Fotbolti.net
Jakob Örn Heiðarsson
Mjólkurbikar karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
6 - 0
KV
KV
Benedikt Daríus Garðarsson 30'1 - 0Bjarki Steinsen Arnarsson 32'2 - 0Guðfinnur Þór Leósson 37'3 - 0Theodór Ingi Óskarsson 73'4 - 0Theodór Ingi Óskarsson 76'5 - 0Theodór Ingi Óskarsson 81'6 - 0
Dómari: ÞÞÞ
Leik lokið!
6-0 sigur staðreynd!
88. mín
Rólegar mínútur
Leikurinn fer að mestu fram á miðjum vallarins.
Fylkir
81. mín
SuperSup!

Theodór Ingi Óskarsson (stoðsending: Nikulás Val Gunnarsson)

Þrenna á 8 mínútum!

Frábær sending frá Nikulás Val inn fyrir vörn KV þar sem Theodór Ingi sleppur einn í gegn og klárar frábærlega.

Þrenna hjá Theodór og Nikulás með tvær stoðsendingar eftir að þeir félagar komu inná á 68 mínútu
78. mín
KV með frábært færi!
Góður skalli hjá Jóhannes en Ólafur ver gríðarlega vel í marki Fylkis!
Fylkir
77. mín
InnJóel Baldursson
ÚtHlynur Sævar Jónsson
Fylkir
77. mín
InnNói Hrafn Ólafsson
ÚtKári Sigfússon
Fylkir
76. mín
Varamaðurinn sjálfur!

Theodór Ingi Óskarsson (stoðsending: Kári Sigfússon)

Kominn með tvö mörk!
Fylkir
73. mín
MAAAARK!

Theodór Ingi Óskarsson (stoðsending: Nikulás Val Gunnarsson)

Theodór Ingi leikur á tvo varnarmenn, snýr þá af sér og klárar frábærlega í nærhornið. Gríðarlega gott mark hjá Theodór Inga
KV
68. mín
InnEinar Þórðarson
ÚtKonráð Bjarnason
KV
68. mín
InnFuseini Issah
ÚtVilhelm Bjarki Viðarsson
Tvöföld hjá KV!
Fylkir
68. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtGuðfinnur Þór Leósson
Fylkir
68. mín
InnHelber Josua Catano Catano
ÚtBjarki Steinsen Arnarsson
Fylkir
68. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtBenedikt Daríus Garðarsson
Þreföld skiptin
59. mín
KV orðið líklegra til að skapa hættu
KV hefur legið svolítið á Fylkisliðinu, náð upp góðu spili, en vantar að klára sóknirnar
KV
53. mín
InnTristan Alex Tryggvason
ÚtEiður Snorri Bjarnason
KV
53. mín
InnÞór Óli Bjarnason
ÚtOddur Ingi Bjarnason
Tvöföld skipting hjá KV
49. mín
Skemmtileg skæri
Vilhelm með skemmtilega takti og nær að koma boltanum fyrir en varnarmenn Fylkis ná að hreinsa honum í burtu
47. mín
Magnús Daði
Fær boltan og skýtur honum skemmtilega yfir markmann KV en boltinn endar í þaknetinu!

Mjög góð tilraun
46. mín
Seinni hálfleikur er on!
Fylkismenn byrja og sækja í átt að Árbæjarlaug
45. mín
3-0 í hálfleik
Fylkir verið með yfirhöndina í þessum fyrri hálfleik, hefðu hæflega getað verið 5-0 yfir í hálfleik.

Kemur eldræða frá Auðinni þjálfara KV í hálfleik.
Fylkir
44. mín
Fyrsta gula spjaldið

Hlynur Sævar Jónsson

38. mín
KV í ruglinu
KV virðist missa haus eftir mark, KV missir boltan á hættulegum stað og Benedikt Daríus á skot sem er varið. Góð tilraun og góð markvarsla.
Fylkir
37. mín
3-0!

Guðfinnur Þór Leósson

Útspark frá Eiði Orra endar á Guðfinn sem smellur boltanum í fjærhornið
Fylkir
32. mín
2-0!

Bjarki Steinsen Arnarsson (stoðsending: Máni Austmann Hilmarsson)

Fylkir beint upp í sókn aftur og ná að spila sig í gegnum vörn KV. Máni er í góðri stöðu gefur boltan áfram á Bjarki sem rúllar honum í fjærhornið.
Fylkir
30. mín
Fyrsta mark leiksins!

Benedikt Daríus Garðarsson (stoðsending: Birkir Eyþórsson )

Birkir kemst upp fyrir endamörk og gefur boltan fyrir og eftir smá klafs endar boltinn fyrir fram Birki sem neglir honum í netið
26. mín
Farið að snjóa!
Alltaf hressandi að spila í smá snjókomu
23. mín
Fylkir stillir upp í 4-2-3-1
Ólafur Kristófer

Bjarki Steinsen – Orri Sveinn – Hlynur Sævar – Arnór Breki

Birkir Eyþórsson – Guðfinnur Þór

Kári Sigfússon – Máni Austmann – Benedikt Daríus

Magnús Daði
21. mín
Birkir Eyþórsson!
Með marktilraun sem er vel varið hjá Eiði Orra
20. mín
KV stillir upp í 4-4-2
Eiður Orri

Gunnar Magnús - Arnar Kári - Eiður Snorri - Jóhannes Sakda

Askur Jóhannsson - Eyþór Daði - Óliver Dagur - Velhelm Bjarki

Oddur Ingi - Konráð Bjarnason


12. mín
Leikurinn farið rólega af stað
Leikurinn hefur verið að mestu spilaður á vallarhelmingi KV í upphafi leiks. Fylkir hefur fengið þrjár hornspyrnur, á meðan KV hefur gert tvær tilraunir í skyndisókn án árangurs.
10. mín
Fyrsta færi leiksins
Hornspyrna sem Arnór Breki tekur, og Hlynur Sævar skallar boltann í utanverða stöngina. Fyrsta marktilraun leiksins komin!
3. mín
Horn fyrir Fylki
Fyrsta hornspyrna leiksins en ekkert kemur úr henni
1. mín
Leikurinn kominn af stað!
Það eru gestirnir sem byrja með boltan og sækja til suðurs.
Fyrir leik
LiveyZone
Mjólkurbikar karla
19:00 Fylkir-KV (tekk VÖLLURINN)
19:00 Grótta-Úlfarnir (Vivaldivöllurinn)

Leikirnir verða báðir í beinni útsendingu á Livey og verður svokallað "LiveyZone" í kvöld þar sem skipt verður á milli leikja:

Fyrir leik
Byrjunarliðin er kominn í hús!
Byrjunarliðin eru klár og þar má sjá 15 ára gamlan Magnús Daða Ottsen í byrjunarliði heimamanna.

Verður gaman að fylgjast með honum hér í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikbönn
Fylkir fékk þrjú rauð spjöld í tapi sínu gegn Kára fyrir ári síðan og verða því þrír leikmenn í banni í kvöld.

Ragnar Bragi, Guðmundur Tyrfingsson og Eyþór Wöhler þurfa því miður að horfa á leikinn úr stúkunni.

Ragnar Bragi mun þó ekki spila með liðinu í sumar þar sem hann glímir við meiðsli.

KV er ekki með nein skráð leikbönn og geta því spilað á öllum sínum leikmönnum hér á eftir.
Fyrir leik
KV fyrir leik
KV, eða Knattspyrnufélag Vesturbæjar, er venslalið KR og leikur í 3. deildinni.

KV leikur sinn annan leik í Mjólkurbikarnum í ár, en liðið vann glæsilegan 5–0 sigur gegn KB í fyrstu umferð. Liðið komst einnig í 64 liða úrslit í fyrra, en tapaði þá fyrir Fylki, 6–1.

KV spilar sitt annað tímabil í 3. deildinni í ár og endaði í 7. sæti fyrir miðjan deild í fyrra. Liðið ætlar sér stóra hluti í sumar, og spurningin er hvort það komi galvaskir til leiks hér á Tekk vellinum í kvöld.

Með nýju tímabili fylgja ný tækifæri, vonandi fáum við spennandi leik hér í kvöld!
Fyrir leik
Sigurliðið fær heimaleik
Dregið var í 32-liða úrslit á dögunum og ljóst að sigurliðið í þessum leik í kvöld mun mæta KFA eða Sindra sem mætast á laugardaginn.

   24.03.2026 12:23
Mjólkurbikarinn: Þrír Bestu deildar slagir
Fyrir leik
Fylkir fyrir leik
Ríkjandi Lengjubikarmeistarar Fylkis hefja leik í 64 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld, en liðið leikur í Lengjudeildinni.

Liðið vann gríðarlega flottan sigur á KR síðastliðinn laugardag þar sem úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni eftir 3–3 jafntefli að loknum venjulegum leiktíma.

Í fyrra datt Fylkir út í 32 liða úrslitum gegn Kára, venslaliði ÍA, og áttu síðan erfitt uppdráttar í Lengjudeildinni í framhaldinu þar sem liðið var í fallbaráttu fram að síðustu umferð.

En nú er komið nýtt ár og nýr þjálfari, Heimir Guðjónsson, sem er strax búinn að skila sínum fyrsta titli í Árbæinn. Spurningin er því: liggur leið hinna appelsínugulu á Laugardalsvöllinn í haust?
Fyrir leik
Velkomin hér frá Tekk vellinum
Velkomin á þessa beinu textalýsingu frá leik Fylkis og KV á Tekk-vellinum í 64 liða úrslitum Mjólkurbikars karla.

Þessi lið hafa mæst þrisvar sinnum undanfarin ár og hefur Fylkir haft sigur í öll skiptin:

05.04.2025: KV 1–6 Fylkir
05.05.2022: Fylkir 3–1 KV
21.07.2022: KV 2–3 Fylkir

En spurningin er hvort einhverjar breytingar verði á úrslitasögu þessara tveggja liða í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.