Fotbolti.net
24.03.26 - 12:23
Kári Snorrason

Mjólkurbikarinn: Þrír Bestu deildar slagir

Birkir Sveinsson stígur á svið og dregur.

Birkir Sveinsson stígur á svið og dregur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í höfuðstöðvum KSÍ, Melavelli, í dag, þriðjudaginn 24. mars kl. 12.00.

Drátturinn var í beinni textalýsingu og má sjá lýsinguna hér að neðan.

Það verða þrír Bestu deildar slagir í 32-liða úrslitunum. KR mætir Val, Fram mætir Víkingi og Þór mætir FH. Bikarmeistarar Vestra mæta annað hvort Leikni eða Smára.
Tekið skal fram að dregið var í 32-liða úrslit þó að leikirnir í 2. umferð Mjólkurbikarsins hafi ekki farið fram. Ástæðan er sú að lítill tími líður frá 2. umferð og þar til leikir 32-liða úrslita fara fram. Með þessu gefst aðeins meiri tími til að skipuleggja ferðalög milli landshluta fyrir hlutaðeigandi félög.

32-liða úrslitin hefjast 4. apríl.

Sterkustu lið Íslandsmótsins sem leika í Bestu deildinni mæta til leiks í 32-liða úrslitunum á meðan liðin úr Lengjudeildinni, nema ríkjandi bikarmeistarar Vestra, stíga strax á svið í 2. umferð.

Í beinni

12:18Drætti lokið!
Þakka fyrir mig úr Laugardalnum.

32-liða úrslit Mjólkurbikars karla

ÍBV - Þróttur R./Víkingur Ó.

Vestri - Leiknir R./Smári

ÍA - Haukar/KFR

Fjölnir/Víðir - HK/BF108

KR - Valur

Þór - FH

Stjarnan - Selfoss/Augnablik

Fylkir/KV - KFA/Sindri

Léttir/Stokkseyri/Árbær - Ægir/Reynir S.

Grótta/Úlfarnir - Álftanes/Kári

Tindastóll/Magni - Njarðvík/Hvíti Riddarinn

Elliði/Grindavík - Keflavík

Völsungur/Kormákur/Hvöt - Breiðablik

Fram - Víkingur R.

Höttur/Neisti D. - KA

ÍR/Afturelding - Ýmir/KFS/Þorlákur
12:17ÍR/Afturelding - Ýmir og sigurvegarinn úr viðureign KFS og Þorláks
12:17Höttur/Neisti Djúpavogi - KA
12:16Fram - Víkingur R.
Annar safaríkur leikur!
12:16Völsungur/Kormákur Hvöt - Breiðablik
Blikarnir fara í ferðalag.
12:15Elliði/Grindavík - Keflavík
Fáum við suðurnesjaslag?
12:15Tindastóll/Magni - Njarðvík/Hvíti Riddarinn
12:14Grótta/Úlfarnir - Álftanes/Kári
12:13Léttir - Stokkseyri/Árbær - Ægir/Reynir Sandgerði
Nóg af skástrikum!
12:13Fylkir/KV - KFA/Sindri
12:13Stjarnan - Selfoss/Augnablik
12:12Þór - FH
12:12Fjölnir/Víðir - HK/BF 108
12:11KR - Valur
Stórleikur!
12:11ÍA - Haukar/KFR
12:10Vestri - Leiknir R./Smári
Bikarmeistararnir fá heimaleik
12:10ÍBV - Þróttur R./Víkingur Ó.
12:08Höddi Magg og Toddi sjá um dráttinn
Fá mikið lófaklapp. Toddi hrærir vel í skálinni.
12:05
Birkir Sveinsson tekur til máls og fer yfir stóru málin.
11:49Styttist í drátt
Fulltrúar liðanna farið að tínast inn á Laugardalsvöll og farnir að gæða sér á ljúffengum veitingum Mjólkursamsölunnar.
11:07Boltinn farinn að rúlla
Með því að smella hér má sjá úrslitin úr Mjólkurbikarnum hingað til og þá leiki sem eru framundan.
11:05Góðan og gleðilegan daginn
Hér fylgjumst við með drættinum í beinni klukkan 12:00.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.