecilía vel á verði og grípur boltann.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
89. mín
Inn:Berglind Rós Ágústsdóttir (Ísland) Út:Hildur Antonsdóttir (Ísland)
Síðasta íslenska skiptingin í þessum leik.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
85. mín
Inn:Laura Blindkilde Brown (England) Út:Jess Park (England)
Elíza Gígja Ómarsdóttir
84. mín
Önnur hornspyrna sem er tekin stutt og á endanum nær boltinn til Walsh fyrir utan teiginn sem á skot hátt yfir markið
Elíza Gígja Ómarsdóttir
83. mín
Chloe Kelly tekur slaka spyrnu sem Sandra María hreinsar frá.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
83. mín
Þær ensku halda áfram að sækja, Russo á skot sem fer af Glódísi og aftur fyrir.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
82. mín
Þær ensku búnar að vera mjög þolinmóðar í seinni hálfleiknum að leita að öðru markinu. Láta hann ganga á milli kanta, eru ekki að þvinga hann inn í svæði sem eru lokuð og bíða eftir því að ná þessum fyrirgjöfum sem þær eru svo ofboðslega góðar í.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
78. mín MARK!
Georgia Stanway (England)
Stoðsending: Lucy Bronze
Þvílíka slúttið!! Lucy Bronze tekur utanáhlaupið og fær boltann frá Hemp. Hún setur boltann inn á miðjan teiginn þar sem Russo lætur hann fara fyrir Georgia Stanway sem er alein, tekur boltann í fyrsta áður en hann lendir í jörðinni og hann syngur í netinu.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
76. mín
Fínasti bolti inn á teiginn frá Hemp en hann er aðeins of framarlega fyrir bæði Russo og Kelly og Cecilía handsamar hann.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
76. mín
Inn:Diljá Ýr Zomers (Ísland) Út:Sveindís Jane Jónsdóttir (Ísland)
Sveindís Jane ekki fengið úr miklu að moða í dag og kemur hér út af fyrir Diljá Ýr.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
75. mín
Inn:Chloe Kelly (England) Út:Lauren James (England)
Þessi fyrirgjöf er það síðasta sem Lauren James gerir í þessum leik og hún víkur fyri Chloe Kelly.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
75. mín
Lauren James reynir aftur að koma boltanum inn á teiginn en í þetta skiptið er Glódís fyrst á hann og skallar frá.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
74. mín
James með fína fyrirgjöf á Russo sem nær þó ekki nægilega góðum skalla.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
70. mín
Langur bolti fram völlinn í hlaupið hjá Russo sem á fínt skot á markið sem Cecilía ver í áttina að Guðrúnu sem á slaka hreinsun beint fyrir James. Hún tekur þríhyrning með Stanway áður en hún lætur sjálf vaða en hittir ekki markið
Elíza Gígja Ómarsdóttir
69. mín
Þær ensku eru bara að dúlla sér með boltann, rúlla honum á milli sín og leitast eftir því að opna þau svæði sem þær vilja opna
Elíza Gígja Ómarsdóttir
68. mín
Íslenska liðið að reyna að spila sig út úr pressu þeirra ensku en það er hreinlega eins og heimakonur séu með fleiri en 11 leikmenn inn á vellinum
Elíza Gígja Ómarsdóttir
63. mín
Inn:Alexandra Jóhannsdóttir (Ísland) Út:Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Ísland)
Tvær út af miðjunni. Tveir erfiðir leikir í þessum glugga og skiljanlegt að miðjumennirnir séu farnir að þreytast.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
63. mín
Inn:Emilía Kiær Ásgeirsdóttir (Ísland) Út:Ída Marín Hermannsdóttir (Ísland)
Elíza Gígja Ómarsdóttir
62. mín
Karólína Lea með slaka hornspyrnu sem fer ekki fram hjá Stanway sem er á nærstönginni og hreinsar frá.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
61. mín
Hannah Hampton!! Sveindís Jane með góðan bolta inn á hættusvæðið þar sem Sandra María Jessen á góðan skalla en Hannah Hampton sínir gæði sín og slær boltann aftur fyrir í horn. Frábær varsla!
Elíza Gígja Ómarsdóttir
60. mín
Hreyfing á íslenska bekknum þar sem að Emilía Kiær Ásgeirsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir eru að gera sig klárar til að koma inn á.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
58. mín
James fær boltann við vítateigshornið vinstra megin, hleypur inn á völlinn meðfram teignum og lætur vaða en skotið hennar er beint í fangið á Cecilíu í markinu
Elíza Gígja Ómarsdóttir
57. mín
James leikur á Maríu og kemur boltanum á fjær en þar er engin hvít treyja og íslenska liðið kemur boltanum frá
Elíza Gígja Ómarsdóttir
54. mín
Fyrirgjöf frá hægri til vinstri þar sem Taylor Hinds er ein og óvölduð en skotið hennar er ekki gott og Ísland á markspyrnu.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
53. mín
Nauðvörn íslenska liðsins Misheppnað spil út frá marki íslenska liðsins endar með því að Lauren James er komin í skot sem Ída Marín stekkur fyrir. Boltinn berst til Stanway sem á skot sem fer af Glódísi Perlu fyrir fæturnar á Lauren Hemp sem á þriðja skotið sem fer fram hjá.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
52. mín
Dauðafæri Lauren James á mikilli siglingu upp vinstri kantinn, kemur boltanum fyrir þar sem Russo rétt nær enninu í hann. Hún nær þó ekki mikilli snertingu og boltinn heldur áfram í gegn um teiginn og endar á fjær þar sem Lucy bronze kemur á siglingu en nær þó ekki stjórn á boltanum og skotið hennar er yfir markið.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
50. mín
Stanway tekur hornspyrnuna en spyrnan er of innarlega og Cecilía grípur hana auðveldlega
Elíza Gígja Ómarsdóttir
49. mín
England sækir upp hinum megin og uppsker hornspyrnu
Elíza Gígja Ómarsdóttir
47. mín
Langt innkast sem Sveindís tekur en sem fyrr rís Lucy Bronze hæst og skallar frá. Boltinn berst aftur til Sveindísar sem tekur fyrirgjöf sem Hampton grípur.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Elíza Gígja Ómarsdóttir
45. mín
Inn:María Catharina Ólafsd. Gros (Ísland) Út:Hlín Eiríksdóttir (Ísland)
Ein breyting í hálfleik. María kemur inn á í sínum öðrum A-landsleik
Elíza Gígja Ómarsdóttir
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleikur endar á skoti Lauren Hemp rétt yfir markið.

Fyrri hálfleikur að baki og okkar konur nokkuð heppnar að vera ekki í verri stöðu en einu marki undir. Enska liðið hefur stjórnað þessum leik og íslenska liðið fallið neðar og neðar.

Spennandi að sjá hvað seinni hálfleikurinn gefur okkur og hvort að Steini breyti einhverju hjá liðinu.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
44. mín
Russo með skot utan úr teignum sem Cecilía er í litlum vandræðum með
Elíza Gígja Ómarsdóttir
44. mín
Stórkostlegur bolti frá Leah Williamson, með fram jörðinni, inn fyrir íslensku vörninr í hlaupið fyrir Russo en íslenska línan heldur vel og flaggið fer á loft.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
42. mín
Sædís Rún tekur spyrnuna en hún er beint í fangið á Hampton, illa farið með þessa spyrnu.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
42. mín
Karólína Lea kemur upp hægri kantinn og nær fyrirgjöf en hún kemst ekki fram hjá fyrsta varnarmanni, Karólína fær boltann aftur, það er brotið á henni og hún fær aukaspyrnu úti hægra megin
Elíza Gígja Ómarsdóttir
39. mín
Lauren James tekur lítinn þríhyrning við vítateigslínuna með Russo sem leggur boltann fyrir hana og James neglir á markið en Cecilía er vandanum vaxin og ver vel
Elíza Gígja Ómarsdóttir
37. mín
Lauren Hemp!! Russo nær að koma boltanum fyrir markið þar sem bæði Hemp og Bronze bíða en þær enda eiginlega á því að vera fyrir hvor annari. Hemp misreiknar boltanno og hleypur yfir hann en nær þrátt fyrir það nægilega mikilli snertingu til að fipa Bronze og sóknin rennur út í sandinn. Dauðafæri þarna fyrir heimakonur.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
35. mín
Stanway tekur hornspyrnuna og enn og aftur er Bronze fyrst á hann en sendingin er of há fyrir hana og strýkur kollinn á henni og hún nær ekki að koma boltanum á markið
Elíza Gígja Ómarsdóttir
35. mín
Hemp með lúmskan bolta á fjær þar sem Cecilía er fyrst á boltann og slær hann í horn áður en Stanway nær til hans
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Bronze nálægt því að tvöfalda forystuna! Hornspyrnan kemur á fjær eins og áðan þar sem Bronze er sem fyrr og á skalla í stöngina, okkar konur eiga ekki roð í Bronze í loftinu.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
26. mín
Lauren James stígur nokkur spor úti vinstra megin áður en hún á fyrirgjöf sem finnur Lauren Hemp en skot hennar er í varnarmann. Örstuttu seinna fær James boltann aftur á sama stað og tekur svipaða fyrirgjöf en í þetta skiptið finnur hún ekki samherja og boltinn fer aftur fyrir.

Full auðvelt fyrir þær ensku að koma boltanum fyrir markið okkar!
Elíza Gígja Ómarsdóttir
22. mín MARK!
Lucy Bronze (England)
Stoðsending: Lauren James
Þetta var búið að liggja í loftinu Lauren James tekur overlap á Georgia Stanway sem rúllar boltanum á hana. James á frábæra fyrirgjöf inn á vítapunktssvæðið þar sem Lucy Bronze er mætt og á stórgóðan skalla yfir Cecilíu í markinu og boltinn í netið. 1-0 fyrir heimakonur og það verður að segjast eins og er að það er sanngjarnt.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
21. mín
Frábært spil Englendinga endar með samspili milli Bronze og Hemp uppi hægra megin og sú síðarnefnda kemur boltanum fyrir á Russo en Glódís gerir vel og kemur boltanum í horn
Elíza Gígja Ómarsdóttir
21. mín
Aftur fá þær ensku horn og Georgia Stanway tekur svipað horn og áðan en nú hittir Lucy Bronze boltann, tekur hann á lofti en hittir þó ekki rammann.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
19. mín
Englendingar fá hornspyrnu í kjölfarið sem er tekin út í teiginn en Lucy Bronze hittir boltann ekki og íslenska liðið kemur boltanum frá á endanum
Elíza Gígja Ómarsdóttir
17. mín
Stöngin!! Skrýtið útspark hjá Cecilíu endar með fínni sókn þeirra ensku þar sem Lauren James á góða fyrirgjöf á nöfnu sína Hemp sem tekur vel tímasett hlaup og stangar boltann í stöngina.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
16. mín
Englendingar fá aukaspyrnu á fínum stað sem Georgia Stanway tekur inn á teiginn en samherjar hennar ná ekki til boltans og hann endar á því að fara aftur fyrir.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
15. mín
Þær ensku búnar að ýta okkar konum ansi neðarlega á völlinn og eru að fá færi eftir því.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
12. mín
Lauren Hemp með góða fyrirgjöf frá hægri, finnur Russo sem nær skoti á markið en það er beint á Cecilíu
Elíza Gígja Ómarsdóttir
11. mín
Russo í baráttunni við Glódísi úti hægra megin og hefur betur, Glódís vill aukaspyrnu en fær ekki, Russo kemur boltanum fyrir markið þar sem má engu muna að heimakonur komist yfir en Lauren Hemp hefði þurft aðeins lengri stóru tá til að ná til boltans.

Elíza Gígja Ómarsdóttir
10. mín
Leah Williamson með frábæran bolta aftur fyrir íslensku vörnina þar sem hún finnur ennið á Lauren James en skallinn hennar endar í utanverðu hliðarnetinu.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
9. mín
Vont útspark frá Cecilíu fer beint á Glódísi sem tekur þunga móttöku í átt að eigin marki. Boltinn fer hátt upp í loftið og Glódís er í kapphlaupi við Russo sem er grimm og kemst fram fyrir hana, nær skotinu en Cecilía er í engum vandræðum með það.
Elíza Gígja Ómarsdóttir
8. mín
Lauren James með skiptingu frá vinstri til hægri og Lucy Bronze er hársbreidd frá því að ná fyrirgjöfinni en boltinn farinn aftur fyrir
Elíza Gígja Ómarsdóttir
5. mín
Íslenska liðið er að halda töluvert betur í boltann í upphafi þessa leiks samanborið við leikinn á móti Spánverjum sem er vel, vonandi höldum við áfram á því róli
Elíza Gígja Ómarsdóttir
2. mín
Sveindis tekur langt innkast frá vinstri inn á teiginn og eftir ping pong á milli liða dæmir Silvia Gasperotti brot á Ísland
Elíza Gígja Ómarsdóttir
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur byrja með boltann og Russo sparkar leiknum í gang
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Fyrir leik
Styttist í leik Liðin ganga út á völlinn og stilla sér upp fyrir þjóðsöngvana
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Fyrir leik
Hressir áhorfendur Um 300 Íslendingar eru á vellinum
Mynd: Snæbjört Pálsdóttir

Fyrir leik
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands spáir í spilin Rachel Brown-Finnis er mætt á völlinn að styðja sínar konur,
Hún rifjaði upp gamla tíma í Vestmannaeyjum og fór aðeins yfir leikinn

Mynd: Snæbjört Pálsdóttir



Fyrir leik
Upphitun Stórleikur er framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu þegar þær mæta Evrópumeisturum Englands í Nottingham í dag. Verkefnið er krefjandi, en tölfræðin gefur þó ýmislegt til kynna sem getur gefið íslenska liðinu byr undir báða vængi áður en flautað verður til leiks.

Helstu punktar fyrir leikinn

Þótt England hafi haft yfirhöndina í innbyrðisviðureignum liðanna í gegnum árin, þá eiga Íslendingar góðar minningar frá síðasta leik liðanna. Ísland vann þá 2-0 sigur á Englandi á útivelli í júlí 2009

Íslenska liðið hefur átt góðu gengi að fagna gegn þjóðum Bretlandseyja á undanförnum árum. Ísland hefur unnið síðustu fjóra mótsleiki sína gegn slíkum andstæðingum, tvo gegn Norður-Írlandi og tvo gegn Wales.

Þrátt fyrir tap gegn Spáni í síðasta leik var Sveindís Jane Jónsdóttir afar öflug í sóknarleik Íslands. Hún átti flestar gabbhreyfingar liðsins (4), vann boltann oftast (6 sinnum) og skapaði jafnframt flest færi. Takist henni að tengja vel við samherja sína í dag gæti hún valdið ensku varnarlínunni miklum vandræðum.

Enska liðið hefur ekki fengið á sig mark í síðustu 23 heimaleikjum sínum í undankeppni HM. Sá varnarmúr hefur reynst andstæðingum erfiður viðureignar en kannski tekst íslenska liðinu að rjúfa hann á City Ground í dag.

Frá því Sarina Wiegman tók við enska landsliðinu hefur sóknarleikurinn verið gríðarlega öflugur. England hefur skorað tæp átta mörk að meðaltali í leik í undankeppni HM undir hennar stjórn, sem þýðir að íslenska vörnin þarf að vera vel vakandi frá fyrstu mínútu.


Fyrir leik
Óbreytt byrjunarlið - Alexandra klár í slaginn Byrjunarlið Íslands er óbreytt frá leiknum gegn Spáni. Alexandra Jóhannsdóttir var ekki leikfær gegn Spáni en Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, segir við RÚV að Alexandra geti spilað í dag.

,,Hún mun örugglega taka þátt í þessum leik, hún er klár í það," segir Steini við Almar Ormarsson á RÚV.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Vinkona Karó heit og Glódís vill kassann út ,,Ég vona að við getum ýtt mér aðeins ofar í leiknum á morgun og ég er bara spennt fyrir því"

,,Þetta eru allt frábærir leikmenn ef ekki bestar í heimi og við þurfum að hafa gætur á þeim öllum. Ég veit að vinkona mín Georgia Stanway er heit þannig að við þurfum að passa hana.“


„Það er mikilvægt fyrir okkur að fara út á völlinn með kassann úti og vera klárar í baráttuna sem fylgir þessu líka.“

,,Ég hugsa að það verði axlirnar niður, pressan er á þeim, við getum spilað okkar bolta. Okkur verður að líða vel í því sem við ætlum að gera."

,,Það er engin pressa á okkur og okkur langar að stríða þeim aðeins.“
Fyrir leik
Steini breytir áherslunum gegn Englandi „Við ætlum að reyna að vera aðeins ofar eða framar á vellinum Þannig að við svona fellum ekki alveg eins langt niður en svo bara kemur í ljós hvernig leikurinn þróast út frá því. Þær spila svona aðeins öðruvísi Englendingarnir heldur en Spánverjarnir og við þurfum að vera viðbúin ýmsum hlutum. Viðbúin krossana, hlaupunum, hornhlaupunum, búa til yfirtölu út á vængjunum og svoleiðis. Við þurfum að vera tilbúin að takast á við það.“

,,Þær eru svona líkamlega sterkari, fyrirgjafir hjá þeim eru mikið til oft á tíðum háir krossar, eru lengri krossar heldur en hjá kannski Spánverjum. Að sama skapi þá eru þær að sækja inn í svona svipuð svæði, gera það á aðeins öðruvísi hátt en svo er líka náttúrlega bara fyrir utan teig, þær skjóta mikið fyrir utan teig."


„Við þurfum að njóta þess að spila fyrir framan 30.000 manns, ekki láta það hræða sig, heldur taka orkuna frá áhorfendum og nota hana. Njóta mómentsins að vera að spila svona stóra leiki. Þetta á að hjálpa manni, á að hvetja mann áfram.“
Fyrir leik
Taka jákvæða hluti úr leiknum gegn heimsmeisturunum Stelpurnar töpuðu 3-0 gegn feiknasterku liði Spánar sl. þriðjudag, þær geta þó tekið fullt af jákvæðum hlutum úr þeim leik með sér í dag

„Varnarleikurinn var mjög góður og svo klárlega getum við byggt á aðeins í sóknarleiknum en við sáum alveg að við gátum spilað ef við róum okkur aðeins niður.“

„Fyrst og fremst kannski varnaleikurinn, mér fannst við verjast virkilega vel og það er klárlega eitthvað sem við getum byggt á og þurfum að byggja á."

,,Að verjast í 90 mínútur er ekkert auðvelt og að við náðum einhvern veginn að halda því sem við vildum gera út allan leikinn þótt að við höfðum fengið mark á okkur og er líka bara jákvætt. Ég held við þurfum að gera það sama bara á móti Englandi, það verður aðeins öðruvísi leikur en samt að mörgu leyti svipaður líka þannig bara áfram gakk.“
Fyrir leik
Dómarateymi dagsins Dómararnir í dag koma frá Ítalíu

Silvia Gasperotti er með flautuna og henni til aðstoðar eru þær Stefania Signorelli og Alessia Cerrato.

Fjórði dómari er Maria Marotta


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Landsliðið kallar! Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu beint frá The City Ground, heimavelli Notthingham Forest í Nottingham þar sem stelpurnar okkar mæta nýkringdum Evrópumeisturum Englands.

Búast má við um 30.000 áhorfendum en uppselt er á leikinn

Leikurinn hefst á slaginu 12:30!

Mynd: Snæbjört Pálsdóttir

Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('63)
14. Hlín Eiríksdóttir ('45)
16. Hildur Antonsdóttir ('89)
17. Ída Marín Hermannsdóttir ('63)
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir ('76)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Berglind Rós Ágústsdóttir ('89)
5. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir ('63)
7. Karitas Tómasdóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir ('63)
9. Diljá Ýr Zomers ('76)
11. Birta Georgsdóttir
15. María Catharina Ólafsd. Gros ('45)
20. Thelma Karen Pálmadóttir
21. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
22. Elín Helena Karlsdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Ólafur Helgi Kristjánsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: